Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 676. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1225 — 676. mál.
a. 1. málsl. a-liðar orðast svo: Tekjur umfram 90.000 kr. á ári skv. C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu metnar að 50 hundraðshlutum við útreikning á elli- og örorkulífeyri, örorkustyrk, aldurstengdri örorkuuppbót og tekjutryggingu skv. 17.–19. gr. og 21.–22. gr. þessara laga.
b. 2. málsl. b-liðar orðast svo: Ellilífeyrisþegi getur valið að hafa 1.200.000 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna eða telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra sem miða að því að snúa við breytingum sem gerðar voru með lögum nr. 173/2008 og lögum nr. 70/2009. Hinn 1. janúar 2009 tók gildi lagabreyting sem fól í sér að í stað þess að helmingur fjármagnstekna umfram 90.000 kr. teldust til frádráttar við útreikning lífeyris, þá reiknuðust allar fjármagnstekjur umfram 90.000 kr. á ári til frádráttar. 1. júlí 2009 breyttust lögin svo að nýju á þann veg að frítekjumark ellilífeyrisþega við útreikning tekjutryggingar annars vegar og dvalarframlags hins vegar væri lækkað til muna eða úr 1.200.000 kr. í 480.000 kr. á ári. Það er mat flutningsmanns að rétt sé að færa umræddar breytingar til fyrra horfs til að styrkja stöðu ellilífeyrisþega.
Frumvarpið gerir því ráð fyrir þeirri breytingu á lögum um almannatryggingar að helmingur fjármagnstekna lífeyrisþega umfram 90.000 kr. teljist til frádráttar við útreikning á elli- og örorkulífeyri, örorkustyrk, aldurstengdri örorkuuppbót og tekjutryggingu. Með þessu er ákvæðið fært í sama horf og fyrir 1. janúar 2009. Þá er lagt til að að frítekjumark ellilífeyrisþega vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar verði hækkað úr 480.000 kr. á ári í 1.200.000 kr. Einnig er lagt til að heimild til að velja á milli frítekjumarks og þess að telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar verði endurvakin og lögð er til sambærileg breyting á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Frítekjumark heimilismanna við útreikning dvalarframlags skv. 26. gr. þeirra laga hefur ávallt verið það sama og frítekjumark ellilífeyrisþega og lagt er til að svo verði áfram.
Með frumvarpinu eru dregnar til baka þær skerðingar sem gerðar hafa verið á útreikningi tekna og frítekjumarki ellilífeyrisþega frá 1. jan 2009. Um er að ræða fyrsta skrefið í því að rétta hlut ellilífeyrisþega og telur flutningsmaður mikilvægt að áfram sé haldið á þeirri vegferð.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1225 — 676. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra
(hækkun frítekjumarks aldraðra o.fl.).
Flm.: Ólöf Nordal.
1. gr.
Breyting á lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum.
a. 1. málsl. a-liðar orðast svo: Tekjur umfram 90.000 kr. á ári skv. C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu metnar að 50 hundraðshlutum við útreikning á elli- og örorkulífeyri, örorkustyrk, aldurstengdri örorkuuppbót og tekjutryggingu skv. 17.–19. gr. og 21.–22. gr. þessara laga.
b. 2. málsl. b-liðar orðast svo: Ellilífeyrisþegi getur valið að hafa 1.200.000 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna eða telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar.
2. gr.
Breyting á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
3. gr.
Greinargerð.