Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 407. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 991  —  407. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfússyni um
uppsagnir starfsmanna atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og starfslið ráðherra.


     1.      Hve mörgum starfsmönnum ráðuneytisins hefur verið eða verður sagt upp störfum vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu sem lögð var á aðalskrifstofur ráðuneyta í fjárlögum? Svarið óskast sundurliðað eftir skrifstofum ráðuneytisins og starfsheitum og greint skal frá því í hve miklum mæli er um uppsagnir eða lækkun starfshlutfalls að ræða.
    Í lok janúar sl. var fjórum starfsmönnum ráðuneytisins sagt upp störfum. Að auki voru lögð niður embætti fjögurra skrifstofustjóra og þeim boðnar stöður sérfræðinga, af þeim fóru tveir í 49% starf, einn hætti störfum og einn hélt áfram í fullu starfi sérfræðings.
    Uppsagnirnar skiptast þannig eftir skrifstofum:
     –      Á skrifstofu fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu var einum ritara sagt upp ásamt sérfræðingi.
     –      Á skrifstofu viðskipta, nýsköpunar og ferðaþjónustu var einum ritara sagt upp.
     –      Á skrifstofu matvæla, landbúnaðar og byggðamála var einum sérfræðingi sagt upp störfum, auk þess sem tveir skrifstofustjórar fóru í 49% starf sérfræðings.
     –      Á skrifstofu sjávarútvegs og fiskeldis var embætti skrifstofustjóra lagt niður og hætti hann störfum.

     2.      Hve marga aðstoðarmenn, ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni í fullu starfi eða hlutastarfi eða sem verktaka hafa ráðherrar í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu ráðið frá stjórnarskiptum?
    Aðstoðarmenn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eru tveir og einn hjá iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Einn starfsmaður var ráðinn tímabundið í tvo mánuði vegna úrvinnslu við hagtölur í mjólkurframleiðslu.