Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 474. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 882  —  474. mál.




Svar



forseta Alþingis við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um fund ómerktrar tölvu í húsakynnum Alþingis.

     1.      Kom forsætisnefnd saman til ákvarðanatöku þegar ómerkt tölva fannst í húsakynnum Alþingis í fyrra og ef svo er, hvaða ákvarðanir voru þá teknar?
    Nei.

     2.      Hvernig stóð á því að tölvudeild þingsins var forseta til ráðgjafar um úrbætur og næstu skref í tölvufundarmálinu?
    Tölvudeild skrifstofu þingsins sér um rekstur tölvukerfis Alþingis og þar á meðal um öryggi þess. Tölvudeild þingsins gerði því strax tillögur um auknar varnir gegn tengingum í tölvukerfið eftir að málið kom upp. Á þær tillögur var fallist og þær hafa verið framkvæmdar. Frekari úttekt á öryggismálum stendur nú yfir.

     3.      Hvers vegna var ríkislögreglustjóri og starfsfólk hans ekki kallað út þegar tölvan fannst?
    Haft var samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu þegar tölvan fannst. Hún annast gæslu hússins og er í nær daglegu sambandi við þingvörsluna. Mat um það hvort tilkynna ætti ríkislögreglustjóra um tölvufundinn lá hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

     4.      Hverjar eru ástæður þess að alþingismenn voru ekki látnir vita þegar tölvan fannst?
    Þessari spurningu hefur forseti áður svarað í yfirlýsingu sem gefin var í þingsalnum 20. janúar sl. en þar segir m.a.:
    „Það voru mjög eindregin tilmæli frá tölvudeildinni að mál þetta yrði að svo komnu ekki gert opinbert af öryggisástæðum. Með þetta í huga, svo og að engar vísbendingar komu frá lögreglu né frá skrifstofu þingsins sem nokkuð væri á byggjandi, ákvað ég að láta málið liggja til að koma ekki af stað vangaveltum eða grunsemdum sem ættu sér enga stoð. Ekkert virðist heldur benda til þess að mati tölvudeildar að nokkur hafi komist í gögn þingmanna.“

     5.      Vöknuðu einhverjar spurningar hjá forseta þegar í ljós kom að tölvan var tengd inn á netið 28. desember 2009, sama dag og umræður um Icesave hófust á ný?
    Nei.

     6.      Var formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs látinn vita af tölvufundinum eins og formaður Samfylkingarinnar?
    Nei. Forsætisráðherra var að ósk lögreglu látinn vita um atburðinn í öryggisskyni sem yfirmaður Stjórnarráðsins en ekki sem formaður stjórnmálaflokks.

     7.      Hefur forseti vakið máls á því við ríkislögreglustjóra að um árás á æðstu stjórn ríkisins hafi verið að ræða?
    Nei. Hins vegar héldu forsætisnefnd og fulltrúar þingflokka fund um málið með yfirmönnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.