Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 179. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 347  —  179. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar
um ráðningar starfsmanna.

     1.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og þar á undan í menntamálaráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?

Ár Fjöldi starfsmanna
ráðinn án auglýsingar
2007 1
2008 2
2009 3
2010 2
2011 1
Samtals 9

     2.      Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?
     Í ráðuneytinu starfa nú þrír starfsmenn í störfum sem ekki voru auglýst. Þeir starfa allir að tímabundnum verkefnum.