Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 259. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 496  —  259. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um norræna aðgerðaáætlun
um þjónustu við fólk með sjaldgæfa sjúkdóma.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hve langt er í að lokið verði gerð norrænnar aðgerðaáætlunar um þjónustu við fólk með sjaldgæfa sjúkdóma sem þing Norðurlandaráðs í Reykjavík 2010 fól norræna ráðherraráðinu að vinna?

    Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvort eða hvenær verður ráðist í gerð norrænnar aðgerðaáætlunar um þjónustu við fólk með sjaldgæfa sjúkdóma. Á vettvangi norræna ráðherraráðsins hafa um nokkurt skeið verið skoðaðar hugmyndir um að fella vinnu við slíka aðgerðaáætlun undir starf nefndar sem hefur fengið það hlutverk að vinna að tillögugerð um norrænt samstarf þegar um er að ræða hátækni í meðferð sjúkdóma. Ekki hefur fengist niðurstaða úr þeirri skoðun en málið mun verða tekið til frekari umfjöllunar á vettvangi norrænu embættismannanefndarinnar sem fjallar um velferðarmál í febrúar næstkomandi.
    Ráðherra lítur svo á mikilvægt sé að fá niðurstöðu í málið og mun á næstunni beita sér fyrir því að svo verði.