Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 77. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 77 — 77. mál.
1. Hversu margir bótaþegar hafa fengið leiðréttingu og endurreikning á lífeyrisgreiðslum frá almannatryggingum á undanförnum fimm árum?
2. Um hversu háar fjárhæðir er að ræða og hvernig hafa þær skipst annars vegar í vangreiðslur og hins vegar ofgreiðslur til lífeyrisþega?
3. Hver er meginskýringin á þeim miklu endurreikningum og leiðréttingum sem fara fram á hverju ári vegna lífeyrisgreiðslna og tengdra bóta frá almannatryggingum?
4. Hvaða leiðir eru mögulegar að mati ráðherra til að lágmarka þörfina fyrir enduruppgjör á ári hverju?
5. Má vænta einhverra breytinga á fyrirkomulagi þessara mála á næstunni?
Skriflegt svar óskast.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 77 — 77. mál.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um endurreikning á lífeyrisgreiðslum frá almannatryggingum.
Frá Lúðvík Geirssyni.