Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 572. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 996 — 572. mál.
Hvað líður vinnu ráðherra við að mæta tilmælum Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE (ODIHR) til að stuðla að því kosningar verði framkvæmdar í fullu samræmi við skuldbindingar ríkisins við ÖSE og önnur viðmið er varða lýðræðislegar kosningar? Óskað er eftir því að svarið fylgi tölusettum tilmælum stofnunarinnar í skýrslu hennar frá 24. júní 2013 sem varða eftirtalda þætti:
1. Endurskoðun á löggjöf um dreifingu þingsæta á milli kjördæma til að tryggja samræmi við meginregluna um jafnan kosningarrétt.
2. Breytingar á kosningalögum í því augnamiði að gera ráð fyrir viðurvist fulltrúa almennings og alþjóðastofnana við framkvæmd alþingiskosninga til þess að ganga úr skugga um að ákvæði 8. mgr. Kaupmannahafnarskjals ÖSE frá 1990 séu uppfyllt.
3. Auka samræmi og tryggja samhæfingu í framkvæmd kosninganna á öllum stigum kosningayfirvalda, svo sem með því að þjálfa yfirkjörstjórnir og landskjörstjórn betur eða útvega þeim viðmiðunarreglur og fyrirmæli til að tryggja samræmi og samhæfingu í verkum þeirra.
4. Innleiðingu skilvirkra og hóflegra viðurlaga til þess að stuðla að aukinni fylgni við lög og reglur um fjármál stjórnmálasamtaka ásamt því að fá Ríkisendurskoðun aukin völd til þess að gera heildstæða úttekt á fjármálum stjórnmálasamtaka og leggja á stjórnvaldsviðurlög í þeim tilvikum sem brotið er gegn viðeigandi ákvæðum laga.
5. Endurskoðun á rétti framboða til aðgengis að RÚV, í ljósi þess að RÚV ber skylda til þess að tryggja víðtæka og hlutlausa umfjöllun um kosningar í allri dagskrárgerð sinni.
6. Endurskoðun löggjafar á þann hátt að rétturinn til að skjóta ákvörðunum er tengjast kosningum til dómstóla sem endanlegs valds verði sérstaklega tryggður, í samræmi við skuldbindingar við ÖSE og það sem alþjóðlega telst æskilegt.
7. Endurskoðun og samræmingu þeirra laga sem gilda um tilkynningu og skráningu framboða, þar á meðal tímaramma og tímafresti og tryggja að framboðslistar liggi endanlega fyrir áður en utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst, ásamt því að taka til skoðunar að þróa staðlaðar viðmiðunarreglur og eyðublöð þar sem slíkt gæti haft í för með sér skýrara fyrirkomulag á skráningu framboða.
8. Breytingar á löggjöf á þann veg að stjórnmálasamtök þurfi að gera sjálfstætt uppgjör vegna kosninga svo að Ríkisendurskoðun geti fylgst ítarlega með öllum kosningatengdum útgjöldum.
9. Endurskoðun löggjafar í því augnamiði að tryggja að takmarkanir á framlögum eigi bæði við „tengd félög“ og eigendur þeirra í þeim tilvikum sem „tengd félög“ eru í raun í eigu sömu lögaðila eða einstaklinga.
10. Frekari aðgerðir til að takmarka samþjöppun á eignarhaldi fjölmiðla, t.d. reglur um hagsmunaárekstra og samkeppni á markaði, innleiðingu reglna sem miða að því að setja skorður við hversu mikil áhrif einstaklingur, fyrirtæki eða félag getur haft á eitt eða fleiri svið fjölmiðla og sömuleiðis tryggja nægilegan fjölda af fjölbreyttum fjölmiðlum.
11. Hvort veita eigi fjölmiðlanefnd auknar heimildir og formlegt hlutverk í eftirliti með kosningaumfjöllun til að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu fyllilega.
12. Hvort setja eigi fjölmiðlum einhver skilyrði um birtingu ákveðinna upplýsinga þegar greint er frá skoðanakönnunum til að almenningur geti betur áttað sig á áreiðanleika þeirra, til að mynda að taka ætti fram hvaða stjórnmálaflokkur eða samtök pöntuðu könnunina, nafn og aðferðafræði þess er framkvæmdi könnunina, úrtak, skekkjumörk og tímabilið sem könnunin var framkvæmd.
13. Endurskoðun á framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu og lög sem hana varða þannig að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjist ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir að stjórnmálahreyfingar hafa verið skráðar hjá innanríkisráðuneyti um leið og þess sé gætt að tímafrestir fyrir skráningu framboða renni ekki út fyrr en eins nálægt kjördegi og mögulegt er.
14. Hvernig megi uppfræða kjósendur betur um verklag og auka þekkingu þeirra, þar á meðal með umfjöllun í sjónvarpi, um breytingar á nafnaröð og útstrikanir sem og öðrum hliðum kosninganna.
15. Hvort setja eigi öllum kosningayfirvöldum ákveðin tímamörk til að taka ákvarðanir er kvartanir berast til að gæta fulls samræmis við gr. 5.10 í Kaupmannahafnarskjalinu.
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 996 — 572. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um eftirfylgni með tilmælum Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE um framkvæmd kosninga á Íslandi.
Frá Árna Þór Sigurðssyni.