141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1285 — 690. mál.
Frumvarp til laga
um rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði.
Flm.: Álfheiður Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir,
Margrét Tryggvadóttir, Þuríður Backman.
I. KAFLI
Markmið og gildissvið.
1. gr.
Markmið.
Rannsókn samkvæmt lögum þessum skal miða að því að leiða í ljós orsakir óvæntra atvika með það að markmiði að draga úr hættu á því að sams konar atvik eigi sér stað og afleiðingum þeirra.
Í rannsókn samkvæmt lögum þessum skal ekki tekin afstaða til þess hvort saknæm háttsemi hafi átt sér stað sem leiða kunni til skaðabótaskyldu.
Um rannsókn á meintri refsiverðri háttsemi í tengslum við óvænt atvik innan heilbrigðiskerfisins fer samkvæmt lögum um meðferð sakamála og er slík rannsókn óháð rannsóknum samkvæmt lögum þessum.
2. gr.
Gildissvið.
Með óvæntum atvikum í lögum þessum er átt við óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem valdið hafa sjúklingi tjóni eða hefðu getað valdið sjúklingi tjóni.
Með heilbrigðisþjónustu í lögum þessum er átt við hvers kyns heilsugæslu, lækningar, hjúkrun, almenna og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu, sjúkraflutninga, hjálpartækjaþjónustu og þjónustu heilbrigðisstarfsmanna innan og utan heilbrigðisstofnana sem veitt er í því skyni að efla heilbrigði, fyrirbyggja, greina eða meðhöndla sjúkdóma eða endurhæfa sjúklinga.
II. KAFLI
Um rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði.
3. gr.
Rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði.
Rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði skal starfa sjálfstætt og óháð stjórnvöldum, öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómsvaldi.
Rannsóknarnefndin skal sjálf innan fjögurra vikna eftir að tilkynning berst ákveða hvenær efni eru til rannsóknar óvæntra atvika samkvæmt lögum þessum.
Rannsókn á grundvelli laga þessara skal lokið innan árs frá því að ákvörðun skv. 3. mgr. var tekin. Ef fyrirséð er að rannsókn verði ekki lokið innan þeirra tímamarka skal gefin út bráðabirgðaskýrsla skv. 3. mgr. 14. gr.
Rannsóknarnefndin getur falið landlækni rannsókn einstakra mála samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu telji hún málið þess eðlis að ekki sé þörf á rannsókn rannsóknarnefndarinnar.
4. gr.
Skipun nefndarinnar.
Tveir nefndarmanna skulu hafa menntun á sviði læknisfræði eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi rannsóknarnefndarinnar. Einn nefndarmanna skal vera lögfræðingur og skal hann fullnægja skilyrðum til að vera skipaður í embætti héraðsdómara.
Um sérstakt hæfi nefndarmanna fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga.
5. gr.
Forstöðumaður.
Forstöðumaður ber ábyrgð á og stjórnar daglegum rekstri nefndarinnar og gætir þess að hann sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir á hverjum tíma.
Forstöðumaður ræður annað starfsfólk til nefndarinnar.
6. gr.
Rannsóknarstjóri.
Forstöðumaður skal hafa sérmenntun í læknisfræði.
Um sérstakt hæfi forstöðumanns fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga.
7. gr.
Þagnarskylda.
Við meðferð mála hjá rannsóknarnefndinni skal gæta nafnleyndar þeirra sem tengjast atviki sem til rannsóknar er.
8. gr.
Kostnaður.
III. KAFLI
Tilkynningar, kvartanir, rannsóknir mála o.fl.
9. gr.
Tilkynningarskylda.
Verði óvænt dauðsfall á heilbrigðisstofnun eða annars staðar þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt, sem ætla má að rekja megi til mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks við meðferð eða forvarnir vegna sjúkdóms, skal auk tilkynningar til rannsóknarnefndar og landlæknis skv. 1. mgr. tilkynna það til lögreglu í samræmi við ákvæði laga um dánarvottorð, krufningar o.fl.
10. gr.
Kvörtun til rannsóknarnefndar á heilbrigðissviði.
Kvörtun skal borin fram við rannsóknarnefnd án ástæðulauss dráttar. Séu meira en tíu ár liðin frá því að þau atvik gerðust sem eru tilefni kvörtunar er rannsóknarnefndinni rétt að vísa kvörtun frá nema ástæður mæli með því að mati formanns nefndarinnar að kvörtun sé tekin til meðferðar.
Kvörtun skal vera skrifleg og þar skal koma skýrt fram hvert sé tilefni hennar.
Heimilt er að kæra ákvörðun um frávísun kvörtunar skv. 2. mgr. til ráðherra.
11. gr.
Upplýsingaöflun.
Heimild 1. mgr. nær til persónugreinanlegra upplýsinga, þ.m.t. viðkvæmra persónuupplýsinga á borð við sjúkra- og krufningarskýrslur, auk annarra upplýsinga sem nefndin telur nauðsynlegar í þágu rannsóknar máls.
Meðferð og vinnsla nefndarinnar á persónuupplýsingum skal vera í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
12. gr.
Skýrslutökur, gagnaöflun.
Rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði skal eiga greiðan aðgang að heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna í þágu rannsóknar máls.
Rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði getur leitað umsagnar frá óháðum sérfræðingi eða sérfræðingum við rannsókn máls telji hún tilefni til.
13. gr.
Takmarkanir á aðgengi að upplýsingum.
Til trúnaðarganga í skilningi 1. mgr. teljast m.a. heilsufarslegar upplýsingar, umsagnir sérfræðinga sem aflað hefur verið við rannsókn máls, skýrslur aðila og annarra er koma fyrir nefndina.
Eingöngu skal veita umsagnaraðilum skv. 15. gr. aðgang að gögnum máls að því marki sem rannsóknarnefnd telur nauðsynlegt til að þeir geti veitt umsögn og skal virða nafnleynd þeirra sem tengjast rannsókn óvænts atviks.
Umsagnaraðilar og þeir sem starfa í þeirra þágu skulu virða þagnarskyldu um hvaðeina sem þeim verður kunnugt um vegna aðgangs að gögnum samkvæmt ákvæði þessu. Er umsagnaraðilum óheimilt að veita öðrum en þeim sem starfa í þeirra þágu við að veita umsögn upplýsingar um eða aðgang að slíkum gögnum.
IV. KAFLI
Skýrslugerð.
14. gr.
Skýrsla um rannsókn máls.
Heimilt er að birta lokaskýrslur opinberlega. Við slíka birtingu skal afmá allar persónugreinanlegar upplýsingar sem og tilvísanir til trúnaðargagna sem aflað hefur verið í þágu rannsóknar máls.
Ef fyrirséð er að rannsókn muni ekki ljúka innan árs frá því ákvörðun skv. 3. mgr. 3. gr. var tekin skal gefin út bráðabirgðaskýrsla um framgang rannsóknar og ástæður þess að rannsókn verði ekki lokið á tilskyldum tíma. Slík skýrsla skal ekki birt opinberlega og aðeins send þeim aðilum sem eiga ríkra hagsmuna að gæta.
15. gr.
Umsögn.
Umsagnaraðilar eru bundnir trúnaði um það sem fram kemur í drögum að lokaskýrslu.
16. gr.
Tillögur og ábendingar rannsóknarnefndarinnar.
Þeir sem tilmælum er beint til skulu taka tilhlýðilegt tillit til þeirra og hrinda í framkvæmd ef við á. Skulu þeir án tafar og eigi síðar en innan þriggja mánaða frá því að tilmælin bárust gera nefndinni grein fyrir því hvernig brugðist hafi verið við þeim eða hvers vegna ekki hafi verið brugðist við þeim.
Nefndin skal, innan tveggja mánaða frá því að henni var gerð grein fyrir viðbrögðum við tilmælum um úrbætur, tilkynna viðkomandi aðila hvort nefndin telji þau fullnægjandi. Telji hún svo ekki vera ber nefndinni að skýra ráðherra frá málinu.
Nefndin getur á hvaða stigi rannsóknar sem er, ef tilefni er til, vakið athygli viðkomandi aðila á atriðum sem fram hafa komið við rannsókn máls og mikilvægt er talið að komið sé á framfæri án tafar til að tryggja öryggi sjúklinga.
V. KAFLI
Endurupptaka mála o.fl.
17. gr.
Endurupptaka mála o.fl.
Heimilt er að kæra synjun á endurupptöku máls skv. 1. mgr. til ráðherra.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
18. gr.
Reglugerðarheimild.
19. gr.
Refsiheimild.
Hver sá sem upplýsir um innihald gagna skv. 13. gr. skal sæta sektum.
Brot gegn ákvæðum 9. gr. varðar sektum.
20. gr.
Gildistaka.
21. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
a. Á eftir orðunum „tilkynna landlækni“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og rannsóknarnefnd samkvæmt lögum um rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði.
b. 2. mgr. fellur brott.
c. Á eftir orðunum „tilkynningar til landlæknis“ í 3. mgr. kemur: og rannsóknarnefndar.
2. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
a. 2. mgr. orðast svo: Notendum heilbrigðisþjónustunnar er heimilt að bera fram formlega kvörtun til landlæknis telji þeir að framkoma heilbrigðisstarfsmanna við veitingu heilbrigðisþjónustu hafi verið ótilhlýðileg.
b. Í stað orðanna „Séu meira en tíu ár liðin“ í 2. málsl. 4. mgr. kemur: Sé meira en eitt ár liðið.
c. 5. mgr. fellur brott.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagt til að stofnuð verði sérstök rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði sem hafi það hlutverk að rannsaka óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem verða við veitingu heilbrigðisþjónustu og hafa valdið sjúklingum tjóni eða kunna að hafa valdið sjúklingum tjóni. Samkvæmt gildandi lögum er rannsókn slíkra atvika í höndum landlæknis, sbr. 9. og 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Með samþykkt frumvarpsins mun það hlutverk færast yfir til rannsóknarnefndarinnar. Nefndin mun ekki vera eiginleg stjórnsýslunefnd þar sem hún mun ekki hafa vald til töku stjórnvaldsákvarðana í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þeim sökum gilda stjórnsýslulög ekki um málsmeðferð nefndarinnar nema sérstaklega sé vísað til þeirra í ákvæðum frumvarpsins, en til að mynda er lagt til að um sérstakt hæfi nefndarmanna til rannsóknar einstakra mála fari eftir hæfisreglum II. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Rannsóknir á kvörtunum frá notendum heilbrigðisþjónustu hafa verið mikið til umræðu síðustu missiri og reynsla síðustu ára hefur sýnt að rannsóknir mála samkvæmt núgildandi skipulagi ganga hægt fyrir sig og jafnvel svo hægt að mál kunna að hafa fyrnst í einstaka tilvikum og tjónþolar þannig hugsanlega glatað bótarétti. Hafa þarf í huga að þegar mistök verða innan heilbrigðiskerfisins geta þau valdið alvarlegu líkamstjóni og ef rannsóknir slíkra mála tefjast úr hófi fram og ekki er brugðist við á skilvirkan og hlutlægan hátt dregur það þrótt úr sjúklingum sem verða fyrir líkamstjóni og aðstandendum þeirra og þannig getur meðferð kærumálsins sjálfs aukið á vanlíðan og sársauka viðkomandi. Hins vegar er alveg ljóst að innan heilbrigðiskerfisins verða alltaf gerð mistök og eru gæði þjónustunnar sem slíkrar ekki ástæða þess að frumvarp þetta er lagt fram. Það eru fremur viðbrögð „kerfisins“ og þau viðhorf sem ríkja innan þess sem kunna að koma í veg fyrir að mál séu nægilega upplýst en hafa verður í huga að það kann að vera sjúklingum og aðstandendum þeirra mikilvægara að fá fram sannleikann um það sem gerðist í ákveðnu máli en að fá greiddar bætur. Því er afar mikilvægt að rannsóknir mála á þessu sviði verði unnar á óhlutdrægan og faglegan hátt af hlutlausri nefnd svo atvik hvers máls upplýsist á fullnægjandi hátt og draga megi nauðsynlegan lærdóm af því sem betur má fara innan heilbrigðiskerfisins.
Bent hefur verið á ýmsar leiðir til að tryggja óháða frumrannsókn atvika, vanrækslu eða mistaka í heilbrigðisþjónustunni, m.a. þá að setja á stofn embætti umboðsmanns sjúklinga. Í október 2012 kynnti Auðbjörg Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur þá hugmynd sína í blaðagrein í Fréttablaðinu að setja á stofn sérstaka rannsóknarnefnd í anda rannsóknarnefnda samgönguslysa til að fjalla um mistök sem verða í heilbrigðisþjónustu. Um árabil hafa samgönguslys, þ.e. sjóslys, umferðarslys og flugslys, verið rannsökuð af sérstökum rannsóknarnefndum, sem nú hafa verið sameinaðar í eina, í þeim tilgangi fyrst og fremst að leita orsaka slysanna og læra af þeim, en ekki í þeim tilgangi að finna sökudólg eða draga einstaklinga til ábyrgðar.
Með frumvarpi þessu er lagt til að rannsókn óhappatilvika, mistaka og vanrækslu innan heilbrigðiskerfisins verði sett í nýjan og vandaðan farveg sem góð reynsla er af á sviði rannsókna samgönguslysa. Með stofnun sérstakrar rannsóknarnefndar á heilbrigðissviði er rannsókn mála gerð skilvirkari en verið hefur og notendum heilbrigðisþjónustunnar þannig veitt betri þjónusta. Markmið frumvarpsins er að skila betri árangri við að upplýsa um einstök mál sem upp koma innan heilbrigðiskerfisins og stuðla með því að auknum gæðum, öllum notendum heilbrigðiskerfisins til hagsbóta.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í 2. mgr. 1. gr. kemur fram að meginhlutverk rannsóknar á grundvelli frumvarpsins er fagleg könnun á orsökum óvæntra atvika sem leitt hafa eða hefðu getað leitt til tjóns fyrir sjúkling. Í rannsókn á grundvelli laganna skal leitast við að leiða í ljós orsakir slíkra atvika og draga fram lærdóm af þeim með það fyrir augum að draga úr hættu á því að sams konar atvik gerist aftur.
Í 3. mgr. kemur fram að í niðurstöðum rannsóknar á grundvelli frumvarpsins skuli ekki taka afstöðu til þess hvort saknæm háttsemi hafi átt sér stað sem leiða kunni til skaðabótaskyldu. Þar sem rannsókn á grundvelli frumvarpsins hefur það hlutverk fyrst og fremst að leiða í ljós orsakir tiltekins atviks og draga fram atriði sem læra má af og þannig bæta verklag verður það ekki talið samrýmanlegt að nefndin taki einnig afstöðu til þess hvort skaðabótaskylda sé fyrir hendi. Það getur verið flókið viðfangsefni að taka afstöðu til þess hvort skaðabótaskylda sé fyrir hendi vegna tjóns sem sjúklingur hefur orðið fyrir en í því efni þarf m.a. að taka afstöðu til þess hvort saknæm háttsemi hafi átt sér stað og hvort tjón sem orðið hefur teljist sennileg afleiðing þeirrar háttsemi. Áréttað er þó að það er eitt af hlutverkum rannsóknarnefndarinnar að taka afstöðu til þess hvort mistök hafi átt sér stað við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Eins og fram er komið er markmið rannsóknar á grundvelli frumvarpsins að leiða í ljós orsakir óvæntra atvika og draga lærdóm af þeim. Því er kveðið á um það í 4. mgr. 1. gr. að rannsókn á grundvelli laganna er ekki rannsókn á meintri refsiverðri háttsemi heldur fer slík rannsókn alfarið fram á grundvelli laga um meðferð sakamála, óháð rannsókn á grundvelli þessa frumvarps.
Um 2. gr.
Í 3. mgr. er heilbrigðisþjónusta nánar skilgreind en sú skilgreining er samhljóða skilgreiningu 2. tölul. 3. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.
Í 21. gr. frumvarpsins er að finna nauðsynlegar og samsvarandi tillögur að breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu.
Um 3. gr.
Rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði skal starfa sjálfstætt og óháð öðrum stjórnvöldum, rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómstólum. Mikilvægt er að rannsóknarnefndin sé algerlega sjálfstæð en við það fær rannsókn nefndarinnar nokkuð aðra stöðu en rannsókn landlæknis á grundvelli laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, þar sem landlæknir er lægra sett stjórnvald undir yfirstjórn velferðarráðherra. Mikilvægt er að geri nefndin tillögur til úrbóta í kjölfar rannsóknar sinnar sé hún óháð öðrum stjórnvöldum sem kunna að bera ábyrgð á einstökum þáttum sem tillögur nefndarinnar beinast að. Ákvæðið á sér hliðstæðu í lögum um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000, lögum um rannsókn flugslysa, nr. 35/2004, lögum um rannsóknarnefnd umferðarslysa, nr. 24/2005, sem og í lögum um rannsókn samgönguslysa, nr. 18/2013, en þau taka gildi 1. júní nk.
Í sjálfstæði nefndarinnar felst einnig að hún ræður því sjálf hvenær nefndin tekur óvænt atvik til rannsóknar eða felur landlækni rannsókn þeirra. Lagt er til að meginreglan verði sú að sem flest óvænt atvik sem leiða til tjóns fyrir sjúkling, sem og öll alvarleg atvik, verði rannsökuð af rannsóknarnefndinni. Nefndin getur falið landlækni rannsókn minni háttar mála telji hún málið ekki þannig vaxið að rannsókn rannsóknarnefndarinnar sé nauðsynleg. Samsvarandi ákvæði um mat á því hvenær rannsóknar rannsóknarnefndar sé þörf er að finna í 4. gr. laga um rannsókn samgönguslysa. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir því að nefndin taki til rannsóknar kvartanir vegna framkomu heilbrigðisstarfsmanna en landlæknir mun áfram sjá um rannsóknir slíkra mála.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Lagt er til að um sérstakt hæfi forstöðumanns gildi ákvæði stjórnsýslulaga eins og um nefndarmenn rannsóknarnefndarinnar, sbr. 4. gr. frumvarpsins.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Í 2. mgr. er lögð til tilkynningarskylda til lögreglu verði óvænt dauðsfall á heilbrigðisstofnun eða annars staðar þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt. Er ákvæðið samhljóða núgildandi 3. mgr. 10. gr. laga um landlækni og lýðheilsu.
Um 10. gr.
Kvörtun til rannsóknarnefndarinnar skal vera skrifleg og í henni skal koma skýrt fram hvert sé tilefni hennar. Hún skal koma fram án ástæðulauss dráttar en séu meira en tíu ár liðin frá því að atvik gerðust er rannsóknarnefndinni heimilt að vísa kvörtun frá nema formaður nefndarinnar meti það svo að rétt sé að kvörtun verði tekin til meðferðar. Þá er lagt til að heimilt verði að kæra frávísun kvörtunar til ráðherra.
Um 11. gr.
Ákvæðið á sér að hluta fyrirmynd í 26. gr. laga um rannsókn samgönguslysa.
Um 12. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um að rannsóknarnefndin skuli eiga greiðan aðgang að heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna í þágu rannsóknar máls. Ákvæðið er samhljóða 3. málsl. 3. mgr. 10. gr. laga um landlækni og lýðheilsu um samsvarandi heimild landlæknis.
Þá er í 3. mgr. almenn heimild fyrir rannsóknarnefndina til að leita sér aðstoðar og umsagnar hjá óháðum sérfræðingum telji hún tilefni til þess.
Um 13. gr.
Í 3. mgr. er kveðið á um undantekningu frá meginreglu 1. mgr. þar sem nefndinni er heimilt að veita umsagnaraðilum skv. 15. gr. aðgang að gögnum máls að því marki sem nefndin telur nauðsynlegt til að þeir geti veitt umsögn en gæta skal þess að virða nafnleynd þeirra sem tengjast rannsókninni. Þá er mælt fyrir um það í 4. mgr. að þeir aðilar sem veita umsagnir og starfsmenn þeirra eru bundnir þagnarskyldu.
Um 14. gr.
Í 3. mgr kemur fram að nefndin skuli gefa út bráðabirgðaskýrslu um mál ef fyrirséð er að rannsókn muni ekki ljúka innan þess tímaramma sem rannsókn er gefin skv. 4. mgr. 3. gr. Ber nefndinni þá að gera grein fyrir ástæðum þess að rannsókn muni ekki ljúka á tilskyldum tíma en skýrslunni er aðeins ætlað að vera til upplýsingar fyrir aðila og þá sem kunna að eiga verulegra hagsmuna að gæta.
Ákvæði um skýrslur rannsóknarnefndarinnar á að hluta til fyrirmynd sína í 32. gr. laga um rannsókn samgönguslysa, 14. gr. laga um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000, 17. gr. laga um rannsókn flugslysa, nr. 35/2004 og 12. gr. laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa, nr. 24/2005.
Um 15. gr.
Um 16. gr.
Ákvæðið á sér fyrirmynd í 3. mgr. 12. gr. laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa, nr. 24/2005, 18. gr. laga um rannsókn flugslysa, nr. 35/2004, 14. gr. laga um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000, og 34. og 35. gr. laga um rannsókn samgönguslysa.
Um 17. gr.
Um 18. gr.
Um 19. og 20. gr.
Um 21. gr.
Í ákvæðinu eru einnig lagðar til breytingar á 12. gr. laganna. Er það í samræmi við markmið frumvarpsins um að rannsóknir á atvikum, mistökum og vanrækslu flytjist frá landlækni til rannsóknarnefndar á heilbrigðissviði. Auk þess er lögð til sú breyting á greininni að kvörtun til landlæknis vegna framkomu heilbrigðisstarfsmanna megi vísa frá ef meira en eitt ár er liðið frá því að þau atvik gerðust sem eru tilefni kvörtunarinnar nema sérstakar ástæður mæli með því að kvörtunin sé tekin til meðferðar.