Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 468. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 944 — 468. mál.
1. Hvaða samningar eru í gildi milli ráðuneytisins og einkaaðila um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu?
Í eftirfarandi töflu eru samningar á vegum velferðarráðuneytisins um kaup á heilbrigðis- og öldrunarþjónustu sem nú er unnið eftir. Í fremsta dálki kemur fram tegund þjónustu, í öðrum dálki þjónustuveitandi og í aftasta dálki heiti samnings. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) annast samningsgerð fyrir hönd ráðuneytisins vegna heilbrigðisþjónustu en samningsgerð vegna öldrunarþjónustu annast ráðuneytið sjálft.
2. Hefur ráðuneytið upplýsingar um arð þessara aðila af starfsemi sem þeir reka samkvæmt samningum við ríkið, og ef svo er, hver er arður hvers og eins?
Eftirlit velferðarráðuneytis og SÍ með samningum um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu snýr fyrst og fremst að því að tryggja að magn og gæði þjónustu sé í samræmi við ákvæði samninga. Því liggja ekki fyrir upplýsingar um arð þjónustuveitenda af starfsemi sem þeir reka samkvæmt framangreindum samningum. Umrædd þjónusta er í mörgum tilfellum keypt af sjálfseignarstofnunum sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni og nýta hugsanlegan hagnað til að efla starfsemi sína. Þá er þess að geta að við samningsgerð eru aðgengilegar rekstrarupplýsingar nýttar til að leita samninga sem fela í sér hagkvæma notkun ríkisfjár og skapast því lítið sem ekkert svigrúm til fjárhagslegrar arðsemi af starfseminni.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 944 — 468. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um samninga velferðarráðuneytisins um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.
1. Hvaða samningar eru í gildi milli ráðuneytisins og einkaaðila um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu?
Í eftirfarandi töflu eru samningar á vegum velferðarráðuneytisins um kaup á heilbrigðis- og öldrunarþjónustu sem nú er unnið eftir. Í fremsta dálki kemur fram tegund þjónustu, í öðrum dálki þjónustuveitandi og í aftasta dálki heiti samnings. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) annast samningsgerð fyrir hönd ráðuneytisins vegna heilbrigðisþjónustu en samningsgerð vegna öldrunarþjónustu annast ráðuneytið sjálft.
| Tegund þjónustu | Þjónustuveitendur | Heiti samnings |
| Áfengismeðferð | SÁÁ | Samningur um áfengis- og vímuefnameðferð fyrir sjúkratryggða einstaklinga á dagdeild |
| Áfengismeðferð | SÁÁ | Áfengis- og vímuefnameðferð á göngudeild |
| Áfengismeðferð | SÁÁ | Þjónustusamningur um áfengis- og vímuefnameðferð á sjúkrahúsinu Vogi |
| Endurhæfing | HL-stöðin á Akureyri | Samningur um endurhæfingu og þjálfun |
| Endurhæfing | HL-stöðin í Reykjavík | Samningur um endurhæfingu og þjálfun |
| Endurhæfing | Náttúrulækningafélag Íslands | Þjónustusamningur um þverfaglega endurhæfingu |
| Endurhæfing | Reykjalundur/Hlein | Þjónustusamningur við Reykjalund vegna starfsemi Reykjalundar, endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS |
| Endurhæfing | Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra | Þjónustusamningur um starfsemi Æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut |
| Endurhæfing | Þraut ehf. | Samningur um þverfaglega endurhæfingu fyrir einstaklinga með vefjagigt |
| Heimahjúkrun | Heilsueflingarmiðstöðin | Samningur um sérhæfða hjúkrunarmeðferð fyrir börn í heimahúsum |
| Heimahjúkrun | Heimahlynning | Sérhæfð líknandi hjúkrunarmeðferð í heimahúsum |
| Heimahjúkrun | Karitas | Sérhæfð líknandi hjúkrunarmeðferð í heimahúsum |
| Heimilislækningar | Heimilislæknar utan heilsugæslu | Heimilislæknar utan heilsugæslu (HUH) |
| Heimilislækningar | Heimilislæknastöðin | Samningur um heilsugæslu í Lágmúla |
| Heimilislækningar | Læknavaktin | Móttökuvakt heimilislækna |
| Heimilislækningar | Læknavaktin | Samningur um vitjanaþjónustu |
| Heimilislækningar | Salus | Heilsugæslustöðin í Salahverfi í Kópavogi |
| Húðmeðferð | Bláa lónið | Samningur um húðmeðferð í Bláa lóninu |
| Húðmeðferð | Sjálfstætt starfandi starfsstöðvar | Rammasamningur um meðferð við húðsjúkdómum |
| Iðjuþjálfun | Gigtarfélag Íslands | Samningur um iðjuþjálfun |
| Iðjuþjálfun | Sjálfsbjörg Akureyri | Samningur um iðjuþjálfun |
| Krabbameinsleit | Krabbameinsfélag Íslands | Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands, forvarnir |
| Þjónusta ljósmæðra | Ljósmæður | Rammasamningur um heimaþjónustu |
| Læknishjálp | Augljós | Samningur um laseraðgerð á augum |
| Læknishjálp | Augnlæknar Reykjavíkur | Samningur um meðferð með laser við gláku |
| Læknishjálp | Barnalæknaþjónustan | Samningur um vaktþjónustu barnalækna |
| Læknishjálp | Húðlæknastöðin | Samningur um meðferð með lasertækjum |
| Læknishjálp | Lasersjón | Samningur um aðgerðir með excimer-lasertækni |
| Læknishjálp | Lasersjón | Samningur um augasteinsaðgerðir |
| Læknishjálp | Sérgreinalæknar | Rammasamningur sérgreinalækna |
| Læknishjálp | Sjónlag | Samningur um aðgerðir með Lasik-leysitækni |
| Læknishjálp | Sjónlag | Samningur um augasteinsaðgerðir |
| Læknishjálp | Útlitslækning ehf. | Samningur um lasermeðferð |
| Myndgreining | Íslensk myndgreining | Samningur um myndgreiningu |
| Myndgreining | Læknisfræðileg myndgreining | Samningur um myndgreiningu |
| Rannsóknir | Ellen Mooney | Samningur um rannsóknir í húðmeinafræði |
| Rannsóknir | Frumurannsókn ehf. | Samningur um rannsóknir í frumumeinafræði |
| Rannsóknir | Hjartavernd | Þjónustusamningur við Hjartavernd |
| Rannsóknir | Krabbameinsfélag Íslands | Samningur um rannsóknir í frumumeinafræði |
| Rannsóknir | Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði | Samningur um rannsóknir í lyfja- og eiturefnafræðum |
| Rannsóknir | Rannsóknastofan í Glæsibæ | Samningur um blóðmeina- og efnameinafræðirannsóknir og skyldar rannsóknir |
| Rannsóknir | Rannsóknastofan í Mjódd | Samningur um blóðmeina- og efnameinafræðirannsóknir og skyldar rannsóknir utan sjúkrahúsa |
| Rannsóknir | Vefjarannsóknastofan Álfheimum | Samningur um rannsóknir í líffærameinafræði |
| Sálfræðiþjónusta | Sálfræðingar | Rammasamningur um sálfræðiþjónustu við börn |
| Sjúkraflutningar | Ernir ehf. | Samkomulag um sjúkraflug frá Íslandi til útlanda |
| Sjúkraflutningar | Flugfélag Íslands | Samningur um sjúkrarúm í innanlandsflugi |
| Sjúkraflutningar | Mýflug hf. | Samkomulag um sjúkraflug til Vestmannaeyja |
| Sjúkraflutningar | Mýflug hf. | Samningur um sjúkraflug á Íslandi |
| Sjúkraflutningar | Rauði kross Íslands | Samningur um útvegun og rekstur bifreiða/tækjabúnaðar til sjúkraflutninga |
| Sjúkraflutningar | Sjúkraflug ehf. | Samningur um þjónustu fylgdarmanna í áætlunarflugi innan lands |
| Þjónusta sjúkrahótels | Sinnum ehf. | Þjónustusamningur um sjúkrahótel |
| Sjúkraþjálfun | Endurhæfing ehf. | Samningur um þjálfun einstaklinga með fjölþættar skerðingar |
| Sjúkraþjálfun | Félag sjúkraþjálfara (FS) | Samkomulag um aðkomu FS að faglegum málefnum er varða rammasamning SÍ og sjúkraþjálfara |
| Sjúkraþjálfun | Sjálfsbjörg Akureyri | Samningur um sjúkraþjálfun |
| Sjúkraþjálfun | Sjúkraþjálfarar | Rammasamningur við sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara utan sjúkrahúsa |
| Talþjálfun | Talmeinafræðingar | Rammasamningur um talmeinaþjónustu á eigin stofum |
| Tannlækningar | Peter Holbrook | Samningur um munnvatnsrannsóknir |
| Tannlækningar | Tannlæknafélag Íslands | Samningur um tannlækningar barna |
| Endurhæfing aldraðra | Eir hjúkrunarheimili | Samstarfssamningur Eirar hjúkrunarheimilis, Landspítala og heilbrigðisráðuneytis um endurhæfingu aldraðra |
| Endurhæfing aldraðra | Hrafnista Reykjavík | Samningur um rekstur 20 rýma fyrir skammtímainnlagnir aldraðra með endurhæfingu og 30 dagdeildarrýma endurhæfingu |
| Rekstur hjúkrunarheimilis | Sjómannadagsráð | Samningur um þjónustu og rekstur hjúkrunarheimilis Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi |
| Rekstur hjúkrunarheimilis | Öldungur hf. | Samningur um að leggja til og reka hjúkrunarheimili að Sóltúni 2, Reykjavík |
| Rekstur hjúkrunarheimilis | Sunnuhlíð | Samningur um þjónustu og rekstur hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi |
| Rekstur hjúkrunarheimilis | Grund | Samningur um þjónustu og rekstur Markar hjúkrunarheimilis |