Ferill 713. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1196 — 713. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um yfirfæranlegt tap við samruna
Landsbankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
Hve mikið yfirfæranlegt tap fylgdi með Sparisjóði Vestmannaeyja við yfirtöku Landsbankans á sparisjóðnum og hve mikið getur bankinn lækkað skattbyrði sína í framtíðinni með þeirri aðgerð?
Skriflegt svar óskast.