Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 569. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 960 — 569. mál.
um Reykjavíkurflugvöll sem framtíðarmiðstöð innanlandsflugs.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja viðræður við Reykjavíkurborg um breytingar á aðalskipulagi borgarinnar með það að markmiði að miðstöð fyrir innanlandsflug verði til frambúðar á Reykjavíkurflugvelli.
Brýnt er að marka stefnu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Sú óvissa sem ríkir um framtíð flugvallarins kemur sér illa fyrir hagsmunaaðila og brýnt er að henni verði eytt svo fljótt sem verða má. Nú stendur yfir vinna við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkurborgar og því mikilvægt að Alþingi árétti vilja sinn í þessu mikilvæga máli. Vísað er til gildandi samgönguáætlunar sem gerir ráð fyrir áframhaldandi rekstri flugvallarins á núverandi stað og byggingu samgöngumiðstöðvar sem þjóni innanlandsfluginu. Jafnframt er vísað til samkomulags sem unnið hefur verið að á vegum samgönguyfirvalda og stjórnenda höfuðborgarinnar. Vegna þeirrar óvissu sem hefur skapast við frestun framkvæmda við samgöngumiðstöðina er tillagan flutt.
Meginhlutverk Reykjavíkurflugvallar er að vera miðstöð innanlandsflugs auk þess sem hann þjónar mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Flugvöllurinn hefur verið miðstöð innanlandsflugs í rúm 60 ár. Hann er vel staðsettur með tilliti til veðurfars og annarra þátta sem snerta flug að og frá flugvellinum og er nýting hans góð.
Hlutverk Reykjavíkurflugvallar sem varaflugvallar fyrir innanlandsflug og millilandaflug er mjög mikilvægt og þá sérstaklega fyrir millilandaflugið.
Varaflugvöllur í Reykjavík sparar töluvert fé við flugrekstur og hefur auk þess mikla þýðingu fyrir öryggi flugsamgangna til og frá landinu sem og innan lands.
Verði innanlandsflug flutt til Keflavíkurflugvallar er enginn varaflugvöllur á þéttbýlasta svæði landsins. Reiknað er með að við þær aðstæður yrði að byggja varaflugvöll á Suðurlandi vegna öryggis í flugsamgöngum milli landa og innan lands.
Fyrir flugfarþega er staðsetning flugvallarins mjög hentug, stutt er að sækja í mennta- og stjórnsýslustofnanir og miðju borgarinnar, sem og í aðalsjúkrahús landsins. Flugvöllurinn sjálfur er nýlega endurbyggður en nýja flugstöð vantar tilfinnanlega og sumar byggingar flugrekenda eru orðnar gamlar. Úr því verður að bæta hið fyrsta, ekki síst með tilliti til mikilvægs hlutverks vallarins varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu.
Fjölbreytt störf, mörg tengd ferðaþjónustu, flugrekstri og kennslu, fylgja starfsemi á Reykjavíkurflugvelli. Áætla má að um sé að ræða allt að 1.000 störf sem tengjast starfseminni beint og óbeint. Staðsetning vallarins í Reykjavík er því mjög mikilvæg fyrir atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu.
Flutningur miðstöðvar innanlandsflugs til Keflavíkurflugvallar væri veruleg afturför í flugsamgöngum innan lands. Áhrif þess á ferðaþjónustu og tengsl landsbyggðar við höfuðborgarsvæðið eru óásættanleg.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 960 — 569. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um Reykjavíkurflugvöll sem framtíðarmiðstöð innanlandsflugs.
Flm.: Jón Gunnarsson, Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Einar K. Guðfinnsson,
Kristján Þór Júlíusson, Tryggvi Þór Herbertsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja viðræður við Reykjavíkurborg um breytingar á aðalskipulagi borgarinnar með það að markmiði að miðstöð fyrir innanlandsflug verði til frambúðar á Reykjavíkurflugvelli.
Greinargerð.