Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 240. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 465  —  240. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar
um útsendingar Ríkisútvarpsins.


    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf. um þau atriði sem fyrirspurnin lýtur að og var stuðst við þær við gerð þessa svars.

     1.      Hvað líður framkvæmdum við að þétta dreifinet fyrir útsendingar Ríkisútvarpsins á landinu og eftir hvaða áætlunum er unnið?
    Ríkisútvarpið vinnur að því að styrkja FM-sendingar og er Vestfjarðaleið til sérstakrar skoðunar í því sambandi. RÚV fylgist vel með nýjungum í stafrænni hljóðvarpsdreifingu ásamt því að unnið er að undirbúningi stafrænna sjónvarpsútsendinga, en samkvæmt drögum að nýrri fjarskiptaáætlun er gert ráð fyrir að slökkt verði á hliðrænu dreifikerfi RÚV fyrir árslok 2014.

     2.      Hversu margir sveitabæir á landinu ná ekki útsendingum Ríkisútvarpsins?
    Tölur um þetta eru nokkuð breytilegar eftir því hver skilgreiningin er nákvæmlega og eru háðar nokkurri óvissu vegna búsetubreytinga. Hljóðvarpssendingar RÚV nást um land allt og til næstu miða, að því gefnu að langbylgjan fylli þau göt sem óhjákvæmilega eru í FM- dreifingunni. Hliðrænt dreifikerfi sjónvarps nær til 99,9% íbúa landsins. Um það bil 80 sveitabæir eru hins vegar á svokölluðu skuggasvæði sem eru þau svæði sem útsendingargeislinn nær ekki til. Ef tekið er mið af gervihnattasendingum fækkar þeim bæjum um helming, eða í 40.

     3.      Hvar á landinu eru lökustu skilyrðin fyrir útsendingarnar?
    
Almennt eru lökustu skilyrðin fyrir útsendingar svokölluð skuggasvæði. Þessi svæði er helst að finna fjarri alfaraleið, til að mynda í löngum og afskekktum dölum. Þessi svæði eru afar strjálbýl og eru víðsvegar um landið.

     4.      Á hve löngum kafla þjóðvegar 1 má ætla að útsendingar Ríkisútvarpsins náist ekki?
    
Útsendingar Ríkisútvarpsins nást um allan þjóðveginn, eða því sem næst. Hins vegar getur upplifun hlustenda af dreifingunni verið mjög misjöfn, eftir því hvort þeir eru með RDS-viðtæki í bílnum eða ekki. RDS-viðtæki leita sjálfvirkt uppi útsendingar en án slíkra viðtækja reynist mörgum ókleift að finna útsendingar, sem eru þó til staðar.

     5.      Greiða þeir landsmenn sem ekki ná útsendingunum gjald fyrir þjónustuna?
    
Samkvæmt 1. mgr. 11. gr. laga nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf., ber öllum einstaklingum sem eru skattskyldir skv. 1. gr. laga nr. 90/2003 að greiða sérstakt gjald sem skattstjórar leggja á samhliða álagningu opinberra gjalda, ásamt þeim lögaðilum sem skattskyldir eru og bera sjálfstæða skattaðild skv. 2. gr. laga nr. 90/2003. Undanþegnir gjaldinu eru einstaklingar sem ekki skulu sæta álagningu sérstaks gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra eða skulu fá það gjald fellt niður skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra.

     6.      Hvað má ætla að margir séu í þessum hópi?
    
Því miður eru ekki fyrirliggjandi upplýsingar sem segja til um hve margir einstaklingarnir eru en sé tekið mið af upplýsingum í svari við 2. lið fyrirspurnarinnar er ekki um marga einstaklinga að ræða sem undanþegnir eru sérstöku gjaldi skattstjóra og ná ekki útsendingum RÚV.