Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 372. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 430 — 372. mál.
Jafnréttisstofa getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstöð fyrirtækis og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum eða fyrirmælum Jafnréttisstofu. Við framkvæmd aðgerða skal fylgja ákvæðum laga um meðferð sakamála um leit og hald á munum.
Hver sá sem í tengslum við upplýsingaöflun á grundvelli 4. gr. og reglna sem settar eru samkvæmt þeim eyðileggur, falsar, kemur undan eða gerir á annan hátt ónothæf hvers konar gögn sem hafa þýðingu fyrir rannsókn Jafnréttisstofu skal sæta sektum eða fangelsi allt að þremur árum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Hver sá sem við upplýsingagjöf skv. 4. gr. veitir Jafnréttisstofu rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Sömu refsingu skal hver sæta sem að öðru leyti gefur Jafnréttisstofu rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar.
Gera má lögaðila sekt samkvæmt ákvæðum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir brot skv. 1. og 2. mgr. þessarar greinar.
Í 65. gr. stjórnarskrárinnar er mælt fyrir um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis og að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Engu síður er það staðreynd að kynbundinn launamunur er enn til staðar. Með kynbundnum launamun er að sjálfsögðu brotið í bága við jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar og enn fremur við lög nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, og hann misbýður réttlætiskennd fólks. Þessi mismunun leiðir til annars misréttis og hindrar þátttöku kvenna á jafnréttisgrundvelli í stjórnmála-, efnahags-, félags- og menningarlífi. Í júní sl. birti innanríkisráðuneyti frétt á vef sínum um að við könnun hafi komið í ljós að kynbundinn launamunur milli kvenna og karla í sérfræðingsstörfum hafi verið allt að 3,6%. Að teknu tilliti til menntunar, starfsaldurs og reynslu var óútskýrður launamunur 2,5%. Ráðuneytið brást við þessum niðurstöðum með því að leiðrétta muninn þar sem við átti en kynbundinn launamunur er enn víða til staðar. Í launakönnun SFR á þessu ári kom í ljós að konur hefðu 21% lægri laun en karlar. Að teknu tilliti til ýmissa þátta, svo sem aldurs, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags, starfsstéttar og menntunar var munur 12% sem er einu prósenti minna en í fyrra en tveimur prósentum meira en árið 2010 þegar munurinn mældist 10%. Kynbundinn launamunur í VR mældist 9,4% fyrir árið 2012 og hjá BSRB mældist hann 13,1%. Í báðum tilfellum er um óútskýrðan launamun að ræða þegar tekið hefur verið tillit til þeirra þátta sem nefndir eru hér að framan. Hinn 24. október sl. var undirrituð viljayfirlýsing stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um að eyða kynbundnum launamun þar sem mikilvægi þess að vinna að launajafnrétti kynjanna er áréttað. Aðilar yfirlýsingarinnar settu í þessum tilgangi á fót aðgerðarhóp til tveggja ára með möguleika á framlengingu.
Árið 2004 var sambærilegt frumvarp lagt fram og í greinargerð þess var m.a. farið yfir mikilvægi þess að leiðrétta launamun kynjanna sem þá var talinn vera á bilinu 14–18%. Ljóst er að þrátt fyrir að mikið hafi verið talað, ritað og aðhafst er enn til staðar kynbundinn launamunur og þó hann hafi lækkað lítillega undanfarin ár má mun betur ef duga skal. Árið 2011 samþykkti Alþingi áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára, nr. 30/139. Ein af þeim tillögum sem þar er gerð er að launamisrétti kynjanna verði útrýmt á tímabilinu. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem áætlun um slíkt er gerð. Í skýrslu félagsmálaráðherra um framkvæmd þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem lögð var fyrir Alþingi í júní 1998 (þingskjal 1555, 724. mál 122. þings) kemur fram að skipaður hafi verið starfshópur sem ætlað var að safna upplýsingum og vinna að tillögum um starfsmat sem tæki til að draga úr launamun karla og kvenna. Í samsvarandi skýrslu frá 2002 (þingskjal 1290, 732. mál 127. þings) kemur fram að vinnu við starfsmatið hafi lokið árið 1999 auk þess sem þar kemur fram að á árinu 2000 hafi verið gerð yfirlýsing þar sem „áréttuð er stefna ríkisins að jafna þann launamun karla og kvenna sem ekki er hægt að útskýra nema á grundvelli kyns.“ Í skýrslu félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna 2002–2004 sem lögð var fram í apríl 2004 (þingskjal 1332, 874. mál 130. þings) er launamunur kynjanna enn til umræðu og lagt til að kannað verði í hvaða mæli hann er enn til staðar í samfélaginu. Í þeim áætlunum sem gerðar hafa verið í jafnréttismálum undanfarin ár hefur kynbundinn launamunur verið til umfjöllunar svo og hvernig ná megi fram launajafnrétti kynjanna. Af framangreindu má sjá að lítið hefur miðað.
Ljós er að breyta þarf hugsun og viðmiðum samfélagsins og auka skilning á jafnrétti og mikilvægi þess.
Karlar eru „viðmið“ (norm) en konur „frávik“ og á þeim hugmyndum byggist óskráður kynbundinn og karllægur samfélagssamningur sem stjórnar aðstæðum kynjanna félagslega, efnahagslega og pólitískt. Allt eru þetta þekktar staðreyndir og það er einnig staðreynd að vilji er allt sem þarf til að koma á raunverulegu jafnrétti. Ljóst er að lagasetningar og áætlanagerð hafa ekki dugað til og sértækar aðgerðir hafa ekki heldur skilað þeim árangri sem stefnt var að. Jafnréttissinnar hafa því í auknum mæli beint sjónum sínum að kerfislægri mismunun kynjanna en góð stjórnvaldstæki þarf til að vinna á rótgrónum stöðumun kynjanna á vinnumarkaði. Að veita opinberri stofnun heimild til að afla gagna og vinna úr þeim upplýsingar er nauðsynlegt tæki til að greina stöðuna til að geta gripið til aðgerða.
Frumvarp þetta byggist að nokkru leyti á frumvarpi sem lagt var fram á 130. löggjafarþingi þar sem lagt var til að Jafnréttisstofa fengi auknar heimildir til að afla upplýsinga til að gegna lögbundnu hlutverki sínu. Síðan það frumvarp var lagt fram hefur lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna verið breytt þónokkuð og ný lög nr. 10/2008 komin í stað þeirra eldri, nr. 96/2000. Margar af þeim breytingum sem lagðar voru til í frumvarpinu sem lagt var fram á 130. þingi eiga sér hliðstæður í ákvæðum gildandi laga. Þar var þó jafnframt lagt til að Jafnréttisstofa fengi heimild til að gera nauðsynlegar athuganir á starfsstöð fyrirtækis og leggja þar hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögunum eða fyrirmælum Jafnréttisstofu. Í frumvarpi þessu er því lagt til að Jafnréttisstofa fái slíka heimild enda brýnt að stofan hafi nægilegar heimildir til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu.
Um viðlíka heimildir er mælt fyrir í mörgum öðrum lögum, svo sem skattalögum, samkeppnislögum og lögum um eftirlit með fjármálastarfsemi. Orðalag ákvæðanna er sótt til 20. gr. og 41. gr. b, samkeppnislaga, nr. 44/2005. Er Jafnréttisstofu fengin heimild til að gera nauðsynlegar athuganir á starfsstöð fyrirtækis og leggja hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögunum eða fyrirmælum Jafnréttisstofu. Þá er til samræmis við 41. gr. b samkeppnislaga lagt til að lögfest verði ákvæði þess efnis að tiltekin háttsemi, sem ætlað er að torvelda eða spilla fyrir rannsóknaraðgerðum Jafnréttisstofu, verði lýst refsiverð. Sambærilegt ákvæði var lögfest í samkeppnislög árið 2007. Verknaðarlýsing brotsins felur í sér spillingu sönnunargagna með virkum hætti. Almennt er slík háttsemi skaðlegri rannsóknarhagsmunum en röng upplýsingagjöf og er því gerð refsing við brotinu en slíkt er nýjung í jafnréttislöggjöf. Í ákvæðinu er því kveðið á um að hver sá sem við upplýsingagjöf skv. 4. gr. veitir Jafnréttisstofu rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Í samræmi við ákvæði samkeppnislaga er kveðið á um að gera megi lögaðila sekt samkvæmt ákvæðum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. greinarinnar.
Ekki verður annað séð en að jafn brýnt sé að tryggja að Jafnréttisstofa, líkt og önnur stjórnvöld, geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og tryggt báðum kynjum stjórnarskrárbundin mannréttindi. Mikilvægt er jafnframt að skýrt sé að löggjafinn telji brot á jafnréttislögum jafn gróf og alvarleg og brot gagnvart þeim lögum sem talin hafa verið upp. Með því að tryggja Jafnréttisstofu sambærilegar heimildir og öðrum eru gefin skýr skilaboð löggjafans til samfélagsins í heild um að kynbundin mismunun sé gríðarlega alvarleg og verði ekki liðin.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 430 — 372. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla,
með síðari breytingum (auknar heimildir Jafnréttisstofu til upplýsingaöflunar).
Flm.: Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir, Siv Friðleifsdóttir.
1. gr.
Jafnréttisstofa getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstöð fyrirtækis og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum eða fyrirmælum Jafnréttisstofu. Við framkvæmd aðgerða skal fylgja ákvæðum laga um meðferð sakamála um leit og hald á munum.
2. gr.
Hver sá sem í tengslum við upplýsingaöflun á grundvelli 4. gr. og reglna sem settar eru samkvæmt þeim eyðileggur, falsar, kemur undan eða gerir á annan hátt ónothæf hvers konar gögn sem hafa þýðingu fyrir rannsókn Jafnréttisstofu skal sæta sektum eða fangelsi allt að þremur árum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Hver sá sem við upplýsingagjöf skv. 4. gr. veitir Jafnréttisstofu rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Sömu refsingu skal hver sæta sem að öðru leyti gefur Jafnréttisstofu rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar.
Gera má lögaðila sekt samkvæmt ákvæðum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir brot skv. 1. og 2. mgr. þessarar greinar.
3. gr.
Greinargerð.