Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 777. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1290  —  777. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um hælisleitendur.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hversu margir hælisleitendur, að meðtöldum börnum, áttu umsóknir til meðferðar í árslok árin 2009, 2010 og 2011 hjá a) Útlendingastofnun, b) ráðuneytinu?
     2.      Hversu margir hælisleitendur eiga til meðferðar umsóknir hjá a) Útlendingastofnun, b) ráðuneytinu 1. maí 2012?
     3.      Hversu margir starfsmenn í hversu mörgum stöðugildum unnu hjá a) Útlendingastofnun, b) ráðuneytinu að úrlausn umsókna um hæli á sama tímabili, þ.e. í árslok 2009–2011 og 1. maí 2012?
     4.      Hvað kostar það ríkissjóð á ári að kosta uppihald hvers fullorðins hælisleitanda sem er í umsjá umönnunaraðila samkvæmt samningi?
     5.      Hvað má gera ráð fyrir að reyndur lögfræðingur hjá a) Útlendingastofnun, b) ráðuneytinu geti afgreitt á ári margar hælisumsóknir/kærur sem koma til efnismeðferðar?
     6.      Telur ráðherra að fjölgun starfsmanna og stöðugilda hjá a) Útlendingastofnun, b) ráðuneytinu geti þýtt lægri útgjöld fyrir ríkissjóð og skilvirkari og réttlátari málsmeðferð fyrir hælisleitendur?
     7.      Hvað telur ráðherra að ráða þurfi marga lögfræðinga hjá a) Útlendingastofnun, b) ráðuneytinu til að ná því markmiði að málsmeðferðartími hælisumsókna verði innan við a) þrír mánuðir, b) sex mánuðir (átt er við hælisumsóknir sem eru teknar til efnismeðferðar en ekki endursendingarmál á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins)?
     8.      Hvað áætla stjórnvöld að margir einstaklingar muni óska hælis sem flóttamenn á árinu 2012?
     9.      Hefur ráðuneytið látið kanna áhrif langs biðtíma á andlega og líkamlega heilsu hælisleitenda og hvernig sá kostnaður geti lent á ríkissjóði þegar og ef viðkomandi fær viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður?


Skriflegt svar óskast.