Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 217. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 606  —  217. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar
um lagfæringu þjóðvegarkafla á Sauðárkróki.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvenær áætlar ráðherra að lokið verði við lagfæringu á þjóðvegarkafla sem liggur í gegnum Sauðárkrók en hafist var handa við breytingu á legu kaflans árið 2003?

    Þingsályktun um samgönguáætlun 2011–2022 var samþykkt á Alþingi þann 19. júní 2012. Við samþykkt þingsályktunartillögunnar var ljóst að vegna fjárskorts varð að líta framhjá mörgum brýnum verkefnum á sviði vegagerðar um allt land og þar á meðal þeim vegarkafla sem spurst er fyrir um.
    Um þessar mundir er verið að undirbúa endurskoðun samgönguáætlunar 2013–2016. Fyrir liggur að um einhvern niðurskurð verður að ræða á vegaframkvæmdum frá því sem ákveðið var með samgönguáætlun þann 19. júní síðastliðinn.
    Heildarendurskoðun samgönguáætlunar 2015–2026 fer fram innan tveggja ára og verður þá unnt að svara nánar hvenær af framkvæmdum getur orðið á þessum kafla þjóðvegarins gegnum Sauðárkrók.
    Því er ekki fyrirhugað að ráðast í þessa tilteknu framkvæmd á næstunni.