Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 857. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1636  —  857. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um gjaldeyrisvarasjóð.

Frá Illuga Gunnarssyni.


     1.      Hversu mikil hætta stafar gjaldeyrisvarasjóði þjóðarinnar af:
              a.      breytingum á gengi evru,
              b.      skuldabréfum útgefnum í evrum?
     2.      Hversu mikill hluti gjaldeyrisvaraforðans er geymdur:
              a.      í bönkum á evrusvæðinu,
              b.      í evrópskum seðlabönkum?
     3.      Hvaða lán voru tekin til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar, hvenær voru þau tekin, hverjir eru gjalddagar þeirra, hver voru vaxtakjör þeirra lána og í hvaða myntum voru þau lán tekin?


Skriflegt svar óskast.