Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 257. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Prentað upp.

Þingskjal 465  —  257. mál.
Leiðrétt tafla.




Svar



fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvars um kjör öryrkja.


     1.      Hverjar voru meðaltekjur 75% öryrkja úr lífeyrissjóðum á mánuði samkvæmt skattframtölum árið 2012 fyrir árið 2011?
    Meðaltekjur fyrir tekjuárið 2011 voru 100.023 kr.

     2.      Hve stór hluti 75% öryrkja naut ekki tekna úr lífeyrissjóði viðkomandi ár?
    53% öryrkja nutu ekki tekna úr lífeyrissjóði.

     3.      Sé þeim öryrkjum sem nutu lífeyristekna skipt í fimm jafnstóra hópa eftir tekjum úr lífeyrissjóði, hverjar voru þá meðaltekjur hvers hóps um sig á mánuði, sbr. upplýsingar úr skriflegu svari fjármálaráðherra í þingskjali 1421 á 130. löggjafarþingi?
    Eftirfarandi tafla sýnir meðaltekjur öryrkja á mánuði úr lífeyrissjóði, skipt í fimm jafnstóra hópa.

I II III IV V
14.251 46.488 79.909 124.277 235.192