Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 178. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 295 — 178. mál.
1. Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í velferðarráðuneytinu og þar á undan í heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
Hjá velferðarráðuneytinu og þar á undan í heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu hefur verið ráðið í eftirfarandi störf, önnur en til afleysinga, án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum:
Samtals eru þetta því 25 ráðningar á árunum 2007–2011 en um er að ræða 24 starfsmenn þar sem einn starfsmaður var tvisvar verkefnaráðinn á þessu árabili.
2. Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?
Af þessum starfsmönnum eru níu nú starfandi í ráðuneytinu og þar af er einn starfsmaður sem ráðinn var tímabundið en var síðan ráðinn ótímabundið eftir að starfið var auglýst og þrír sem fluttir voru til ráðuneytisins frá stofnunum ráðuneytisins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 295 — 178. mál.
Svar
velferðarráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar um ráðningar starfsmanna.
1. Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í velferðarráðuneytinu og þar á undan í heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
Hjá velferðarráðuneytinu og þar á undan í heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu hefur verið ráðið í eftirfarandi störf, önnur en til afleysinga, án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum:
| Skýring | |
| Árið 2007: | |
| Sérfræðingur | Fyrst verkefnaráðinn tímabundið en svo ráðinn ótímabundið |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |

| Sérfræðingur | Ráðinn tímabundið sem starfsmaður nefnda (hlutastarf) |
| Sérfræðingur | Fyrst ráðinn tímabundið og svo ótímabundið |
| Sérfræðingur | Ráðinn tímabundið |
| Samtals 8 starfsmenn | |
| Árið 2008: | |
| Sérfræðingur | Ráðinn tímabundið sem starfsmaður nefndar (hlutastarf) |
| Móttökuritari | Ráðinn í framhaldi af árangurslausri auglýsingu, fyrst tímabundið |
| Sérfræðingur | Fluttur til ráðuneytisins frá úrskurðarnefnd almannatrygginga |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Fluttur til ráðuneytisins frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins |

| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið og verður svo starfsmaður fjögurra ráðuneyta |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Tímabundin ráðning |
| Samtals 10 starfsmenn | |
| Árið 2009: | |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið, kom frá forsætisráðuneyti |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Fyrst ráðinn tímabundið og svo samkvæmt auglýsingu |
| Samtals 5 starfsmenn | |
| Árið 2010: | |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Sérfræðingur | Verkefnaráðinn tímabundið |
| Samtals 2 starfsmenn | |
| Árið 2011: | |
| Samtals 0 starfsmenn |