Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 277. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 678  —  277. mál.




Svar



forseta Alþingis við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um skrifstofur alþingismanna.


     1.      Hvers vegna hafa alþingismenn ekki þær skrifstofur sem Alþingi hefur yfir að ráða sem standa næst Alþingishúsinu? Hefur verið tekið tillit til tímasparnaðar og öryggissjónarmiða þegar þingmönnum hefur verið úthlutað skrifstofum?
    Þegar skrifstofum alþingismanna er úthlutað, að jafnaði eftir hverjar alþingiskosningar, hefur verið reynt að tryggja að unnt sé að koma hverjum þingflokki, ásamt starfsmönnum hans, auk sameiginlegs fundarrýmis, fyrir í sameiginlegu húsnæði. Jafnframt hefur þurft að tryggja aðgengi fatlaðra, auk varamannsherbergja á sama svæði. Ekkert húsnæði sem „stendur næst Alþingishúsinu“ uppfyllir þessar kröfur.

     2.      Hvað kostar að flytja allar skrifstofur alþingismanna í þau hús sem Alþingi á sem standa næst þinghúsinu og að flytja skrifstofur starfsmanna þingsins í skrifstofur þingmanna?
    Engir útreikningar hafa farið fram á því hvað slíkir flutningar mundu kosta, enda væru þeir ekki framkvæmanlegir.
    Í þeim skrifstofuhúsum sem standa á Alþingisreitnum, auk Þórshamars við Templarasund, eru nú tæplega 40 starfsmenn með vinnuaðstöðu. Í því húsnæði sem ætlað er alþingismönnum, starfsmönnum þingflokka og riturum þingmanna, auk varamanna, eru 73 skrifstofur eða vinnurými. Þar fyrir utan eru svo fundarherbergi hvers þingflokks. Skrifstofu- og vinnurými þingmanna þarf að meðaltali að vera stærra en hjá starfsmönnum.

     3.      Hefur verið gerð úttekt á öryggismálum er snúa að ferðum alþingismanna til og frá skrifstofum sínum í þinghúsið?
    Öryggismál Alþingis eru í sífelldri athugun hjá skrifstofu þingsins, þar á meðal þeir þættir er snúa að ferðum alþingismanna til og frá skrifstofum sínum í þinghúsið. Eitt mikilvægasta atriðið í þeim efnum er góð lýsing á Austurvelli og á svæðinu frá Aðalstræti að þinghúsi, bæði fyrir þingmenn sjálfa og fyrir öryggismyndavélar þingsins. Fundir, sem forseti og starfsmenn hafa haldið með fulltrúum Reykjavíkurborgar til að þrýsta á um viðunandi lýsingu á Austurvelli og í nágrenni Austurvallar, hafa ekki borið árangur enn sem komið er. Lýsing á Austurvelli er á ábyrgð Reykjavíkurborgar.