Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 789. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1583  —  789. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um heilsugæslu í framhaldsskólum.


     1.      Hvernig er háttað heilsugæslu í hverjum framhaldsskóla fyrir sig?
    Heilsugæsla í framhaldsskólum er mikilvæg og ávinningur hennar getur verið margþættur. Hún skapar möguleika á markvissri heilsuvernd og heilsueflingu. Auk þess sem ávinningur getur verið betra aðgengi að þjónustunni og leiðsögn um heilbrigðiskerfið. Framhaldsskólar flokkast í fjölbrautaskóla, iðnskóla/tækniskóla, menntaskóla og sérskóla.
    Á höfuðborgarsvæðinu eru alls 21 framhaldsskóli. Þar af eru almennir framhaldsskólar 13 og meiri hluti nemenda er undir 20 ára aldri. Í fimm af þessum skólum eru starfandi skólahjúkrunarfræðingar. Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Fjölbrautaskólanum í Ármúla og Menntaskólanum við Hamrahlíð teljast hjúkrunarfræðingarnir til starfsmanna skólanna. Við Menntaskólann í Reykjavík (MR) og Menntaskólann í Kópavogi (MK) er í gangi tilraunaverkefni í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem hjúkrunarfræðingur er í 55% stöðu við MR og 20% stöðu við MK. Aðra þjónustu sækja framhaldsskólanemar á næstu heilsugæslustöð.
    Á Suðurlandi er veitt þjónusta frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) til nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands og á Laugarvatni. Læknisþjónusta er tvisvar í viku á Laugarvatni og einu sinni í viku í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Til viðbótar þessu er einnig opin unglingamóttaka á HSU og er hún án endurgjalds.
    Á Austurlandi eru þrír framhaldsskólar, þ.e. Verkmenntaskóli Austurlands (VMA), Menntaskólinn á Egilsstöðum (ME) og Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað. Við VMA er hjúkrunarfræðingur í 10% stöðu og er með viðveru hálfan dag í viku. Ungmennum þar býðst sálfræðiþjónusta þeim að kostnaðarlausu ef þeir eru yngri en 18 ára en þeir sem eldri eru greiða fullt verð. Einnig hefur ungmennum þar verið boðið upp á svokölluð HAM-námskeið og ART-námskeið. Við ME hefur sá háttur verið hafður á að tvisvar á skólaári koma saman yfirlæknir, hjúkrunarstjóri, skólastjóri og námsráðgjafi og áætla þjónustuna og fyrirkomulag hennar fyrir veturinn. Þjónustan er breytileg og markmiðið að þróa stöðugt bestu aðferðir og leiðir. Nemendum þar stendur til boða að sækja eitt námskeið á ári í hugrænni atferlismeðferð í skólanum, hjá sálfræðingi á vegum Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Ákveðin eftirfylgd er með nemendum í ME því ef þeir eru veikir oftar en sex daga eru þeir boðaðir í viðtal til skólahjúkrunarfræðings til að ræða heilsufarsástand sitt með tilliti til fjarvista í námi. Ef þörf krefur er þeim vísað áfram og haft samband við foreldra. Í sumum tilvikum leiðir þessi eftirfylgd til þess að nemendur nýta sér það stuðningsúrræði að koma áfram í nokkur viðtöl til hjúkrunarfræðings. Einnig er boðið upp á foreldraviðtöl. Nemendum ME býðst einnig að hitta iðjuþjálfa 1–2 skipti án endurgjalds og er það þá einnig hluti af úrræðum til eftirfylgdar. Engin þjónusta hefur sérstaklega verið skipulögð við Hússtjórnarskólann á Hallormsstað.
    Á Akureyri eru tveir framhaldsskólar. Á Heilsugæslustöðinni á Akureyri (HAK) er rekin unglingamóttaka og er hún ætluð ungu fólki að 25 ára aldri. Auk þess hefur HAK skilgreint sérstaka lækna sem sinna nemendum sem þangað leita. Að öðru leyti stendur þeim til boða að sækja alla almenna þjónustu eins og öðrum aldurshópum.
    Á Vestfjörðum er Menntaskólinn á Ísafirði (MÍ). Heilsugæslan er örstutt frá MÍ og nemendur leita þangað eftir þjónustu. Fordæmi er fyrir því að skólahjúkrunarfræðingur fylgi nemendum eftir úr gunnskóla í menntaskóla ef þörf er á.
    Á Vesturlandi eru þrír framhaldsskólar, þ.e. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi (FVA), Menntaskóli Borgarfjarðar og Menntaskóli Snæfellinga. Við FVA er í gangi samstarfsverkefni heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) á Akranesi, FVA og Akraneskaupstaðar varðandi sálfræðiþjónustu við ungmenni 16–25 ára. Námsráðgjafar skólans hafa haft greiðan aðgang að heilsugæslulækni. Starfsmenn heilsugæslunnar hafa sinnt sérstökum forvarnaverkefnum þegar þau hafa komið upp en önnur skipulögð þjónusta hefur ekki verið fyrir hendi. Við menntaskóla Borgarfjarðar er boðið upp á heilsugæslu fyrir nemendur á vegum heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Í byrjun skólaárs fer hjúkrunarfræðingur í skólann og kynnir þjónustuna fyrir nemendum. Síðan er ákveðinn tími, 60–90 mín. á viku sem nemendur vita af og geta þá leitað til hjúkrunarfræðingsins án þess að eiga pantaðan tíma. Til að veita nemendum við Fjölbrautaskóla Snæfellinga þjónustu er í gangi ákveðin undirbúningsvinna. Nýlega var sett á fót þverfagleg nefnd sem ætlað er að vinna að velferð unglinga á Snæfellsnesi, m.a. fræðslu, forvörnum og heilsuueflingu. Í nefndinni, sem tekur til starfa í haust, eru tveir hjúkrunarfræðingar frá HVE, annar frá Ólafsvík og hinn frá Grundarfirði.
    Á Suðurnesjum er Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FSS). Þar er starfandi hjúkrunarfræðinur sem bíður upp á viðtalstíma fjóra daga vikunnar. Formleg heilsugæsla við FSS er ekki veitt af hendi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) en hafin er skipulagning og undirbúningur fyrir fræðslu og ráðgjöf sem áætlað er að fari fram með rafrænum hætti. Ætlunin er að bjóða ungu fólki á aldrinum 16–25 ára að senda fyrirspurnir í tölvupósti til hjúkrunarfræðings sem þá mun veita svör og/eða greiða leið þeirra að frekari heilbrigðisþjónustu. Stefnt er að því að hefja þá þjónustu í nóvember 2012. Sú þjónusta verður ekki einungis bundin þeim sem eru við nám í fjölbrautaskólanum. Til viðbótar þessu hefur geð- og sálfélagslegt teymi frá HSS sinnt ungu fólki í vanda á aldrinum 16–18 ára. Sú þjónusta er fyrir allt ungt fólk á þessum aldri á Suðurnesjum en ekki eingöngu þá sem stunda nám við FSS.
    Af þessu sést að aðeins er munur á hvaða leiðir eru farnar á hverjum stað. Að öðru leyti en að framan er greint sækja nemendur framhaldsskólanna heilbrigðisþjónustu á sömu staði og aðrir þegnar.

     2.      Er munur á þjónustu við nemendur framhaldsskóla sem eru yngri en 18 ára og þá sem eldri eru?
    Þó að heilsuvernd í formi skólaheilsugæslu sé ekki veitt innan framhaldsskólanna eins og nemendum í grunnskóla, þá er þjónusta við nemendur í framhaldsskólunum að mestu leyti svipuð hvort sem þeir eru yngri en 18 ára eða eldri. Rétt er samt að benda á að aðeins getur verið munur á eins og kom fram í svari við fyrsta lið fyrirspurnarinnar.

     3.      Á hvaða lögum byggist heilsugæsluþjónusta í framhaldsskólum og telur ráðherra ástæðu til að breyta lögunum og bæta heilsugæsluþjónustuna?
    Heilsugæsla í framhaldsskólum byggist á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, og lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Í lögum um framhaldsskóla er m.a. kveðið á um heilsuvernd, hollustuhætti og forvarnir. Í 36. gr. segir:
    „Skólameistari framhaldsskóla skal hafa samráð við heilsugæslustöð í nágrenni skólans um heilsuvernd og hollustuhætti. Framhaldsskóli og viðkomandi heilsugæslustöð geri samkomulag um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu sem veitt er nemendum.
    Framhaldsskólar skulu tryggja að í boði sé innan veggja hvers skóla heilnæmt fæði í samræmi við opinber manneldismarkmið.
    Framhaldsskólar skulu hvetja til heilbrigðs lífernis og heilsuræktar nemenda. Sérhver framhaldsskóli skal setja sér stefnu um forvarnir og skal sú stefna birt opinberlega. Skólinn skal gera grein fyrir því með reglubundnum hætti hvernig forvarnastarfi er háttað.“
    Að öðru leyti byggist heilsugæsluþjónusta við ungt fólk í framhaldsskólum á sömu lögum og önnur heilbrigðisþjónusta við þegna þessa lands.
    Velferðarráðherra telur þarft að skoða á hvern hátt sé enn frekar hægt að koma á móts við þarfir nemenda í framhaldsskólum um heilsugæsluþjónustu og eftirfylgd slíkrar þjónustu. Ekki ætti að þurfa neinar lagabreytingar til þess. Velferðarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra þyrftu í sameiningu að fylgja eftir framkvæmd fyrrnefndra laga varðandi samráð framhaldskóla og heilsugæslu.