Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 646. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1584 — 646. mál.
1. Hver er skoðun ráðherra á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
Í júní árið 1971 öðlaðist lagagildi hér á landi alþjóðasamningur um stjórnmálasamband sem gerður hafði verði í Vín áratug fyrr og jafnan kenndur við þá borg. Í 1. tölul. 41. gr. samningsins segir eftirfarandi: „Það er skylda allra þeirra, sem njóta forréttinda og friðhelgi, að virða lög og reglur móttökuríkisins, en þó þannig að forréttindi þeirra eða friðhelgi skerðist eigi. Á þeim hvílir einnig sú skylda að skipta sér ekki af innanlandsmálum þess ríkis.“
Mikilvægt er að hafa í huga að þessi grein Vínarsamningsins fjallar um skyldu sendiherrans sjálfs og starfsliðs hans, en ekki um almenna skyldu ríkja og aðila þjóðaréttar og sér hennar til dæmis skýran stað í yfirlýsingu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 24. október um meginreglur þjóðaréttar, o.fl.
Almennt er talið að erfitt sé að setja niður ákveðin mörk á milli þess sem er heimilt og þess sem greinin leggur bann við og að það hljóti ávallt að vera matskennt.
Spurt er um mat ráðherra á aðkomu sendiherra og sendiráðs að umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mitt mat er að sú umræða eigi einvörðungu að vera á forsendum Íslendinga sjálfra og þeirra einna. Annað þykir mér vera óeðlilegt og rangt.
2. Hvernig hyggst ráðherra tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
Ég hef beitt mér fyrir því, bæði á vettvangi ríkisstjórnar og innan veggja Alþingis, svo og í almennri umræðu í þjóðfélaginu, að umræðan um hugsanlega aðild Íslands að ESB verði í sem bestu jafnvægi og mun að sjálfsögðu leitast við að sjá til þess að lög og reglur sem um þessi mál gilda hvað varðar aðkomu erlendra hagsmunaaðila og heyra undir verksvið ráðuneytisins verði virt í hvívetna.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1584 — 646. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar um áhrif ESB á umræður um ESB-aðild.