Ferill 607. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1233 — 607. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Helga Hjörvar
um eignarhluti ríkisins og meðalvaxtakostnað á lántökum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvert var bókfært verðmæti eignarhluta ríkisins í eftirtöldum fyrirtækjum miðað við ársreikninga þeirra eins og þeir voru annars vegar í árslok 2009 og hins vegar í árslok 2013:
a. Landsbankanum,
b. Arion banka,
c. Íslandsbanka,
d. Landsvirkjun,
e. Orkusölunni,
f. Orkubúi Vestfjarða,
g. Landsneti,
h. Rarik,
i. Farice,
j. Isavia (miða skal við 1. janúar 2010 í stað 31. desember 2009),
k. ÁTVR,
l. Íslandspósti?
2. Hve miklar voru arðgreiðslur frá framantöldum fyrirtækjum til ríkisins sem eiganda á árunum 2010–2013, sundurliðað eftir fyrirtækjum og árum?
3. Hver var meðalvaxtakostnaður ríkissjóðs á lántökum á árunum 2010–2013, sundurliðaður eftir árum?
Í svari við 1. og 2. tölul. er óskað eftir upplýsingum þannig fram settum að eignarhlutir í fyrirtækjunum innbyrðis séu ekki tvítaldir.
Tafla 1. Bókfært verðmæti fyrirtækja í eigu ríkisins 2009 og 2013.
| Fjárhæðir í millj. kr. | Árslok 2009 | Árslok 2013 | ||||
| Eignarhluti ríkissjóðs | Bókfært virði1 | Virði m.v. eignarhlut ríkissjóðs | Eignarhluti ríkissjóðs | Bókfært virði1 | Virði m.v. eignarhlut ríkissjóðs | |
| Landsbankinn | 81,30% | 157.592 | 128.122 | 98,00% | 241.359 | 236.532 |
| Arion banki | 13,00% | 90.034 | 11.704 | 13,00% | 144.947 | 18.843 |
| Íslandsbanki | 5,00% | 92.103 | 4.605 | 5,00% | 147.660 | 7.383 |
| Landsvirkjun | 100,00% | 193.147 | 193.147 | 100,00% | 200.419 | 200.419 |
| Orkusalan2 | 100,00% | 3.437 | 3.437 | 100,00% | 6.661 | 6.661 |
| Orkubú Vestfjarða3 | 100,00% | 4.334 | 4.334 | 100,00% | 5.169 | 5.169 |
| Landsnet4 | 93,22% | 8.322 | 7.758 | 93,22% | 15.446 | 14.399 |
| Rarik | 100,00% | 10.669 | 10.669 | 100,00% | 17.006 | 17.006 |
| Farice | 25,00% | 1.817 | 454 | 30,18% | 7.255 | 2.190 |
| Isavia5 | 100,00% | 8.123 | 8.123 | 100,00% | 14.864 | 14.864 |
| ÁTVR | 100,00% | 3.641 | 3.641 | 100,00% | 4.595 | 4.595 |
| Íslandspóstur | 100,00% | 2.656 | 2.656 | 100,00% | 2.357 | 2.357 |
| Samtals | 575.874 | 378.650 | 807.739 | 530.418 | ||
|
Stuðst er við gjaldmiðlagengi í árslok 2014 fyrir Landsvirkjun og Farice. 1) Stuðst við bókfært eigið fé í ársreikningi viðkomandi félags. 2) Orkusalan er hluti af samstæðureikningi Rarik sem dótturfélag og er 100% í eigu Rarik. Ríkissjóður er óbeinn eignaraðili að Orkusölunni gegnum eignarhald sitt á Rarik. 3) Orkubú Vestfjarða bókar eignarhlut sinn í Landsneti á kostnaðarverði en ekki bókfærðu virði samkvæmt ársreikningi Landsnets. 4) Landsnet er hluti af samstæðureikningi Landsvirkjunar. Rarik bókar eignarhlut sinn á bókfærðu verði. Orkubú Vestfjarða bókar eignarhlut sinn á kostnaðarverði . Eigendur Landsnets: Landsvirkjun 64,7%, Rarik 22,51% og Orkubú Vestfjarða 5,98%. Fyrirtækið er því 93,22% í óbeinni eigu ríkisins. 5) Tölur fyrir Isavia miðast við 1. janúar 2010 í stað 31. desember 2009. |
||||||
Tafla 2. Arðgreiðslur til ríkissjóðs frá fyrirtækjum í eigu ríkisins árin 2010–2013.
| Fjárhæðir í millj. kr. | Árslok 2010 | Árslok 2011 | Árslok 2012 | Árslok 2013 |
| Landsbankinn | 0 | 0 | 0 | 9.786 |
| Arion banki | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Íslandsbanki | 0 | 0 | 0 | 150 |
| Landsvirkjun | 0 | 0 | 1.798 | 1.499 |
| Orkusalan1 | 0 | 0 | 0 | 100 |
| Orkubú Vestfjarða | 0 | 0 | 0 | 60 |
| Landsnet2 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Rarik | 0 | 0 | 0 | 210 |
| Farice | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Isavia | 0 | 0 | 0 | 0 |
| ÁTVR | 1.000 | 1.000 | 1.050 | 1.200 |
| Íslandspóstur | 40 | 80 | 0 | 15 |
| Samtals | 1.040 | 1.080 | 2.848 | 13.020 |
|
Stuðst er við gjaldmiðlagengi í árslok 2014 fyrir Landsvirkjun. 1) Arður sem var greiddur af Orkusölunni til Rarik. Samtals arðgreiðsla Rarik til ríkissjóðs nam 310 millj. kr. Orkusalan er hluti af samstæðureikningi Rarik sem dótturfélag og er 100% í eigu Rarik. Ríkissjóður er óbeinn eignaraðili að Orkusölunni gegnum eignarhald sitt á Rarik. 2) Sjá skýringu 4 í töflu 1. |
||||
Tafla 3. Meðalvaxtakostnaður ríkissjóðs á lántökum á árunum 2010–2013.
| Fjárhæðir í millj. kr. | Árslok 2010 | Árslok 2011 | Árslok 2012 | Árslok 2013 |
| Vaxtakostnaður ársins* | 68.102 | 65.588 | 75.625 | 74.406 |
| Hlutfall vaxta af skuldum | 5,30% | 4,47% | 5,04% | 5,10% |
| *Samkvæmt ríkisreikningi viðkomandi árs. | ||||