Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 176. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 344 — 176. mál.
1. Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í ráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
Tveir starfsmenn voru á árunum 2007 og 2008 ráðnir til tímabundinna starfa í ráðuneytinu án auglýsingar. Á árinu 2007 var ráðinn stjórnsýslusérfræðingur til að vinna að greinargerð um alþjóðlega þróunarsamvinnu og á árinu 2008 kom sérfræðingur frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands til starfa í ráðuneytinu á grundvelli vistaskipta skv. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 126/2008, um alþjóðlega þróunarsamvinnu. Aðrir hafa ekki verið ráðnir á framangreindu tímabili.
2. Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?
Báðir framangreindir starfsmenn hafa látið af störfum í ráðuneytinu, sá fyrrnefndi starfaði frá júlí 2007 til ársloka það ár og hinn síðarnefndi frá nóvember 2008 til nóvember 2009.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 344 — 176. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar um ráðningar starfsmanna.