Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 366. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 813  —  366. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um kostnað við vegagerð og tekjur af samgöngum.

     1.      Hvað hefur lagning þjóðvegar 41 (Reykjanesbrautar) kostað íslenska ríkið, framreiknað frá upphafi framkvæmda, sundurliðað eftir framkvæmdaárum?
     2.      Hvað kostuðu Héðinsfjarðargöng, framreiknað frá upphafi framkvæmda, sundurliðað eftir framkvæmdaárum?

    Í töflu hér á eftir er tekinn saman kostnaður við annars vegar Héðinsfjarðargöng og hins vegar við framkvæmdir á Reykjanesbraut frá árinu 2000 til dagsins í dag. Efri hluti töflunnar er á verðlagi hvers árs, en neðri hlutinn er uppfærður til meðalverðlags 2010 með byggingarvísitölu. Framkvæmdir við Reykjanesbraut hófust reyndar upp úr 1960 en það tímabil sem hér er tekið er um það bil tímabilið sem nær yfir tvöföldun brautarinnar.

     3.      Hversu miklar tekjur fær íslenska ríkið af samgöngum og samgöngutækjum að meðaltali á ári hverju, sundurliðað eftir flokkum?
    Innanríkisráðherra byggir svar sitt á því að átt sé við tekjur af ökutækjum og getur eingöngu upplýst um tekjur Vegagerðarinnar af mörkuðum tekjustofnum sínum, bensíngjaldi, olíugjaldi og kílómetragjaldi. Aðrar tekjur ríkisins af ökutækjum eru á forræði fjármálaráðuneytisins.

Innheimtar markaðar tekjur 2009:
Bensíngjald 7.730 millj. kr.
Olíugjald 6.204 millj. kr.
Kílómetragjald 973,8 millj. kr.
Samtals: 14.907,8 millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.