Ferill 732. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1246 — 732. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um innleiðingu á Istanbúl-samningi Evrópuráðsins.
Frá Brynhildi Pétursdóttur.
1. Hvað líður fullgildingu og innleiðingu samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi (CETS nr. 210) af hálfu Íslands og hvenær er fyrirhugað að því ferli verði lokið af hálfu íslenskra stjórnvalda?
2. Telur ráðherra að samningurinn sé gagnlegur með tilliti til forvarna og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum hér á landi og telur ráðherra brýnt að hraða fullgildingu og innleiðingu samningsins?
Skriflegt svar óskast.