Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 441. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1155 — 441. mál.
1. Hve miklar voru tekjur ríkissjóðs af sköttum og gjöldum tengdum mengun á árunum 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
2. Hve miklar tekjur er áætlað að ríkissjóður hafi af sköttum og gjöldum tengdum mengun á árinu 2012?
Ríkissjóður hefur á undanförnum árum ekki haft miklar tekjur sem rekja má til mengunar. Vissulega hafa efni sem menga verið skattlögð en tilgangurinn hefur sjaldnast verið að draga úr mengun þótt afleiðingin kunni í sumum tilvikum að hafa verið sú. Íslensk stjórnvöld hafa ekki beitt hagrænum hvötum nema í takmörkuðum mæli til þess að draga úr álagi á umhverfið en hafa þess í stað lagt meiri áherslu á leið svokallaðra „boða og banna“ (e. command and control) þar sem sett eru skilyrði fyrir efnainnihaldi með reglum. Flest gjöld sem lögð eru á mengandi efni eru lögð á til að mæta þeim kostnaði sem förgun þeirra hefur í för með sér. Nefna má Úrvinnslusjóð sem dæmi um starfsemi sem þannig er háttað um. Ríkissjóður hefur í þeim tilfellum ekki meiri tekjur en sem nemur kostnaði þótt það jafnvægi sé ekki nauðsynlega í gildi ár eftir ár enda eru mörg efni og vörur sem gjaldlögð eru með langan líftíma. Sveitarfélög hafa lagt á gjöld til að mæta kostnaði við förgun sorps og fráveitur og þar mega tekjur ekki vera umfram kostnað.
Undantekning frá tekjuöflun á grundvelli mengunar eru gjöld sem lögð eru á eldsneyti af
jarðefnauppruna. Þar er kolefnisgjald lagt á alla losun nema í flugi. Gjöld á eldsneyti sem notað er í landsamgöngum tengjast ekki kolefnainnihaldi og geta því tæpast talist með í þessari umfjöllun. Þar fyrir utan fellur sú „mengun“ sem stafar af losun koltvísýrings við bruna á eldsneyti tæpast undir hefðbundna skilgreiningu á mengun enda efnið sjálft alls ekki hættulegt. Þarna eru að baki hnattræn sjónarmið, eins og þekkt er, með það að markmiði að takmarka hlýnun andrúmslofts af manna völdum. Þá eru bifreiðagjöld lögð á í réttu hlutfalli við skráða kolefnislosun ökutækja og gefa þannig hagræn skilaboð í sama tilgangi.
Nokkur mengun í þrengri skilningi þess orðs fylgir brennslu jarðefnaeldsneytis. Er þar einkum um að ræða köfnunarefnisoxíð (NO x) auk rykmengunar. Þessi efni komast einkum í andrúmsloftið við bruna í díselvélum og yfirleitt í þeim mun meira mæli sem þær eru eldri enda hafa orðið miklar framfarir í hönnun véla. Möguleikar til skattlagningar á losun köfnunarefnisoxíðs (NO x) hafa verið kannaðir í tengslum við tillögugerð um svokallað grænt hagkerfi. Niðurstaðan er sú að það muni reynast erfitt. Varðandi NO x kemur meiri hluti losunarinnar núorðið frá fiskiskipum en einungis örfá þeirra eru svo stór að réttlætanlegt sé að skattleggja losunina en hún getur verið töluvert mismunandi.
Annað mengandi efni er brennisteinn (S) sem verður að brennisteinssýru í andrúmsloftinu og veldur súru regni. Megnið af brennisteini kemur frá jarðvarmavirkjunum en losun frá þeim hefur aukist gríðarlega undanfarin ár. Þar losnar það upphaflega sem hið illa lyktandi H 2S en endar sem brennisteinssýra. Ef til þess kæmi að skattleggja losun brennisteins er rétt að benda á að um þriðjungur af skattbyrðinni mundi leggjast á Orkuveitu Reykjavíkur eins og er vegna jarðvarmavirkjana. Æskilegt væri að draga úr brennisteini í olíu en óeðlilegt væri að taka einn mengunarvald sérstaklega fyrir en sleppa öðrum.
Skattar á losun NO x og SO 2 hafa verið lagðir á m.a. í Noregi og Svíþjóð. Þar hafa þeir þó ekki verið notaðir sem tekjuöflun fyrir ríkissjóð heldur sem leið til þess að draga úr losun efnanna vegna alþjóðlegra skuldbindinga sem Ísland hefur ekki undirgengist. Tekjur af þessum sköttum hafa verið notaðar í samráði við þær atvinnugreinar sem losuninni valda til að draga úr losun efnanna.
Notkun nagladekkja veldur staðbundinni mengun og hefur nokkrum sinnum verið rætt um að skattleggja hana til þess að draga úr notkuninni. Það hefur ekki verið gert en í stað þess hafa stjórnvöld, einkum Reykjavíkurborg, beitt auglýsingum í fjölmiðlum til að hafa áhrif á ákvarðanatöku einstaklinga.
Þrátt fyrir ofangreindar skýringar fylgir hér með tafla sem sýnir þær tekjur ríkissjóðs sem helst tengjast mengun. Eldsneytisskattar eru langstærsti tekjuliðurinn. Vörugjöld sem teljast umhverfisskattar er úrvinnslugjald sem lagt er á tiltekna vöruflokka við innflutning eða á innlenda framleiðslu. Gjaldinu er ráðstafað til Úrvinnslusjóðs til að standa straum af söfnun, endurnýtingu, úrvinnslu og förgun spilliefna.
Til viðbótar við fyrrgreint er rétt að minna á að nú er launagreiðendum heimilt að styðja starfsmenn sína sem vilja hjóla, ganga eða taka strætó í vinnuna um 7.000 kr. á mánuði án þess að þeir greiði skatt af því. Þannig er kominn á hagrænn hvati til að draga úr mengun og öðrum neikvæðum áhrifum mengunar.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1155 — 441. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
um tekjur ríkissjóðs af sköttum og gjöldum tengdum mengun.

Tekjur ríkissjóðs af tilteknum gjöldum 2007–2011 samkvæmt
ríkisreikningi og innheimta ársins 2012, millj. kr.
| 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | Innheimta 2012 | |
| Vörugjöld af bensíni og olíuvörum | 1.948 | 1.904 | 3.260 | 4.392 | 4.670 | 4.480 |
| Sérstakt vörugjald af bensíni | 7.220 | 6.833 | 7.731 | 7.272 | 7.131 | 7.477 |
| Kolefnisgjald | Ekki til | Ekki til | Ekki til | 1.914 | 2.062 | 3.061 |
| Olíugjald | 6.224 | 5.921 | 6.189 | 6.417 | 6.441 | 6.894 |
| Gjöld á eldsneyti | 15.392 | 14.658 | 17.189 | 19.995 | 20.304 | 21.901 |
| Vörugjöld, umhverfisskattar | 1.891 | 1.861 | 1.881 | 1.964 | 2.588 | 2.636 |