Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 497. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 997 — 497. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um hlutdeild norræns og bandarísks sjónvarpsefnis í dagskrá RÚV.
Fyrirspurnin var send Ríkisútvarpinu og hafa eftirfarandi svör borist þaðan.
1. Hver hefur verið hlutdeild sjónvarpsefnis frá Norðurlöndum sl. 5 ár í dagskrá RÚV, sundurliðað eftir löndum, og hver hefur þróunin verið með bandarískt efni á sama tímabili?
Í meðfylgjandi töflu má sjá skiptinguna en hvert tímabil er tólf mánuðir utan eitt sem er eingöngu fimm mánuðir, þ.e. frá 1.4.–31.8. 2007. Ástæðan fyrir því er að formbreyting varð á rekstri RÚV 1. apríl 2007, en þá var einnig skipt um reikningsár sem nú er 1. september til 31. ágúst ár hvert.
2. Hver var innkaupskostnaður þess norræna dagskrárefnis (hlutdeild 7,5%) sem RÚV sýndi á síðasta ári?
RÚV getur af samkeppnisástæðum því miður ekki veitt umbeðnar upplýsingar. Þó má benda á að samanburður á innkaupskostnaði norræns og bandarísks efnis gæfi ekki marktækan samanburð. Kemur þar margt til. Verðlagning á dagskrárefni fyrir sjónvarp er háð því hvaða tegund efnis er verið að bjóða. Að öllu jöfnu er leikið efni mun dýrara en fræðsluefni. Norræna efnið er mjög fjölbreytt að gerð, þ.e. efnið getur verið leikið efni eða það tengist menningu, fræðslu eða skemmtun en bandaríska efnið er nær undantekningarlaust leiknar þáttaraðir eða kvikmyndir og þar af leiðandi er það hlutfallslega mun dýrara á útsenda klukkustund. Við þetta bætist að RÚV á í miklum gagnkvæmum samskiptum við norrænu ríkisstöðvarnar sem felast m.a. í kaupum, skiptum eða samframleiðslu á dagskrárefni. Sem dæmi má nefna að RÚV lagði töluvert til við framleiðslu á dönsku þáttaröðinni Erninum, þeim þáttum sem teknir voru upp á Íslandi, en það framlag kemur ekki fram í innkaupsverði þáttanna. Viðskipti við norrænu sjónvarpsstöðvarnar eru því með allt öðrum hætti en bandarísk fyrirtæki þar sem efni er eingöngu keypt á mörkuðum.
3. Hvert var áhorfið á eftirtalda norræna þætti á síðasta ári: Glæpurinn 2 (Forbrydelsen 2), Hvaleyjar (Hvaler), Berlínaraspirnar (Berlinpoplene), Ljósmæðurnar (Barnmorskorna) og Himinblámi (Himmelblå)?
Meðaláhorfið á þáttaraðirnar árið 2010 var með eftirfarandi hætti:
4. Hver var innkaupskostnaður þess bandaríska dagskrárefnis (hlutdeild 26,1%) sem RÚV sýndi á síðasta ári?
Sjá svar við 2. tölul.
5. Hvert var áhorfið á eftirtalda bandaríska þætti á síðasta ári: Ljóta Betty (Ugly Betty), Aðþrengdar eiginkonur (Desperate Housewives), Bræður og systur (Brothers and Sisters), Lífsháski (Lost), Sporlaust (Without a Trace), Læknamiðstöðin (Private Practice), Bráðavaktin (ER), Skólaklíkur (Greeks), Að duga eða drepast (Make it or Break it), Leitandinn (Legends of the Seekers) og Castle (Castle)?
Meðaláhorfið árið 2010 var með eftirfarandi hætti:
6. Áformar RÚV að sýna meira af norrænu efni en verið hefur hin síðari ár?
RÚV hefur lagt áherslu á að sýna sjónvarpsefni á norrænum málum og samkvæmt þjónustusamningi RÚV og mennta- og menningarmálaráðuneytisins skal það að lágmarki vera 5% af útsendu efni en á síðasta rekstrarári var það töluvert meira eða 7,5%. Á síðustu árum hefur framboð á fjölbreyttu norrænu gæðaefni aukist mikið en þetta efni endurspeglar vel norrænan veruleika. Eins og svar við 1. tölul.ber með sér hefur RÚV fylgt eftir auknu framboði á gæðaefni frá Norðurlöndunum og aukið hlut norræns efnis í dagskrá sinni. Vonandi verður framhald á þessari þróun. Mikið áhorf á leikið norrænt efni og heimildarmyndir staðfestir að almenningur vill horfa á þættina. Fyrir síðustu jól sýndi RÚV einnig norska jóladagatalið frá NRK.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 997 — 497. mál.
Svar

| 1.1.–31.12. 2006 | 1.4.–31.8. 2007 |
1.9.2007– 31.8.2008 |
1.9.2008– 31.8.2009 |
1.9.2009– 31.8.2010 |
|
| Danmörk | 3,4% | 2,3% | 3,4% | 4,8% | 3,2% |
| Noregur | 0,7% | 0,6% | 0,5% | 0,6% | 2,4% |
| Svíþjóð | 2,1% | 1,6% | 1,3% | 1,2% | 1,5% |
| Finnland | 0,9% | 1,9% | 0,4% | 0,5% | 0,4% |
| Samtals án Ísl. | 7,1% | 6,4% | 5,6% | 7,1% | 7,5% |
| Ísland | 49,4% | 40,1% | 39,4% | 44,6% | 50,7% |
| Samtals norrænt | 56,5% | 46,5% | 45,0% | 51,7% | 58,2% |
| Bandaríkin | 27,8% | 30,4% | 28,1% | 28,0% | 26,1% |
2. Hver var innkaupskostnaður þess norræna dagskrárefnis (hlutdeild 7,5%) sem RÚV sýndi á síðasta ári?
RÚV getur af samkeppnisástæðum því miður ekki veitt umbeðnar upplýsingar. Þó má benda á að samanburður á innkaupskostnaði norræns og bandarísks efnis gæfi ekki marktækan samanburð. Kemur þar margt til. Verðlagning á dagskrárefni fyrir sjónvarp er háð því hvaða tegund efnis er verið að bjóða. Að öllu jöfnu er leikið efni mun dýrara en fræðsluefni. Norræna efnið er mjög fjölbreytt að gerð, þ.e. efnið getur verið leikið efni eða það tengist menningu, fræðslu eða skemmtun en bandaríska efnið er nær undantekningarlaust leiknar þáttaraðir eða kvikmyndir og þar af leiðandi er það hlutfallslega mun dýrara á útsenda klukkustund. Við þetta bætist að RÚV á í miklum gagnkvæmum samskiptum við norrænu ríkisstöðvarnar sem felast m.a. í kaupum, skiptum eða samframleiðslu á dagskrárefni. Sem dæmi má nefna að RÚV lagði töluvert til við framleiðslu á dönsku þáttaröðinni Erninum, þeim þáttum sem teknir voru upp á Íslandi, en það framlag kemur ekki fram í innkaupsverði þáttanna. Viðskipti við norrænu sjónvarpsstöðvarnar eru því með allt öðrum hætti en bandarísk fyrirtæki þar sem efni er eingöngu keypt á mörkuðum.
3. Hvert var áhorfið á eftirtalda norræna þætti á síðasta ári: Glæpurinn 2 (Forbrydelsen 2), Hvaleyjar (Hvaler), Berlínaraspirnar (Berlinpoplene), Ljósmæðurnar (Barnmorskorna) og Himinblámi (Himmelblå)?
Meðaláhorfið á þáttaraðirnar árið 2010 var með eftirfarandi hætti:
| Þáttaröð | Meðaláhorf % |
| Glæpurinn II (Forbrydelsen II) | 21,4% |
| Hvaleyjar (Hvaler) | 20,8% |
| Berlínaraspirnar (Berlinerpoplene) | 13,7% |
| Ljósmæðurnar (Barnmorskorna) | 16,7% |
| Himinblámi (Himmelblå) | 24,9% |
4. Hver var innkaupskostnaður þess bandaríska dagskrárefnis (hlutdeild 26,1%) sem RÚV sýndi á síðasta ári?
Sjá svar við 2. tölul.
5. Hvert var áhorfið á eftirtalda bandaríska þætti á síðasta ári: Ljóta Betty (Ugly Betty), Aðþrengdar eiginkonur (Desperate Housewives), Bræður og systur (Brothers and Sisters), Lífsháski (Lost), Sporlaust (Without a Trace), Læknamiðstöðin (Private Practice), Bráðavaktin (ER), Skólaklíkur (Greeks), Að duga eða drepast (Make it or Break it), Leitandinn (Legends of the Seekers) og Castle (Castle)?
Meðaláhorfið árið 2010 var með eftirfarandi hætti:
| Þáttaröð | Meðaláhorf % |
| Ljóta Betty (Ugly Betty) | 15,6% |
| Aðþrengdar eiginkonur (Desperate Housewives) | 19,6% |
| Bræður og systur (Brothers and Sisters) | 16,9% |
| Lífsháski (Lost) | 11,9% |
| Sporlaust (Without a Trace) | 20,7% |
| Læknamiðstöðin (Private Practice) | 16,3% |
| Bráðavaktin (ER) | 18,2% |
| Skólaklíkur (Greek) | 12,4% |
| Að duga eða drepast (Make It or break it) | 13,9% |
| Leitandinn (Legend of the Seeker) | 10,0% |
| Castle (Castle) | 16,0% |