Ferill 780. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1381  —  780. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um ­sveitarfélög og eigendur sumarhúsa.

Frá Fanný Gunnarsdóttur.


     1.      Hverjar eru lagalegar skyldur ­sveitarfélaga gagnvart eigendum sumarhúsa eða formlegum félögum sumarhúsaeigenda?
     2.      Eru í gildi einhver lög eða reglur um upplýsingagjöf ­sveitarfélaga til eigenda sumarhúsa eða sumarhúsafélaga?
     3.      Eru einhverjar reglur í gildi um aðgengi sumarhúsaeigenda eða stjórnarmanna í félögum sumarhúsaeigenda að ­sveitarstjórnum?


Skriflegt svar óskast.