Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 637. máls.

Þingskjal 1120  —  637. mál.


Frumvarp til laga

um breytingu á lögum nr. 141/2001, um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda, með síðari breytingum (EES-reglur).

(Lagt fyrir Alþingi á 141. löggjafarþingi 2012–2013.)




1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
     a.      6. tölul. orðast svo: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB frá 6. nóvember 2001 um bandalagsreglur um lyf sem ætluð eru mönnum, 86.–100. gr.
     b.      8. tölul. orðast svo: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/122/EB frá 14. janúar 2009 um neytendavernd að því er varðar tiltekna þætti skiptileigusamninga, samninga um orlofskosti til langs tíma, endursölu- og skiptasamninga.
     c.      Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/ EB frá 12. desember 2006 um þjónustu á innri markaðnum.

2. gr.

    Í stað orðanna „tilskipun 98/27/EB“ í 1. málsl. 2. gr. laganna kemur: tilskipun 2009/ 22/EB.


3. gr.

    5. gr. laganna orðast svo:
    Lög þessi eru sett með hliðsjón af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2010 frá 12. mars 2010, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30, 10. júní 2010, bls. 38, um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/22/EB um að setja lögbann til verndar hagsmunum neytenda.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Frumvarp þetta er samið af innanríkisráðuneytinu og Neytendastofu. Það felur í sér að uppfærð er sú upptalning sem fram kemur í 1. gr. laga nr. 141/2001, um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda, varðandi þær tilskipanir sem hægt er að byggja lögbannsbeiðni eða málshöfðun á þegar um er að ræða verndun heildarhagsmuna neytenda á grundvelli laganna. Er þessi breyting gerð vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2010 frá 12. mars 2010 um að fella inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/22/EB frá 23. apríl 2009 um að setja lögbann til verndar hagsmunum neytenda.
    Ekki er talið að samþykkt frumvarpsins muni hafa mikil áhrif í ljósi þess hve litlar breytingar eru lagðar til að gerðar séu á lögunum, og tvær af þeim þremur Evrópugerðum sem vísað er til í 1. gr. frumvarpsins eru gerðir sem taka til sviðs sem þegar hafa gilt sambærilegar reglur um.
    Mikilvægt er að tilskipun 2009/22/EB sé innleidd við allra fyrsta tækifæri en íslenskum stjórnvöldum hafa borist formlegar athugasemdir (e. Letter of Formal Notice), dags. 28. mars 2012, og rökstutt álit (e. Reasoned Opinion), dags. 5. september 2012, frá Eftirlitsstofnun EFTA vegna skorts á innleiðingu. Ef ekki verður brugðist við álitinu getur stofnunin vísað málinu til EFTA-dómstólsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Með þessari grein er lagt til að tilvísunum 6. tölul. og 8. tölul. 1. gr. verði breytt og nýjum tölulið einnig bætt við greinina.
    Í fyrsta lagi er lagt til að tilvísun 6. tölul. til tilskipunar ráðsins 92/28/EBE frá 31. mars 1992 um auglýsingu lyfja sem ætluð eru mönnum verði felld brott og þess í stað komi tilvísun til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB frá 6. nóvember 2001 um bandalagsreglur um lyf sem ætluð eru mönnum.
    Í öðru lagi er lagt til að tilvísun 8. tölul. til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 94/47/EB frá 26. október 1994 um verndun kaupenda vegna tiltekinna þátta í samningum um kaup á réttindum til að nýta fasteignir á skiptileigugrunni verði felld brott og þess í stað komi tilvísun til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2008/122/EB frá 14. janúar 2009 um neytendavernd að því er varðar tiltekna þætti skiptileigusamninga, langtímasamninga um orlofstilboð, endursölu- og skiptasamninga.
    Í þriðja lagi er lagt til að bætt verði nýjum tölulið við 1. gr. sem vísi til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB frá 12. desember 2006 um þjónustu á innri markaðnum.

Um 2. gr.

    Breyting sú sem lögð er til með þessari grein stafar af því að tilskipun 98/27/EB hefur verið felld niður, sbr. 9. gr. tilskipunar 2009/22/EB.

Um 3. gr.

    Með þessari grein er lagt til að 5. gr. laganna verði breytt á þá vegu að í stað tilvísunar til ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 121/99 um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/27/EB verði vísað til ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2010.

Um 4. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.



Fylgiskjal.


Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 141/2001,
um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda,
með síðari breytingum (EES-reglur).

    Frumvarp þetta er flutt vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2010 um að fella inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/22/EB frá 23. apríl 2009, um setningu lögbanns til verndar hagsmunum neytenda. Það felur í sér að uppfærð er upptalning í lögum nr. 141/2001 á þeim tilskipunum sem hægt er að byggja lögbannsbeiðni eða málshöfðun á þegar um er að ræða verndun heildarhagsmuna neytenda á grundvelli laganna.
    Verði frumvarpið lögfest mun það ekki hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð.