Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 569. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 993  —  569. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um ferðaþjónustu og tekjur ríkissjóðs.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.


     1.      Hver hefur innskattur og útskattur hótela og gistiheimila, sem og endurgreiðslur til þeirra vegna mismunar, verið árlega síðustu tíu ár á verðlagi ársins 2013 og hvernig er skiptingin milli reksturs og stofnkostnaðar? Hverjar væru fjárhæðirnar miðað við virðisaukaskatt í almennu þrepi (25,5%)?
     2.      Hverjar hafa verið árlegar tekjur ríkissjóðs af gistináttagjaldi á verðlagi ársins 2013?
     3.      Hverjar eru áætlaðar árlegar tekjur ríkissjóðs af svokölluðum náttúrupassa næstu fjögur árin?


Skriflegt svar óskast.