Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 591. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1225  —  591. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar
um bifreiðamál hreyfihamlaðra og félagslega aðstoð.


     1.      Hvenær hyggst ráðherra bregðast við erindi frá Sjálfsbjörg varðandi bifreiðamál hreyfihamlaðra og nauðsyn endurskoðunar laga og reglna um bifreiðastyrki?
    Erindi Sjálfsbjargar var svarað 17. apríl 2012.

     2.      Telur ráðherra að hægt sé að koma styrkjum til bifreiðakaupa aftur í það horf sem var árið 2000 en þá gat hjólastólanotandi greitt 50% af verði meðalfólksbíls með styrk (1 millj. kr.)?
    
Styrkur til bifreiðakaupa nemur 1.200.000 kr. samkvæmt gildandi reglum og eru styrkirnir veittir á fimm ára fresti. Styrkurinn er því að andvirði helmings kaupverðs bifreiðar sem metin er að verðmæti 2.400.000 kr. Verð fólksbíla er að sjálfsögðu mismunandi eftir tegundum, aldri og almennu ástandi þeirra. Ef miðað er við að sá sem uppfyllir skilyrði reglugerðarinnar geti greitt 50% af kaupverði fólksbíls með styrk til bifreiðakaupa þá gefur það augaleið að því hærra sem farið er í viðmiðunum hvað varðar verð fólksbíla því meiri fjárveitingar þarf til þessa málaflokks.
    Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins fengu 95 einstaklingar greidda 1.200.000 kr. styrki til bifreiðakaupa á árinu 2011 og námu útgjöld ríkisins vegna styrkjanna 114 millj. kr. á því ári. Frá þeim tíma er síðustu breytingar voru gerðar í málaflokknum í ársbyrjun 2009 hefur ekki verið svigrúm í fjárreiðum ríkisins til að auka við styrki vegna bifreiðakaupa fatlaðs fólks en áhersla verið lögð á að verja það kerfi sem fyrir er.

     3.      Telur ráðherra að leggja beri svokallaðar uppbætur á lífeyri niður og nota þá fjármuni til að hækka beina styrki samkvæmt lögum um félagslega aðstoð?

    Stuðningur til hreyfihamlaðra einstaklinga er bæði í formi uppbóta vegna reksturs bifreiða skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, sem áður kallaðist bensínstyrkur, og í formi styrkja vegna bifreiðakaupa skv. 1. og 3. mgr. 10. gr. laganna. Þá gildir um málaflokkinn reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, með síðari breytingum.
    Uppbætur vegna reksturs bifreiða greiðast hreyfihömluðum einstaklingum að öðrum skilyrðum uppfylltum og er tilgangur uppbótarinnar sá að mæta kostnaði við rekstur bifreiða þeirra sem eru hreyfihamlaðir. Tilgangur styrkja til kaupa á bifreiðum er aftur á móti að auðvelda hreyfihömluðum einstaklingum bifreiðakaup og eiga þeir einir rétt á þeim sem eru verulega hreyfihamlaðir, til dæmis bundnir hjólastól og/eða nota tvær hækjur.
    Sá hópur fatlaðs fólks sem á rétt á uppbótum á lífeyri sinn sem ætlað er að bæta þeim hluta þess kostnaðar sem til fellur vegna reksturs bifreiðar er fjölmennari en sá hópur sem einnig á rétt á styrkjum til bifreiðakaupa, en á árinu 2011 fengu 346 einstaklingar greidda uppbót vegna reksturs bifreiða. Verður því að telja að sú aðgerð að fella niður allar uppbætur til þessa hóps í því skyni að hækka styrki til þeirra sem eru mjög hreyfihamlaðir hefði í för með sér mikla lífskjaraskerðingu hjá þeim fjölmenna hópi hreyfihamlaðra sem í dag nýtur þessara uppbóta. Hefur það því ekki verið talið æskilegt að fella niður stuðning til hreyfihamlaðra sem veittur er í formi uppbóta á lífeyri þeirra enda verður að ætla að sá hópur sem nýtur þeirra sé í mikilli þörf fyrir þann stuðning.

     4.      Telur ráðherra að stokka beri umrætt kerfi upp á nýtt og beita lækkunum á aðflutningsgjöldum í stað beinna styrkja?

    Þessi málaflokkur er til skoðunar í tengslum við heildarendurskoðun almannatryggingalaga sem nú stendur yfir. Ráðuneytið mun í þeirri vinnu meta kosti þess og galla að stokka upp það kerfi sem er í gildi, meðal annars hvort til greina komi að beita lækkunum á vörugjöld af bifreiðum í stað beinna styrkja til hreyfihamlaðra einstaklinga. Mun verða leitað álits hagsmunasamtaka, þar á meðal Sjálfsbjargar, áður en ákveðið verður að ráðast í slíkar breytingar.