Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 186. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 343  —  186. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um útdeilingu fjárframlaga
frá erlendum aðilum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig er háttað útdeilingu 596 millj. kr. fjárframlaga frá erlendum aðilum, sbr. lið 17.2.1 í sundurliðun 1, Tekjur A-hluta, í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2012: Styrkir frá Evrópusambandinu vegna aðildarumsóknar Íslands? Svarið óskast sundurliðað eftir:
     a.      ráðuneytum,
     b.      undirstofnunum innan ráðuneyta,
     c.      ferðum ráðherra á fundi Evrópusambandsins,
     d.      ferðum ráðuneytis- og skrifstofustjóra á fundi Evrópusambandsins,
     e.      ferðum annarra embættismanna, sundurliðað eftir undirstofnunum, á fundi Evrópusambandsins.


    Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflum.

a.     Sundurliðað eftir ráðuneytum.
Ráðuneyti

Millj. kr.

Efnahags- og viðskiptaráðuneyti
124,0
Mennta- og menningarmálaráðuneyti 124,0
Iðnaðarráðuneyti 37,0
Umhverfisráðuneyti 125,0
Utanríkisráðuneyti 186,0
Samtals 596,0
    
b.     Sundurliðað eftir undirstofnunum innan ráðuneyta.
Stofnun

Millj. kr.

Hagstofa Íslands
124,0
Framhaldsfræðsla: Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 124,0
Ýmis ferðamál: Háskólafélag Suðurlands, verkefnið Katla jarðvangur 37,0
Náttúrufræðistofnun Íslands: Natura 2000 samstarfsnetið 125,0
Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytis 186,0
Samtals 596,0

c.–e.     Sundurliðað eftir ferðum.
    Fjárframlag sem þetta er almennt ekki notað í ferðir og sundurliðun er því ekki til.