Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 218. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 601  —  218. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Margréti Gauju Magnúsdóttur
um opinberar byggingar.


     1.      Hvaða opinberar byggingar sem reistar voru fyrir 1960 hafa misst hlutverk sitt og standa nú tómar?
    Fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða eignir ríkisins og húsnæðismál ríkisstofnana, skv. 3. lið 2. gr. forsetaúrskurðar nr. 71/2013, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Málaflokkurinn sem slíkur nær samt sem áður til allra ráðuneyta og margra stofnana enda eru ýmsar upplýsingar um eignirnar aðeins að finna hjá umráðanda þeirra. Vegna fyrirspurnarinnar leitaði ráðuneytið því upplýsinga frá öðrum ráðuneytum auk Fasteigna ríkissjóðs sem fara með umsýslu fasteigna ýmissa ríkisstofnana. Einnig var haft samband við aðrar stofnanir sem helst var talið að gætu haft tómar byggingar á sínum vegum.
    Eftir því sem næst verður komist standa eftirfarandi eignir nú auðar sem reistar voru fyrir 1960:
    –        Suðurgata 41 og 44, Hafnarfirði. Um er að ræða eignir St. Jósefsspítala. Ekki liggur fyrir hvað gert verður við eignir sjúkrahússins en beðið er eftir afstöðu velferðarráðuneytis sem hefur til skoðunar nýtingarmöguleika húsnæðisins í þágu heilbrigðisþjónustu.
    –        Laufásvegur 14, Reykjavík. Eignin er ekki hæf til notkunar en var keypt vegna landréttinda til að Listasafn Íslands hefði stækkunarmöguleika til framtíðar.
    –        Heiðarvegur 15, Vestmannaeyjum. Um er að ræða skrifstofuhúsnæði sem stendur autt.
    –        Mánabraut 20, Akranesi. Skrifstofuhúsnæði sem Sementsverksmiðjan var með á leigu en samningnum var sagt upp í október 2013.
    –        Gufuskálar, Snæfellsnesi. Eignir sem Slysavarnafélagið Landsbjörg var með á leigu. Til stendur að selja eða leigja eignirnar.
    –        Núpur, skólaeignir í Dýrafirði. Um er ræða fyrrverandi héraðsskóla sem leigður hefur verið út að hluta til rekstraraðila í ferðaþjónustu á sumrin. Sölutilraunir hafa ekki skilað viðeigandi árangri.
    –        Seljubraut 645, Ásbrú, Reykjanesbæ. Um er ræða gamalt bankaútibú á fyrrverandi varnarsvæði NATO (Atlandshafsbandalagsins). Ekki hafa borist fullnægjandi tilboð í notkun hússins.
    Þess má einnig geta að Þjóðminjasafn Íslands hefur til umráða eignir sem eru ekki í eiginlegri notkun heldur teljast vera hluti af safnkosti Þjóðminjasafnsins og er þar af leiðandi ætlað að standa auður.

     2.      Hvaða byggingar frá sama tíma hafa fengið nýtt hlutverk í þágu hins opinbera eða verið seldar einkaaðilum?
    Ríkissjóður hefur selt ýmsar fasteignir sem byggðar hafa verið fyrir 1960 á því tæplega sextíu ára tímabili sem spurt er um. Að sama skapi hafa margar eignir frá sama tíma fengið ýmis hlutverk í þágu hins opinbera. Sem dæmi má nefna að fasteign fjármála- og efnahagsráðuneytisins að Arnarhvoli hefur verið aðsetur tuga ráðuneyta og stofnana í gegnum tíðina. Að afla upplýsinga um sölu eða margvísleg hlutverk sem slíkar eignir hafa haft í þágu ríkisrekstrarins svo langt aftur í tímann krefst mikillar rannsóknar- og sagnfræðivinnu af hálfu starfsmanna ráðuneytisins. Ráðuneytið þarf því að afmarka svar við þessum lið fyrirspurnarinnar við sölu fasteigna sem byggðar voru fyrir 1960 síðastliðin 14 ár eða frá árinu 2000. Um er að ræða eftirtaldar fasteignir:
    –        Háahlíð 9, Reykjavík, fyrrverandi skólahúsnæði, seld árið 2000.
    –        Eiðar á Fljótsdalshéraði, fyrrverandi búnaðarskóli og alþýðuskóli, seldir árið 2001.
    –        Skólabúðir að Reykjum, seldar árið 2001.
    –        Breiðamörk 19, Hveragerði, fyrrverandi heilsugæsla, seld árið 2002.
    –        Fasteignir fyrrverandi Holtsskóla í Önundarfirði, seldar árið 2003.
    –        Fasteignir fyrrverandi Húsmæðraskólans á Varmalandi, seldar árið 2003.
    –        Fasteignir fyrrverandi grunnskólans að Ytri-Skógum, seldar árið 2003.
             –        Fasteignir fyrrverandi Skjöldólfsstaðaskóla á Fljótsdalshéraði, seldar árið 2004.
    –        Öldugata 17, Reykjavík, fyrrverandi læknastofa, seld árið 2004.
    –        Glerárgata 36, Akureyri, áður skrifstofu- og skólahúsnæði á vegum Háskólans á Akureyri, seld árið 2005.
    –        Barónsstígur 47, Reykjavík, fyrrverandi heilsugæsla, seldur árið 2005.
    –        Fasteignir fyrrverandi Steinsstaðaskóla í Skagafirði, seldar árið 2005.
    –        Fasteignir fyrrverandi Ljósafossskóla í Grímsnesi, seldar árið 2006.
    –        Fasteignir fyrrverandi Gaulverjabæjarskóla í Flóahreppi, seldar árið 2008.
    –        Grænásvegur 10, Njarðvík, fyrrverandi lögreglustöð, seldur árið 2010.
    –        Eyrarvegur 2 á Þórshöfn, hluti af lögreglustöð, seldur árið 2012.
    –        Þórunnarstræti 99, Akureyri, fyrrverandi húsmæðraskóli, selt árið 2012.
    –        Arnarholt á Kjalarnesi, fyrrverandi stórbýli og sjúkrastofnun, selt árið 2013.
    –        Fasteignir fyrrverandi skóla að Laugum í Dalabyggð, seldar árið 2013.
    –        Austurgata 7, Stykkishólmi, fyrrverandi leikskóli, seld árið 2013.

     3.      Hvaða starfsemi fer fram í þeim byggingum sem enn eru í opinberri eigu og fengið hafa nýtt hlutverk?
    Meðfylgjandi er listi úr fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands yfir opinberar byggingar ríkissjóðs sem byggðar voru fyrir 1960 og eru enn í eigu ríkisins. Á listanum má sjá upplýsingar um umráðanda hverrar eignar fyrir sig ásamt lýsingu á notkun eignar. Varðandi þennan lið er að öðru leyti vísað til svars við öðrum lið fyrirspurnarinnar hér að framan.

Sveitarfélag Heimilisfang Lýsing Bygg.ár Eignarhl. Nafn umráðanda
Reykjavík Kirkjustræti 8b Skrifstofur 1879 100,00 Alþingi
Reykjavík Kirkjustræti 10 Skrifstofur 1879 100,00 Alþingi
Reykjavík Kirkjustræti 10a Tengibygging 1879 100,00 Alþingi
Reykjavík Kirkjustræti 14 Þinghús 1881 100,00 Alþingi
Reykjavík Kirkjustræti 8 Skrifstofur 1893 100,00 Alþingi
Reykjavík Kirkjustræti 4 Skrifstofur 1908 100,00 Alþingi
Reykjavík Templarasund 5 Skrifst. sérh./bygg. 1912 100,00 Alþingi
Reykjavík Vonarstræti 8 Skrifstofur 1916 100,00 Alþingi
Reykjavík Öldugata 23 Skóli 1898 100,00 Alþýðusamband Íslands
Reykjavík Laugavegur 116 Skrifstofa 1947 100,00 Atvinnuleysistr.sjóður
Svínavatnshr. Auðkúlukirkja Kirkja 1894 100,00 Auðkúlusókn
Selfoss Austurvegur 28 Farfuglaheimili 1935 100,00 Auðsalir ehf.
Álftaneshreppur Álftártungukirkja Kirkja 1873 100,00 Álftártungukirkja
Rangárvellir Geldingalækur Meðferðarheimili 1954 100,00 Barnaverndarstofa
Austur-Eyjafjöll Framhaldsk. í Skógum Heimavist 1949 100,00 Byggðasafnið í Skógum
Blönduós Árbraut 31 Skólahús 1911 75,00 Byggðasamlag um menningar/atvm.
Svarfaðardalshr. Húsabakkaskóli Skóli 1953 75,00 Dalvíkurbyggð
Búlandshreppur Varða 6 Skóli 1954 50,00 Djúpavogshreppur
Hvammshreppur Hvammur Kirkja 1884 100,00 Dómsmála- og mannréttindarn.
Öræfi Skeiðarársandur Sæluhús 1944 100,00 Dómsmála- og mannréttindarn.
Eyrarbakki Litla-Hraun Fangelsi 1957 100,00 Fangelsið Litla-Hrauni
Reykjavík Skólavörðustígur 9 Fangelsi 1874 100,00 Fangelsismálast. ríkis.
Keflavík Hafnargata 90 Sérhæfð bygging 1956 100,00 Fasteignasj. Jöfnunarsj.
Keflavík Hafnargata 90 Vörugeymsla 1956 100,00 Fasteignasj. Jöfnunarsj.
Reykjavík Lækjargata 5 Skóli 1846 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Fríkirkjuvegur 1 Skóli 1898 60,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Bókhlöðustígur 7 Nemendaaðstaða 1901 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akureyri Eyrarlandsv. 28 Gamli skóli 1904 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Lækjartorg 1 Dómhús 1905 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Amtmannsstígur 2 Skóli 1906 60,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Amtmannsstígur 2b Skóli 1906 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Seyðisfjörður Bjólfsgata 7 Skrifstofa 1908 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Fríkirkjuvegur 9 Kvennaskólinn 1909 50,00 Fasteignir ríkissjóðs
Andakílshreppur Hvanneyri, bændaskóli Skóli 1910 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Fríkirkjuvegur 7 Listasafn Íslands 1916 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Suðurgata 39 Barnagæsla 1917 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Hvammstangahr. Spítalastígur 1 Sjúkrahús 1917 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Hallgrímstorg 3 Eiríksgata – listasafn 1919 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Andakílshreppur Hvanneyri Skóli 1920 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykdælahr. Laugaskóli Gamlisk./Heimav./B. 1924 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Hafnarfjörður Suðurgata 41 Sjúkrahús 1926 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Rauðarárstígur 10 Skrifstofa 1931 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Rauðarárstígur 10 Skrifstofa 1931 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laufásvegur 14 Verslun 1931 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Hverfisgata 19 Leikhús 1932 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Selfoss Austurvegur 28 Farfuglaheimili 1935 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Lindargata 7 Íþróttahús 1935 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Stykkishólmur Austurgata 7 Nýja sjúkrahúsið 1935 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Hafnarfjörður Hringbraut 10 Skóli 1935 60,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Hallgrímstorg 3 Listasafn 1936 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Hafnarfjörður Suðurgata 44 Læknastofa 1937 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Suðurgata 43 Skrifstofur 1937 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akureyri Hafnarstræti 107 Skrifstofa ´38–´63 1938 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Húsavík Auðbrekka 4 Gamla sjúkrah. 1939 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akranes Vesturgata 62 Verknámshús 1939 60,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Sölvhólsgata 13 Skóli 1942 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Bríetartún 7 Skrifstofa/vörug. 1942 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Keflavík Skólavegur 6 Sjúkrahús 1944 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Háteigsvegur 35 Sjómannaskólinn 1945 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Flateyrarhreppur Eyrarvegur 8 Heilsugæsla 1946 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Patrekshreppur Stekkar 1 Sjúkrahús 1946 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Siglufjörður Túngata 3 Skrifstofa 1946 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Vestmannaeyjar Heiðarvegur 15 Skrifstofa 1946 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Seljavegur 32 Skrifstofa/vörug. 1946 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Barónsstígur 34 Gagnfrsk. 1947 50,00 Fasteignir ríkissjóðs
Öxarfjarðarhr. Akurgerði 13 Heilsugæsla 1947 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Vestmannaeyjar Dalavegur 2 Skólahús 1947 50,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 116 Skrifstofa 1947 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 116 Skrifstofa 1947 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Selfoss Hörðuvellir 1 Skrifstofa 1947 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akureyri Hafnarstræti 93 Skrifstofa 1947 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Suðurgata 41 Þjóðminjasafn 1948 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Borgartún 7 Skrifstofa 1949 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Hólmavíkurhr. Borgabraut 6–8 Heilsugæsla 1950 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Hofshreppur Suðurbraut 15 Læknastofa 1951 0,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akranes Merkigerði 9 Sjúkrahús 1952 0,00 Fasteignir ríkissjóðs
Bolungarvík Miðstræti 19 Sjúkrahús 1952 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 166 Verslunarhús 1952 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Þórshafnarhr. Eyrarvegur 2 Lögreglustöð 1953 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 114 Skrifstofa 1953 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Blönduós Flúðabakki 2 Héraðshælið 1954 60,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Skógarhlíð 6 Iðnaðarh./skrifst. 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akranes Heiðarbraut 32 Læknastofa 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Þórunnartún 6 Skrifstofa 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Skógarhlíð 6 Skrifstofa 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Skógarhlíð 6 Skrifstofa 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Skógarhlíð 6 Skrifstofa 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Skógarhlíð 6 Skrifstofa 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Skógarhlíð 6 Vörugeymsla 1956 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akranes Mánabraut 20 Skrifstofa 1957 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Drápuhlíð 14–16 Heilsugæsla 1958 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Raufarhafnarhr. Aðalbraut 33 Heilsugæsla 1958 85,00 Fasteignir ríkissjóðs
Neshreppur Gufuskálar Vörugeymsla 6 1958 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Akranes Vogabraut 5 Skóli 1959 60,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 164 Skrifstofa 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 164 Skrifstofa 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 164 Skrifstofa 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 164 Skrifstofa 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Háteigsvegur 37 Vélahús 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 164 Vinnustofa 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Reykjavík Laugavegur 164 Vörugeymsla 1959 100,00 Fasteignir ríkissjóðs
Keflavík Hafnargata 90 Sérhæfð bygging 1956 100,00 Félagsmálaráðuneyti
Keflavík Hafnargata 90 Vörugeymsla 1956 100,00 Félagsmálaráðuneyti
Búðahreppur Skólavegur 39–41 Skóla og samkomuh. 1938 75,00 Fjarðabyggð
Norðfjarðarhr. Kirkjumelur Skóli 1946 75,00 Fjarðabyggð
Búðahreppur Skólavegur 39–41 Sundlaug 1948 75,00 Fjarðabyggð
Villingaholt Villingaholtsskóli Barnaskóli 1946 75,00 Flóahreppur
Reykjavík Nauthólsvegur 99 Flugröst 1945 100,00 Flugmálastjórn Íslands
Reykjavík Lækjargata 1 Skrifstofa 1770 100,00 Forsætisráðuneyti
Þingvellir Þingvellir Kirkja 1859 100,00 Forsætisráðuneyti
Reykjavík Tjarnargata 32 Ráðherrabústaður 1906 100,00 Forsætisráðuneyti
Þingvellir Þingvellir, Valhöll Veitinga- og gistih. 1930 100,00 Forsætisráðuneyti
Reykjavík Lindargata 1–3 Skrifstofa 1949 100,00 Forsætisráðuneyti
Kjalarneshr. Kollagrund 1 Félagsheimili 75,00 Framkvæmda- og eignasvið Rvk.
Garðabær Vífilsstaðav., Flatask. Skóli 1958 50,00 Garðabær
Grunnavíkurhr. Staður Kirkja 1935 100,00 Grunnv.félagið á Ísaf.
Reykhólahreppur Gufudalur-Neðri Kirkja 1910 100,00 Gufudalskirkja
Fljótsdalshreppur Skriðuklaustur Kartöflugeymsla 1952 100,00 Gunnarsstofnun
Vellir Hússtjórnarskólinn Hússtjórnarskóli 1930 100,00 Handverks- og hússtjórnarskólinn
Reykjavík Hofsvallagata 53 Skóli 1925 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Suðurgata 26 Kaffistofa 1928 100,00 Háskóli Íslands
Laugardalur Hverabraut 3 og Lauga. Dæluhús 1944 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Sæmundargata 12 Nýi Garður 1944 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Sæmundargata 6 Íþróttahús 1948 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Aragata 9 Skóli 1948 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Aragata 14 Skóli 1959 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Sæmundargata 2 Aðalbygging H.Í. 1939 100,00 Háskóli Íslands
Reykjavík Skólavörðustígur 9 Fangelsi 1874 100,00 Hegningarhúsið í Rvk.
Laugardalur Héraðsskóli Skóli 1928 75,00 Héraðsskólinn Laugarv.
Hólahreppur Hóladómkirkja Dómkirkja 1763 100,00 Hóladómkirkja
Hólahreppur Hóladómkirkja Dómkirkja 1763 100,00 Hólaskóli, Hólum í Hj.
Hólahreppur Hólar/skólahús Skóli 1910 100,00 Hólaskóli, Hólum í Hj.
Þingeyrarhr. Hrafnseyri Kirkja 1886 100,00 Hrafnseyrarnefnd
Arnarneshreppur Verslunarlóðin Radíóstöð/skúr 1942 100,00 Isavia ohf.
Reykjavík Reykjavíkurflugvöllur Flugskýli 3 1943 100,00 Isavia ohf.
Reykjavík Flugvöllur Sandgeymsla 1944 100,00 Isavia ohf.
Reykjavík Flugvallarvegur 1 Skáli, geymsla 1944 100,00 Isavia ohf.
Reykjavík Flugvöllur Sérh.bygg. – iðnaður 1955 100,00 Isavia ohf.
Sauðárkrókur Sauðárkróksflugvöllur Raftækjahús 1958 100,00 Isavia ohf.
Reykjavík Flugvöllur Skrifstofa v.skýli 1 1958 25,00 Isavia ohf.
Reykjavík Flugvöllur Skrifstofa v.skýli 1 1959 100,00 Isavia ohf.
Álftaneshreppur Álftártungukirkja Kirkja 1873 100,00 Jarðeignir ríkisins
Hraunhreppur Staðarhraun Kirkja 1954 100,00 Jarðeignir ríkisins
Reykhólahreppur Hofstaðir Rafstöð/stífla 1955 100,00 Jarðeignir ríkisins
Andakílshreppur Hvanneyrarkirkja Kirkja 1906 100,00 Landbúnaðarhásk. Ísl.
Reykjavík Mýrargata, Ánanaust Iðnaðarhús 1870 100,00 Landhelgisg. Íslands
Reykjavík Nauthólsvegur 68 Skrifstofa – iðnaður 1958 100,00 Landhelgisg. Íslands
Reykjavík Vatnsmýrarvegur 22 Fasteignaréttur 1923 100,00 Landspítali
Reykjavík Kleppsvegur, Kleppur Víðihlíð 1930 100,00 Landspítali
Reykjavík Skólavörðustígur 37 Hvítaband 1932 100,00 Landspítali
Reykjavík Túngata 26 Sjúkrahús 1932 100,00 Landspítali
Reykjavík Eiríksgata 37 Sjúkrahús 1933 100,00 Landspítali
Reykjavík Þorfinnsgata 14 Sjúkrahús 1936 100,00 Landspítali
Reykjavík Þorfinnsgata 16 Sjúkrahús 1938 100,00 Landspítali
Kópavogur Hús 3, 5, 11 Iðju- og sjúkraþj. 1952 100,00 Landspítali
Akureyri Eyrarlandsvegur 28 Heimavist 1946 100,00 Lundur ses. rekstrarfél.
Akureyri Eyrarlandsvegur 28 Heimavist /geymslur 1946 100,00 Lundur ses. rekstrarfél.
Blönduós Árbraut 31 Skólahús 1911 75,00 Mennta- og menningarmálarn.
Fellsstrandarhr. Staðarfell Húsmæðraskóli 1912 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Mýrahreppur Núpur/Héraðsskóli Skóli 1931 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Mosfellsbær Gljúfrasteinn Safn 1945 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Akureyri Eyrarlandsvegur 28 Heimavist 1946 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Akureyri Eyrarlandsvegur 28 Heimavist/geymslur 1946 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Austur-Eyjafjöll Framhaldsk. í Skógum Heimavist 1949 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Vestur-Eyjafjöll Seljalandsskóli Skóli 1953 50,00 Mennta- og menningarmálarn.
Reykholtsdalshr. Smiðjuholt Smiðjuholt 1959 100,00 Mennta- og menningarmálarn.
Laugardalur Laugarvatn, Menntask. Skóli 1948 100,00 Menntask. að Laugarv.
Þorlákshöfn Reykjakot, Skólasel Menntaskólasel 1938 100,00 Menntaskólinn í Rvk.
Sauðárkrókur Aðalgata 2 Skrifstofa 1908 50,00 Náttúrustofa Nl. vestra
Mosfellsbær Í Leirvogstungu Segulmælingastöð 100,00 Raunvísindast. Hásk.
Reykjavík Lindargata 1–3 Skrifstofa 1929 100,00 Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga
Reykjavík Sölvhólsgata 7–9 Skrifstofa 1936 100,00 Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga
Reykjavík Skuggasund 3 Skrifstofa 1936 100,00 Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga
Reykjavík Skuggasund 1, Lindarg. Skrifstofa sérh. bygg 1943 100,00 Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga
Reykjavík Sölvhólsgata 4 Skrifstofa 1953 100,00 Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga
Reykhólahreppur Kirkjutröð 1 Kirkja 1958 100,00 Reykhólakirkja
Njarðvík Dalsbraut 8 Fasteignaréttur 50,00 Reykjanesbær
Eiðaþinghá Hraungarður 1 Símstöð/póstur 1938 100,00 Ríkisútvarpið ohf.
Fellsstrandarhr. Staðarfell Húsmæðraskóli 1912 100,00 S.Á.Á. sjúkrastofnanir
Seyðisfjörður Suðurgata 5 Sundlaugarbygg. 1948 40,00 Seyðisfjarðarkaupst.
Reykjarfjarðarhr. Reykjanes Skúr 1898 100,00 Siglingast. Íslands
Vestmannaeyjar Stórhöfðaviti Viti 1906 100,00 Siglingast. Íslands
Breiðuvíkurhr. Öndverðarnesviti Viti 1914 100,00 Siglingast. Íslands
Mjóafjarðarhr. Dalatangaviti Viti 1918 100,00 Siglingast. Íslands
Arnarneshr. Hjalteyri Viti/skúr 1920 100,00 Siglingast. Íslands
Þingeyrarhr. Svalvogaviti Viti 1920 100,00 Siglingast. Íslands
Snæfjallahreppur Straumnesviti Viti 1921 100,00 Siglingast. Íslands
Árneshreppur Gjögurviti Viti 1921 100,00 Siglingast. Íslands
Stöðvarhreppur Kambanesviti Viti 1922 100,00 Siglingast. Íslands
Beruneshreppur Karlsstaðaviti Viti 1925 100,00 Siglingast. Íslands
Eyrarsveit Krossnesviti Viti 1926 100,00 Siglingast. Íslands
Siglufjörður Siglunesviti Viti 1926 100,00 Siglingast. Íslands
Mýrdalshreppur Dyrhólaviti Viti 1927 100,00 Siglingast. Íslands
Skaftárhreppur Alviðruhamraviti Viti 1929 100,00 Siglingast. Íslands
Hafnahreppur Reykjanes – aðalviti Viti 1929 100,00 Siglingast. Íslands
Tjörneshreppur Tjörnessviti Viti 1929 100,00 Siglingast. Íslands
Svalbarðsstr.hr. Svalbarðseyrarviti Viti 1930 100,00 Siglingast. Íslands
Snæfjallahr. Hornbjargsviti Viti 1930 100,00 Siglingast. Íslands
Breiðuvíkurhr. Svörtuloftaviti Viti 1931 100,00 Siglingast. Íslands
Borgarfjarðarhr. Glettinganesviti Viti 1931 100,00 Siglingast. Íslands
Ölfushreppur Selvogsviti Viti 1931 100,00 Siglingast. Íslands
Árneshreppur Seljanesviti Viti 1932 100,00 Siglingast. Íslands
Siglufjörður Sauðanesviti Viti 1933 100,00 Siglingast. Íslands
Skefilsstaðahr. Skagatáarviti Viti 1935 100,00 Siglingast. Íslands
Rípurhreppur Hegranesviti Viti 1936 100,00 Siglingast. Íslands
Grímsey Grímseyjarviti Viti 1937 100,00 Siglingast. Íslands
Skagahreppur Kálfshamarsviti Viti 1939 100,00 Siglingast. Íslands
Seyðisfjörður Brimnesviti Viti 1939 100,00 Siglingast. Íslands
Fáskrúðsfjarðarhr. Hafnarnesviti Viti 1939 100,00 Siglingast. Íslands
Vestmannaeyjar Þrídrangaviti Viti 1939 100,00 Siglingast. Íslands
Borgarhreppur Rauðanesviti Viti 1940 100,00 Siglingast. Íslands
Breiðuvíkurhr. Arnarstapaviti Viti 1941 100,00 Siglingast. Íslands
Kaldrananeshr. Malarhornsviti Viti 1941 100,00 Siglingast. Íslands
Hofshreppur Straumnesviti Viti 1942 100,00 Siglingast. Íslands
Breiðuvíkurhr. Malarrifsviti Viti 1946 100,00 Siglingast. Íslands
Sauðaneshreppur Grenjanesviti Viti 1946 100,00 Siglingast. Íslands
Nes Stokksnesviti Viti 1946 100,00 Siglingast. Íslands
Árneshreppur Selskersviti Viti 1947 100,00 Siglingast. Íslands
Rauðasandshr. Bjargtangaviti Viti 1948 100,00 Siglingast. Íslands
Stykkishólmur Höskuldseyjarviti Viti 1948 100,00 Siglingast. Íslands
Rauðasandshr. Ólafsviti Viti 1948 100,00 Siglingast. Íslands
Stykkishólmur Súgandiseyjarviti Viti 1948 100,00 Siglingast. Íslands
Kaldrananeshr. Bjarnarfjarðarviti Viti 1948 100,00 Siglingast. Íslands
Kópavogur Vesturvör 2 Iðnaðarh. – vörug. 1949 100,00 Siglingast. Íslands
Snæfjallahr. Sléttueyrarviti Viti 1949 100,00 Siglingast. Íslands
Þingeyrarhr. Arnarfjarðarviti Viti 1949 100,00 Siglingast. Íslands
Snæfjallahr. Æðeyjarviti Viti 1949 100,00 Siglingast. Íslands
Kaldrananeshr. Grímseyjarviti Viti 1949 100,00 Siglingast. Íslands
Öxarfjarðarhr. Kópaskersviti Viti 1950 100,00 Siglingast. Íslands
Sauðaneshr. Langanesviti Viti 1950 100,00 Siglingast. Íslands
Álftaneshreppur Þormóðsskersviti Viti 1950 100,00 Siglingast. Íslands
Kirkjuhvammshr. Skarðsviti Viti 1951 100,00 Siglingast. Íslands
Stykkishólmur Elliðaeyjarviti Viti 1951 100,00 Siglingast. Íslands
Ólafsfjörður Hrólfsskersviti Viti 1951 100,00 Siglingast. Íslands
Öxarfjarðarhr. Hraunhafnartangaviti Viti 1951 100,00 Siglingast. Íslands
Stöðvarhreppur Landatangaviti Viti 1953 100,00 Siglingast. Íslands
Rauðasandshr. Skorarviti Viti 1954 100,00 Siglingast. Íslands
Mýrahreppur Fjallskagaviti Viti 1954 100,00 Siglingast. Íslands
Lón Hvalnesviti Viti 1954 100,00 Siglingast. Íslands
Suðursveit Hrollaugseyjarviti Viti 1954 100,00 Siglingast. Íslands
Öræfi Ingólfshöfðaviti Viti 1954 100,00 Siglingast. Íslands
Tjörneshreppur Lundeyjarviti Viti 1955 100,00 Siglingast. Íslands
Svalbarðshr. Melrakkanesviti Viti 1956 100,00 Siglingast. Íslands
Fáskrúðsfjarðarhr. Vattarnesviti Viti 1957 100,00 Siglingast. Íslands
Suðureyrarhr. Galtarviti Viti 1959 100,00 Siglingast. Íslands
Skaftárhreppur Skarðsfjöruviti Viti 1959 100,00 Siglingast. Íslands
Eskifjörður Seleyjarviti Viti 100,00 Siglingast. Íslands
Norðfjarðarhr. Norðfjarðarhornsviti Viti 100,00 Siglingast. Íslands
Eyjafjarðarsveit Kristnes, Heilbrigðisst. Sjúkrahús 1927 100,00 Sjúkrahúsið á Akureyri
Akureyri Eyrarlandstún/FSA Sjúkrahús 1953 85,00 Sjúkrahúsið á Akureyri
Biskupstungur Haukadalskirkja Kirkja 1850 100,00 Skógr. ríkisins Selfossi
Fljótshlíð Múlakot Skógræktarg. geym. 1943 100,00 Skógr. rík. Tumast.
Öræfi Skeiðarársandur Sæluhús 1944 100,00 Slysavarnafél. Landsbj.
Reykholtsdalshr. Reykholtsskóli Skóli 1930 100,00 Snorrastofa í Reykholti
Reykholtsdalshr. Smiðjuholt Smiðjuholt 1959 100,00 Snorrastofa í Reykholti
Hraunhreppur Staðarhraun Kirkja 1954 100,00 Staðarhraunskirkja
Súðavíkurhr. Grundarstræti 2 Skóli 1950 50,00 Súðavíkurhreppur
Selfoss Skólavellir 1 Sérkennsludeild 1950 75,00 Sveitarfélagið Árborg
Hofshreppur Skólagata Skólahús 1951 65,00 Sveitarfél. Skagafj.
Grindavík Fjarskiptastöð Fjarskiptamannvirki 100,00 Utanríkisráðuneyti
Skaftárhreppur Klausturvegur Loftskeytastöð 1957 100,00 Veðurstofa Íslands (frá 1.1.09)
Reyðarfjörður Við Njörfadalsá Vörugeymsla 1944 100,00 Vegagerðin
Akureyri Hjalteyrargata Olíugeymir 1946 100,00 Vegagerðin
Reykjavík Borgartún 5 Vegagerð 1948 100,00 Vegagerðin
Reykjavík Guðrúnartún 6 Vörugeym. – iðnaður 1953 100,00 Vegagerðin
Svalbarðshr. Heiðarmúli Sæluhús 1954 100,00 Vegagerðin
Patrekshreppur Mikladalsvegur 9 Lagerhús 1956 100,00 Vegagerðin
Kjalarneshr. Vesturlandsv. Starfsmannahús 100,00 Vegagerðin
Staðarsveit Fróðárheiði Sæluhús 100,00 Vegagerðin
Reykjavík Hverfisgata 15 Safn 1907 100,00 Þjóðmenningarhúsið
Akrahreppur Stóru-Akrar Safnhús 1745 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Seltjarnarnes Nes 3 Safn 1763 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Eyrarbakki Eyrargata 50 Safn 1765 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Hofshreppur Pakkhús Safn 1777 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Eyrarbakki Eyrargata 50 Safn 1785 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Seyluhreppur Glaumbær Safn 1830 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Seyluhreppur Víðimýrarkirkja Kirkja 1834 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Glæsibæjarhr. Skipalón, Lónsstofa Safn 1843 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Vopnafjarðarhr. Gamli bærinn Safnhús 1848 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Hrunamannahr. Tungufellskirkja Kirkja 1860 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Ögurhreppur Vigur Viktoríuhús 1864 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Aðaldælahr. Grenjaðarstaður Safnhús 1865 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Sauðaneshr. Sauðanes Safnahús 1879 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Kirkjuhvammshr. Kirkjuhvammskirkja Kirkja 1882 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Rangárvellir Keldnaskáli Safnhús 1900 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Eyrarbakki Eyrargata 50 Gripahús 1914 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Reykjavík Brynjólfsgata 5 Fjarskiptasafn 1915 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Skarðshreppur Sjávarborg III Kirkja 1918 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Hofshreppur Grafarkirkja Bænahús 1953 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Öræfi Hofskirkja Kirkja 1954 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Hafnarfjörður Krýsuvík Byggingarréttur 100,00 Þjóðminjasafn Íslands
Reykjavík Laugavegur 162 Skjalasafn 1949 100,00 Þjóðskjalasafn Íslands
Reykjavík Brautarholt 6 Skjalasafn 1958 100,00 Þjóðskjalasafn Íslands
Reykjavík Brautarholt 6 Skjalasafn 1958 100,00 Þjóðskjalasafn Íslands
Ásbrú Flugvallarbr. 732–736 Iðnaður 1951 100,00 Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.
Ásbrú Grænásbraut 501 Vinnusalir 1951 100,00 Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.
Ásbrú Flugvallarbr. 936 Skrifstofa 1953 100,00 Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.
Ásbrú Breiðbraut 643–647 Parhús 1956 100,00 Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.
Ásbrú Seljubraut 645 Skrifstofa 1956 100,00 Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.
Fljótahreppur Barðskirkja Kirkja 1886 100,00
Kirkjubólshr. Kollafjarðarneskirkja Kirkja 1907 100,00
Kópavogur Vatnsendahæð Útvarpsstöð 1929 100,00