Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 639. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1027  —  639. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um skattafslátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu.

Flm.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Höskuldur Þórhallsson, Ásmundur Einar Daðason,
Eygló Harðardóttir, Lilja Mósesdóttir.


    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að útfæra reglur um skattafslátt vegna sannanlegs kostnaðar við ferðir til og frá vinnu á skilgreindum atvinnusvæðum.

Greinargerð.


    Síðustu ár og áratugi hafa þéttbýliskjarnar stækkað auk þess sem samgöngur hafa víða batnað. Samhliða því hafa miklar breytingar orðið á þróun byggða- og atvinnusvæða. Fólk, jafnt í skilgreindu þéttbýli sem í dreifbýli, hefur í síauknum mæli leitað í störf í nágrannabæjar- og sveitarfélögum þannig að skilgreiningar og hugmyndir um atvinnusvæði hafa verið að breytast. Þessi þróun hefur leitt af sér sífellt stækkandi atvinnusvæði og lengri akstur og ferðir vegna vinnu. Það er yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar að stækka og styrkja atvinnusvæði í öllum landshlutum og styrkja þannig meginþéttbýliskjarna hvers svæðis. Þetta samræmist hinni svokölluðu 20/20 sóknaráætlun ríkisstjórnarinnar sem er áætlun til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar.
    Þessi þróun er jákvæð og styrkir byggðir landsins en stækkandi atvinnusvæðum og ferðum fólks langar leiðir í og úr vinnu fylgja einnig vandamál. Eldsneytisverð hefur aldrei verið hærra en nú og sér ekki fyrir endann á hækkunum á því. Nauðsynlegt er að unnið sé að því að auka vægi almenningssamgangna á hverju atvinnusvæði fyrir sig en þar er víða pottur brotinn. Það er ljóst að á sumum atvinnusvæðum er engum almenningssamgöngum til að dreifa og yfir langan veg að fara í og úr vinnu. Það er því tillaga flutningsmanna að útfærðar verði reglur um skattafslátt vegna sannanlegs ferðakostnaðar í og úr vinnu, sem mun leiða til frekar styrkingar og vaxtar atvinnusvæða og jöfnunar búsetuskilyrða um landið. Þessi leið er vel þekkt í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við og hér á eftir eru rakin dæmi um útfærslu á ívilnunarkerfi af þessu tagi í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
     Danmörk: Samkvæmt dönskum skattareglum geta launþegar fengið sérstakan skattafslátt ef ákveðin skilyrði eru til staðar. 1 Ef vinnustaður launþega er í meira en 12 km fjarlægð frá heimili hans (samanlagt ekið meira en 24 km í og úr vinnu á hverjum vinnudegi) á hann rétt á skattafslætti vegna aksturs í og úr vinnu. Launþegar á jaðarsvæðum fá 2 danskar krónur (DKR) í skattafslátt fyrir hvern kílómetra sem ekið er umfram 24 km á hverjum vinnudegi. Taxtinn er sá sami fyrir hvern kílómetra umfram 100 km. Á heimasíðu ríkisskattstjóra í Danmörku má sjá hvaða svæði eru skilgreind sem jaðarsvæði, en mörg þeirra eru í útjaðri Danmerkur. 2 Jaðarsvæðin eru skilgreind út frá ákveðnum þáttum, t.d. lágum tekjum, þar sem tekjur á hvern íbúa fara ekki yfir 90% af landsmeðaltali en einnig er litið á íbúaþróun við mat á jaðarsvæðum.
     Svíþjóð: Þar er veittur skattafsláttur samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: 3 Minnst 5 km þurfa að vera milli heimilis og vinnustaðar. Launþegi þarf að spara samanlagt tvær klukkustundir í ferðatíma við að nota bíl fremur en opinber samgöngutæki (strætisvagn, lest o.þ.h.). Ef farið er á bíl minnst 60 daga á ári og 300 mílur eknar í tengslum við starf er einungis veittur afsláttur fyrir þá daga sem ekið er í tengslum við starfið. Ef ekið er minnst 160 daga á ári og minnst 300 mílur í tengslum við starf er afslátturinn veittur fyrir fjölda daga sem ekið hefur verið í og úr vinnu. Skattafsláttur er einungis veittur fyrir útgjöld umfram 9.000 sænskar krónur (SEK). Ef almenningssamgöngur eru ekki mögulegar í minnst 2 km á leiðinni milli heimilis og vinnu er veittur skattafsláttur fyrir alla leiðina í bíl. Taxtinn er 18,50 SEK fyrir hverja mílu sem ekin er. Í slíkum tilvikum er skattafslátturinn einungis gefinn fyrir upphæð umfram 9.000 SEK. 4
     Noregur: Í Noregi er svipað fyrirkomulag og í Danmörku og Svíþjóð þegar kemur að skattafslætti vegna aksturs í og úr vinnu (fradrag for arbeidsreiser mellom hjem og fast arbeidssted). 5 Greitt er fyrir unna vinnudaga (veikindadagar og annað slíkt kemur til frádráttar). Taxtinn fyrir árið 2011 er 1,50 norskar krónur (NKR) fyrir hvern kílómetra að frádregnum neðri mörkum, 13.700 NKR (taxti fyrir árið 2010 samkvæmt Skatt Midt-Norge). Dæmið gæti því litið svona út hjá einstaklingi sem ekur 25 km hvora leið í eitt ár (230 vinnudagar): 25x2x1,5x230–13.700 = 3.550 NKR í skattafslátt á ári. Launþegar búsettir í Noregi sem sækja vinnu í öðru landi eiga rétt á afslætti vegna aukaútgjalda, þ.e. vegna matar, húsnæðis og heimsóknarferða (pendlerkostnader). Lögheimili skal vera skráð í Noregi og launþegar greiða skatt til viðkomandi sveitar- eða bæjarfélags. 6 Einnig þarf hann að þiggja laun samkvæmt launasamningi. Gerðar eru kröfur um fjölda ferða milli vinnustaðar og heimilis. Kröfurnar eru ólíkar eftir því hvort viðkomandi er einstaklingur eða fjölskyldumaður. 7
Neðanmálsgrein: 1
1     www.skat.dk: www.skat.dk/SKAT.aspx?oId=79751&vId=0
Neðanmálsgrein: 2
2     www.skat.dk: www.skm.dk/tal_statistik/skatter_og_afgifter/4740.html?newwindow=true
Neðanmálsgrein: 3
3     www.skatteverket.se/privat/svarpavanligafragor/avdrag/privatarbetsresorfaq/jagkorbiltillmittarbe tevilketavdragkanjagfa.5.10010ec103545f243e80001517.html
Neðanmálsgrein: 4
4     www.skatteverket.se/privat/svarpavanligafragor/avdrag/privatarbetsresorfaq/detfinnsingabussard arjagborvilkenavdragsrattharjagforarbetsresor.5.10010ec103545f243e80001532.html
Neðanmálsgrein: 5
5     www.skatteetaten.no/no/Brosjyrer-og-boker/Fradrag-for-arbeidsreiser---reiser-mellom-hjem-og- fast-arbeidssted/?chapter=57373#kapitteltekst
Neðanmálsgrein: 6
6     www.skatteetaten.no/no/Brosjyrer-og-boker/Pendlere-bosted-skatteforhold/?chapter=9659#kapit teltekst
Neðanmálsgrein: 7
7     www.skatteetaten.no/no/Brosjyrer-og-boker/Pendlere-bosted-skatteforhold/?chapter=9660#kapit teltekst