Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 223. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 608 — 223. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða áform eru uppi með stórskipahöfn í Þorlákshöfn?
2. Kemur til greina að flýta ákvarðanatöku um stórskipahöfn í Þorlákshöfn og þar með uppbyggingu slíkrar hafnar?
Á undanförnum 12 árum hefur Siglingastofnun í tvígang gert frumtillögur að stórskipahöfn í Þorlákshöfn. Tillögur þessar byggðu á takmörkuðum rannsóknum. Markmið með tillögugerðinni var tvíþætt, annars vegar að geta lagt mat á kostnað við framkvæmdirnar og hins vegar að draga fram veikleika og áhættuþætti slíkrar hafnargerðar. Þeir þættir sem erfiðast er við að eiga við Þorlákshöfn eru öldu- og sogahreyfingar innan hafnar og í innsiglingu ásamt hönnunarölduhæð við brimvarnargarða. Því þarf að gera ítarlegar og kostnaðarsamar rannsóknir til að ákvarða hvernig standa eigi að uppbyggingu stórskipahafnar í Þorlákshöfn.
Til að grundvöllur sé fyrir að ráðast í vinnu við uppbyggingu stórskipahafnar í Þorlákshöfn þarf að vera mikil þörf fyrir slíka fjárfestingu eða miklar og skýrar hugmyndir um uppbyggingu, eins og fyrir hvaða starfsemi eigi að byggja upp höfn í Þorlákshöfn. Það sama er uppi á teningnum við ákvörðun um kostnaðarsamar rannsóknir, þar þarf að liggja fyrir við hvaða starfsemi þær eiga að miða.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 608 — 223. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um stórskipahöfn.