Ferill 715. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1198  —  715. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um öryggisbúnað í bifreiðum fyrir fatlað fólk.

Frá Ragn­heiði Ríkharðsdóttur.


     1.      Hver hefur eftirlit með að viðeigandi öryggisbúnaður sé í bifreiðum sem fatlað fólk á og ekur eða nýtir sem farþegar?
     2.      Hvers konar öryggisbúnaðar er krafist í bifreiðum í almennum akstri á vegum ­sveitarfélaga með og fyrir fatlað fólk?


Skriflegt svar óskast.