Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 553. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1110 — 553. mál.
1. Hvaða fræðilegur grunnur er undir menntun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa, sbr. 3. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012?
Áfengis- og vímuvarnaráðgjafar fengu löggildingu sem heilbrigðisstétt árið 2006. Samhliða löggildingunni setti landlæknir fram tillögur um tilhögun menntunar fyrir áfengis- og vímuvarnaráðgjafa sem ráðherra staðfesti í ársbyrjun 2007. Kröfur um menntun og þjálfun í þágildandi og núgildandi reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi endurspegla þær tillögur.
Nám áfengis- og vímuvarnaráðgjafa byggist m.a. á faglegum kröfum frá samtökum bandarískra áfengisráðgjafa, NAADAC (The Association for Addiction Professional). Þá skal þess getið að fulltrúar samtakanna gerðu úttekt á náminu hjá Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) og var niðurstaða þeirrar úttektar að námið uppfyllti kröfur samtakanna.
2. Við hvaða menntastofnun hafði ráðherra samráð þegar sett var reglugerð nr. 1106/ 2012, um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 34/2012 þar sem fram kemur að ráðherra skuli hafa samráð við landlækni, viðkomandi fagfélag og menntastofnun hér á landi við setningu slíkrar reglugerðar?
Ráðuneytið sendi drög að reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi til umsagnar til Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa, embættis landlæknis og mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Vakin skal athygli á því að með gildistöku reglugerðar nr. 1106/2012 var kröfum um menntun og þjálfun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa ekki breytt. Embætti landlæknis hefur bent á að nauðsynlegt sé að endurskoða þær námskröfur sem gerðar eru til þessarar stéttar og taka þá mið af menntun sambærilegra stétta í nágrannalöndum okkar.
3. Hvaða menntastofnun ber ábyrgð á kennslu skv. 2. tölul. 4. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1106/2012?
Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann sjá um menntun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og hafa gert um margra ára skeið.
4. Á hvaða heilbrigðisstofnunum fer starfsnám skv. 1. tölul. 4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar fram?
Starfsnám fyrir nemendur í áfengis- og vímuvarnaráðgjöf fer fram á heilbrigðisstofnunum sem SÁÁ reka.
5. Er fjöldi kennslustunda skv. 2. og 3. tölul. 4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar sambærilegur við fjölda kennslustunda í námi annarra heilbrigðisstétta skv. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 34/2012?
Menntun þeirra 33 löggiltu heilbrigðisstétta sem taldar eru upp í lögum nr. 34/2012 er mismunandi. Menntun heilbrigðisstétta fer að mestu ýmist fram á framhalds- eða háskólastigi. Með hliðsjón af þeim lágmarkskröfum sem settar eru fram um menntun og þjálfun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa í reglugerð nr. 1106/2012 má ætla að fjöldi kennslustunda í námi þeirrar starfsstéttar sé færri en hjá mörgum öðrum heilbrigðisstéttum sem lögin taka til.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1110 — 553. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um menntun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa.