Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 530. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 849  —  530. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um Fulbright-styrk á sviði norðurskautsfræða.

Flm.: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Kristján Þór Júlíusson.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra og utanríkisráðherra að kanna grundvöll þess að bjóða árlegan styrk til framhaldsnáms í norðurskautsfræðum. Styrkurinn skuli vera í umsjón Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi og veitast bandarískum háskólanema til náms í a.m.k. níu mánuði í norðurskautstengdum fræðum.

Greinargerð.


    Á undanförnum árum hefur mikil umræða verið um málefni norðurslóða og mikilvægi þeirra fyrir Ísland. Sem norðurskautsríki og stofnaðili að Norðurskautsráðinu á Ísland mikilla hagsmuna að gæta á norðurslóðum. Á síðasta ári samþykkti Alþingi þingsályktun um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. Eins og bent var á í greinargerð með tillögu utanríkisráðherra um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða hefur mikilvægi norðurslóða í alþjóðamálum aukist verulega á síðustu árum m.a. vegna umræðu um loftslagsbreytingar, náttúruauðlindir, landgrunnskröfur, samfélagsbreytingar og nýjar skipaleiðir.
    Í stefnu Íslands er m.a. lögð áhersla á að:
–    tryggja stöðu Íslands sem strandríkis innan norðurskautssvæðisins hvað varðar áhrif á þróun og alþjóðlegar ákvarðanir um málefni svæðisins á grundvelli lagalegra, efnahagslegra, vistfræðilegra og landfræðilegra raka,
–    efla skilning á því að norðurslóðir ná bæði yfir norðurskautið og þann hluta af Norður- Atlantshafssvæðinu sem tengist norðurskautinu. Ekki ber að einblína á þrönga landfræðilega skilgreiningu heldur líta á norðurslóðir sem víðtækt svæði í vistfræðilegum, efnahagslegum, pólitískum og öryggistengdum skilningi,
–    kynna Ísland erlendis sem vettvang fyrir fundi, ráðstefnur og umræður um norðurslóðir. Vinna ber að því að efla og styrkja miðstöðvar, rannsóknarsetur og menntastofnanir um norðurslóðir á Íslandi í samstarfi við önnur ríki og alþjóðastofnanir.
    Til að vinna að framgangi stefnu Íslands í málefnum norðurslóða er mikilvægt að leggja áherslu á almenna fræðslu um norðurslóðir og rannsóknir á þeim í sem víðustum skilningi eins og á sviði loftslagsbreytinga, jöklarannsókna, sjávarlíffræði, alþjóðastjórnmála og -laga, öryggismála, sögu og menningar, efnahags- og félagsþróunar, jafnréttismála, heilbrigðismála og norðurskautssiglinga. Efla ber þar þátttöku íslenskra fræðimanna og stofnana í alþjóðlegu samstarfi um norðurslóðavísindi. Jafnframt þarf að efla tengsl við erlenda vísindamenn og rannsóknastofnanir, auka sýnileika Íslands og efla stöðu landsins sem áhugaverðan kost fyrir erlenda fræðimenn í alþjóðlegu samstarfi á sviði norðurskautsmála. Í þessu sambandi eru Bandaríkin og bandarískar menntastofnanir lykilsamstarfsaðilar.
    Fulbright-samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á gömlum merg. Í tæp 55 ár hefur Fulbright-stofnunin á Íslandi gert íslenskum náms- og fræðimönnum kleift að stunda nám og rannsóknir í Bandaríkjunum og fengið bandaríska fræði- og námsmenn til Íslands til að auðga íslenskt mennta- og listalíf. Þetta samstarf er ómetanlegt bæði fyrir háskólastofnanir og Ísland.
    Fulbright-áætlunin er flaggskip Bandaríkjanna þegar kemur að mennta- og menningarsamstarfi. Hún nýtur virðingar í Bandaríkjunum og um heim allan og tengsl við Fulbright er gæðastimpill bæði fyrir einstaklinga og stofnanir. Einungis 50 Fulbright-stofnanir eru starfræktar í heiminum og nýtur Ísland því ákveðinna forréttinda því samstarfið er langsterkast í þeim löndum þar sem Fulbright-stofnun er starfandi. Ísland hefur fengið margfalt meira út úr samstarfinu en eðlilegt væri ef eingöngu væri miðað við stærð landsins. Það má með sanni segja að Fulbright-samstarfið sé einn jákvæðasti þátturinn í samvinnu Íslands og Bandaríkjanna.
    Fulbright-styrkir fá mikla kynningu í Bandaríkjunum. Þeir eru auglýstir í öllum viðurkenndum háskólum og á heimasíðu Fulbright og sérfræðingar Fulbright vekja á þeim sérstaka athygli þar sem þeir telja það viðeigandi. Með því að veita Fulbright-styrk í norðurskautsfræðum má vekja athygli á Íslandi almennt í tengslum við norðurslóðir og sérstaklega Háskólanum á Akureyri sem spennandi valkosti í þessum málaflokki í fræðasamfélaginu í Bandaríkjunum. Með því að veita styrk til nemenda í framhaldsnámi er verið að stofna til sambands við einstaklinga sem munu starfa á þessum vettvangi um langa hríð. Þetta er því hugsað með langtímahagsmuni í huga. Mikilvægt er að styrkurinn sé skilgreindur með víðum hætti þannig að hann nái til náms og rannsókna í sem flestum greinum sem tengjast málefnum norðurslóða, eins og að framan greinir.
    Noregur hefur nú þegar sett á stofn veglega Fulbright-styrki í norðurskautsfræðum sem fjármagnaðir eru af norska utanríkisráðuneytinu, einn fyrir bandarískan fræðimann til dvalar í Noregi og annan fyrir norskan fræðimann til dvalar í Bandaríkjunum. Um tilraunaverkefni er að ræða til fjögurra ára sem hófst árið 2010. Með þessu móti fær Noregur mikla kynningu í bandarískum menntastofnunum sem spennandi vettvangur Norðurskautsrannsókna. Áætlunin stuðlar að samstarfi norskra og bandarískra fræðimanna með framtíðarhagsmuni að leiðarljósi. Styrkur til framhaldsnáms er ódýr kostur og veitir sérstöðu, en hefur mikla þýðingu til lengri tíma litið. Þannig getur Ísland markað sér stöðu án þess að vera í beinni samkeppni við Noreg. Hér er ekki um mikla fjármuni að tefla, gróflega áætlað um 20.000 bandaríkjadali, eða um 2,5 millj. kr. á ári fyrir einn styrkþega, en ávinningurinn er mikill til langs tíma litið.
    Með árlegum styrk af hálfu Íslands í gegnum Fulbright-stofnunina væri staða Íslands sem vettvangur fyrir norðurslóðarannsóknir og samstarf styrkt enn frekar, jákvæð tengsl efld á sviði rannsókna og fræða og staða Íslands sem norðurslóðaríkis kynnt víða um Bandaríkin. Um leið væru tengslin við Fulbright-stofnunina efld en engum vafa er undirorpið hversu gagnlegt samstarfið hefur verið Íslandi og mikið hagsmunamál að því sé við haldið.