Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 241. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 376  —  241. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um íslenska starfsmenn sendiráða og tryggingagjald.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


     1.      Hvernig hefur ráðherra brugðist við erindi sem barst ráðuneytinu 10. ágúst 2012 frá stéttarfélögunum VR og BHM um mismunun sem íslenskir starfsmenn erlendra sendiráða þurfa að þola vegna undanþágu vinnuveitenda þeirra frá greiðslu tryggingagjalds skv. 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990?
     2.      Er ráðherra reiðubúinn til að beita sér fyrir breytingu á lögum um tryggingagjald svo að umræddir starfsmenn erlendra sendiráða þurfi ekki sjálfir að greiða tryggingagjaldið af eigin launum og þola þannig 7–10% launaskerðingu vilji þeir á annað borð njóta þeirra réttinda sem tryggingagjaldið veitir, svo sem réttar til atvinnuleysisbóta, fæðingarorlofs o.fl.?


Skriflegt svar óskast.