Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 507. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 660  —  507. mál.




Fyrirspurn



til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um uppgreiðslur ólögmætra gengistryggðra lána.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Er vitað hversu margir einstaklingar eða lögaðilar greiddu upp ólögmæt gengistryggð lán til SPRON á tímabilinu 30. júlí 2008 til 21. mars 2009 og geta því ekki lýst yfir skuldajöfnuði vegna ákvæðis 1. mgr. 100. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991?
     2.      Er vitað hversu margir einstaklingar eða lögaðilar greiddu upp ólögmæt gengistryggð lán til Frjálsa fjárfestingarbankans hf. á tímabilinu 23. mars 2009 til 23. júní 2009 og geta því ekki lýst yfir skuldajöfnuði vegna ákvæðis 1. mgr. 100. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991?


Skriflegt svar óskast.