Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 462 — 260. mál.
1. Getur ráðherra upplýst hvort rétt sé að vandi íslenskra námsmanna í Svíþjóð, sem hafa ekki notið bóta almannatrygginga þar í landi eins og norrænn samningur gerir ráð fyrir, verði leystur með innleiðingu sérstakrar ESB-reglugerðar, líklega um áramótin næstu, sbr. svar sænska samstarfsráðherrans á nýafstöðnu þingi Norðurlandaráðs?
Samkvæmt ákvæðum núgildandi Norðurlandasamnings og almannatryggingareglugerða EES-samningsins falla einstaklingar á vinnumarkaði að meginstefnu til undir löggjöf starfslandsins en þeir sem eru utan vinnumarkaðar falla undir löggjöf búsetulandsins. Í því tilviki er í Norðurlandasamningnum samið um að miða við skráningu í þjóðskrá, leiði sérstakar ástæður ekki til annars. Því hafa íslenskir námsmenn sem skráðir eru í þjóðskrá á Norðurlöndum getað fengið þar búsetutengdar bætur. Nýjar ESB-reglugerðir tóku gildi árið 2010 milli ESB-landanna og komu í stað eldri almannatryggingareglugerða. Nýju reglugerðirnar hafa ekki tekið gildi milli Íslands og Noregs annars vegar og ESB-landanna hins vegar. Nú ríkir ákveðið millibilsástand þar sem mismunandi reglur gilda milli norrænu ríkjanna og það eitt og sér hefur valdið vandkvæðum. Einnig virðast Svíar hafa breytt fyrri framkvæmd síðastliðinn vetur og greina nú á milli þess hvort námsmaður hafi áður verið á vinnumarkaði eða ekki. Hafi viðkomandi áður verið í vinnu hefur verið vísað á síðasta starfsland hvað varðar réttindi, annars er farið eftir skráðri búsetu. Einnig kveða sænsk lög nú á um það að þeir sem komi til landsins vegna náms geti aldrei talist búsettir þar í landi. Snýr málið því ekki eingöngu að íslenskum námsmönnum.
Meginreglan hér á landi er sú að íslenskir námsmenn erlendis njóta tryggingaverndar á Íslandi. Undantekning frá þeirri meginreglu hefur verið tryggingavernd námsmanna sem skráðir eru í þjóðskrá með lögheimili á Norðurlöndunum vegna áðurgreinds ákvæðis Norðurlandasamningsins um almannatryggingar. Tímabilið 2009/2010 voru alls 2.375 íslenskir námsmenn við nám erlendis, þar af voru 1.270 við nám á Norðurlöndum, flestir í Danmörku eða 1.049, í Finnlandi 3, í Noregi 58 og í Svíþjóð 160 (Nordisk Statistisk Årsbog 2011, bls. 83). Kvartanir hafa borist frá nokkrum námsmönnum í Svíþjóð sem hafa kvartað undan synjun á búsetutengdum bótum, svo sem barnabótum, húsnæðisbótum og fæðingarstyrk.
Þegar áðurnefnd breyting á EES-samningnum hefur tekið gildi munu sömu reglur gilda milli allra EES-ríkjanna en það þýðir þó ekki að allir námsmenn öðlist bótarétt í námslandi. Frá velferðarráðuneytinu hafa fengist þær upplýsingar að þingsályktunartillaga þessa efnis verði lögð fram á vorþingi 2012.
2. Hefur Ísland innleitt viðkomandi reglugerð? Hefur hún verið innleidd annars staðar á Norðurlöndum?
Nýjar ESB-reglugerðir um samhæfingu almannatryggingakerfa milli aðildarríkjanna tóku gildi árið 2010 innan ESB og komu í stað eldri almannatryggingareglugerða sem hafa verið í EES-samningnum frá 1994. Með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr.76/2011 frá 1. júlí sl. var EES-samningnum breytt og nýju reglugerðirnar innleiddar. Breytingin hefur þó enn ekki tekið gildi en þegar hún tekur gildi munu sömu reglur gilda milli allra EES-ríkjanna. Gildistakan verður um leið og Ísland er búið að aflétta fyrirvaranum sem settur var við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Það gerist með samþykkt þingsályktunartillögu sem samkvæmt starfsáætlun velferðarráðuneytisins er gert ráð fyrir að verði lögð fram á vorþingi 2012 eins og áður kom fram.
3. Hvað felst í viðkomandi reglugerð í stuttu máli?
Reglugerðirnar um samhæfingu almannatryggingakerfa kveða á um rétt til almannatrygginga við frjálsa för milli aðildarríkja ESB og koma í stað reglugerða um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi og fjölskyldum þeirra sem flytjast milli aðildarríkjanna sem hefur verið hluti EES-samningsins frá 1994. Í nýju reglugerðunum eru meginreglur um jafnræði, samlagningu áunninna tímabila og greiðslur bóta milli landa styrktar og réttindi tryggðra einstaklinga aukin með ýmsum efnislegum breytingum. Þá er persónulegt gildissvið rýmkað frá núgildandi reglugerðum með því að nýju reglugerðirnar taka einnig til einstaklinga sem tryggðir eru í aðildarríki en hafa ekki verið á vinnumarkaði og einnig til námsmanna. Í nýju reglugerðunum eru ákvæði um það hvaða löggjöf skuli gilda um þá sem ekki eru á vinnumarkaði, þ.m.t. námsmenn, og er það löggjöf búsetulandsins. Þjóðskrárskráning er hins vegar ekki afgerandi við ákvörðun á búsetulandi. Í reglugerðunum er upptalning á atriðum sem líta skal til við ákvörðunina komi upp ágreiningur um þetta milli stofnana í ríkjunum. Líta skal til tengsla við landið og hvar meginhagsmunir viðkomandi teljist vera. Þegar um er að ræða námsmann skal m.a. litið til þess hvaða land fjármagnar námið. Í þeim tilvikum þegar almannatryggingaverndin telst vera í landinu sem námsmaðurinn kemur frá fer það eftir lögum þess lands hver réttur námsmannsins er. Öll norrænu ríkin veita yfirleitt „sínum“ námsmönnum tryggingavernd meðan á námi erlendis stendur, þ.m.t. Ísland, en reglurnar eru ekki eins. Þar sem nýju reglurnar hafa enn ekki gengið í gildi milli Íslands, Noregs og annarra norrænna landa á eftir að koma í ljós hvort Norðurlöndin hafa sama skilning á því hvernig beita skuli reglunum gagnvart námsmönnum. Enn fremur hafa reglurnar aðeins verið í gildi milli ESB-landanna í rúmt ár og eiga þau eftir meta og ræða reynsluna af framkvæmdinni og hvort breytinga sé þörf.
Að lokum má nefna að námsmenn erlendis halda yfirleitt lögheimili sínu hér á landi meðan á námi erlendis stendur, einnig þegar um nám í Evrópu er að ræða. Þeir njóta áfram tryggingaverndar hér á landi. Þeir sem fara til náms á Norðurlöndum eru hins vegar yfirleitt skráðir þar í þjóðskrá. Landið sem flutt er til ákveður hvort færa skuli viðkomandi á þjóðskrá og tryggingayfirvöldin ákveða hvort viðkomandi njóti tryggingaverndar þar eða teljist búsettur í skilningi tryggingalöggjafarinnar. Lög um almannatryggingar, sjúkratryggingar og fæðingar- og foreldraorlof á Íslandi heimila nú þegar undantekningu frá lögheimilisskilyrði hér á landi vegna námsmanna erlendis njóti viðkomandi ekki almannatrygginga í námslandi þar sem hann er skráður í þjóðskrá. Það er hins vegar ekki á valdi íslenskra stjórnvalda að bæta það upp þegar tryggingakerfi á Norðurlöndum veita önnur eða betri réttindi þeim sem þar njóta tryggingaverndar en fyrirfinnst hér á landi. Til þess þarf að koma á fót sams konar kerfi hér á landi.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 462 — 260. mál.
Svar
ráðherra norrænna samstarfsmála við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur
um íslenska námsmenn í Svíþjóð og bætur almannatrygginga.