Ferill 746. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1297 — 746. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um bifreiðakaup fyrir ráðherra.
Frá Katrínu Júlíusdóttur.
Hversu miklum fjármunum hefur verið varið til kaupa á nýjum ráðherrabílum það sem af er þessu kjörtímabili? Svar óskast sundurliðað eftir árum, embættum, ökutækjategundum og fjárhæðum.
Skriflegt svar óskast.