Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 466. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 600 — 466. mál.
Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að láta gera fýsileikamat á ferjusiglingum yfir Arnarfjörð samhliða opnun á jarðgöngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar sem mundi hraða samtengingu norður- og suðurhluta Vestfjarða allt árið og brúa þann tíma sem tekur að ljúka varanlegum heilsárssamgöngum um Dynjandisheiði milli norður- og suðurhluta Vestfjarða.
Vestfirðingar hafa barist fyrir bættum samgöngum innan fjórðungsins um langt árabil. Hægt hefur þótt miða þó að vissulega hafi stórir áfangar náðst í jarðganga- og vegagerð sem skipt hafa sköpum fyrir búsetu á svæðinu.
Mikilvægi þess að tengja Vestfirði innbyrðis með heilsárssamgöngum milli norður- og suðurhluta Vestfjarða er óumdeilt og hefur verið baráttumál Vestfirðinga til fjölda ára. Dýrafjarðargöng eru komin inn á samgönguáætlun fyrir árið 2015 sem er mikið fagnaðarefni. Með þessari tillögu er horft til þess að brúa þann tíma sem tekur að ljúka varanlegri vegagerð um Dynjandisheiði. Því er sjálfsagt og eðlilegt að meta kosti við að ráðast strax í úrbætur á samgöngum í beinu framhaldi af opnun Dýrafjarðarganga og flýta þar með markmiðum um heilsárssamgöngur milli norður- og suðurhluta Vestfjarða. Ekki liggur fyrir hversu langan tíma tekur að byggja upp Dynjandisheiði eftir opnun Dýrafjarðarganga og því er mikilvægt fyrir allt svæðið að Dýrafjarðargöngin nýtist strax sem best fyrir atvinnuuppbyggingu á svæðinu og allt samstarf og mannlíf innan Vestfirðingafjórðungs.
Byggð á Vestfjörðum hefur átt undir högg að sækja lengi og mikilvægt er að tengja sem fyrst Vestfirði innbyrðis svo möguleiki verði á að hækka þjónustustigið með því að efla þá sem eitt þjónustu- og atvinnusvæði, auka samstarf milli sveitarfélaga og íbúa svæðisins og byggja upp menntun og háskólastarf á Vestfjörðum. Horfa verður til þess að um þessar mundir er mikill uppgangur í atvinnumálum á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar má nefna uppbyggingu í laxeldi og stækkun Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, fjölgun ferðamanna og byggingu hótels á Patreksfirði sem mun styrkja mjög alla ferðaþjónustu á svæðinu. Öflug sjávarútvegsfyrirtæki eru bæði á sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum, því munu þjónustuaðilar fyrir greinina og efnahagslífið allt styrkjast mjög þegar svæðið verður eitt þjónustu- og atvinnusvæði.
Til þess að koma til móts við hraða uppbyggingu atvinnulífs á sunnanverðum Vestfjörðum og nýta og styrkja þá fjölbreyttu þjónustu sem nú þegar er til staðar á norðanverðum Vestfjörðum er brýnt að óháð úttekt á ferjurekstri yfir Arnarfjörð liggi fyrir sem fyrst og á þeirri aðstöðu sem fyrir hendi þyrfti að vera svo koma mætti á ferjusiglingum í kjölfarið á opnun Dýrafjarðarganga. Tenging milli suður- og norðurhluta Vestfjarða er báðum þessum svæðum bráðnauðsynleg svo þau megi eflast og dafna. Það er því mikilvægt að skoða raunhæfa möguleika á að heilsársvegtengingu verði flýtt og hvernig þeim verði komið á sem fyrst. Mikilvægt er að hlúa að þeim vexti sem nú er í atvinnuuppbyggingu á sunnanverðum Vestfjörðum og gefa svæðinu raunhæf fyrirheit um úrbætur í samgöngumálum.
Ferjusiglingar yfir Arnarfjörð samhliða opnun Dýrafjarðarganga gæti verið raunhæfur kostur og lausn a.m.k. til nokkurs tíma og þar með áminning um að hraða þyrfti uppbyggingu heilsársvegtengingar á landi.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 600 — 466. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um greiningu og fýsileikamat á ferjusiglingum yfir Arnarfjörð
samhliða opnun jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.
Flm.: Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Árni Þór Sigurðsson.
Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að láta gera fýsileikamat á ferjusiglingum yfir Arnarfjörð samhliða opnun á jarðgöngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar sem mundi hraða samtengingu norður- og suðurhluta Vestfjarða allt árið og brúa þann tíma sem tekur að ljúka varanlegum heilsárssamgöngum um Dynjandisheiði milli norður- og suðurhluta Vestfjarða.
Greinargerð.