Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 566. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 955  —  566. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um innstæður í lánastofnunum 30. september 2008.

Frá Margréti Tryggvadóttur.



     1.      Hversu háar voru innstæður í íslenskum útibúum viðskiptabankanna þriggja 30. september 2008?
     2.      Hversu háar voru innstæður í sparisjóðunum á Íslandi 30. september 2008?
     3.      Hversu háar voru innstæður í erlendum útibúum viðskiptabankanna þriggja 30. september 2008?
     4.      Hversu há fjárhæð var í Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta 30. september 2008?
     5.      Hversu há var sú upphæð innstæðna sem Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta bar að bæta 30. september 2008 samkvæmt lögum? Hér er átt við heildarinnstæðu einstaklinga og lögaðila að fjárhæð 20.887 evrur (3.047.000 kr.).
     6.      Hversu há var sú upphæð innstæðna sem stjórnvöld ákváðu að tryggja umfram lögbundna tryggingu 30. september 2008?


Skriflegt svar óskast.