Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 182. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 345 — 182. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í ráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?
Á tímabilinu sem um er spurt hafa tveir starfsmenn verið ráðnir án auglýsingar þegar afleysingastörf eru frátalin. Í öðru tilvikinu var starfsmaður ráðinn árið 2008 í sérverkefni og starfaði hjá ráðuneytinu fram á árið 2009. Í hinu tilvikinu var starfsmaður ráðinn til tímabundinna verkefna á árinu 2010. Báðir þessir aðilar hafa látið af störfum.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 345 — 182. mál.
Svar
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar um ráðningar starfsmanna.