Ferill 778. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1379  —  778. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til iðnaðar- og við­skipta­ráðherra um öryggi rafrænna skilríkja.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hefur farið fram skipulagt mat á öryggi og hugsanlegum göllum á öryggi þeirra rafrænu skilríkja sem fyrirtækið Auðkenni ehf. veitir gegn þóknun og voru gerð að skilyrði þess að samþykkja niðurfærslu verðtryggðra húsnæðislána?
     2.      Hvaða áform eru uppi um að kynna notendum áðurnefndra rafrænna skilríkja þá hugsanlegu öryggisgalla sem geta orðið til þess að óviðkomandi aðilar misnoti rafræn skilríki til að villa á sér heimildir í annarlegum tilgangi?
     3.      Hvaða opinberi aðili fer með eftirlit með rafrænum öryggismálum af því tagi sem rafræn skilríki ná yfir? Hvaða sérfræðiþekkingu á rafrænu öryggi er þar að finna?


Skriflegt svar óskast.