Ferill 767. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.
Þingskjal 1429 — 767. mál.
Leiðrétting.
Svar
iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Júlíusdóttur
um utanlandsferðir.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margar utanlandsferðir hefur ráðherra farið það sem af er kjörtímabilinu? Óskað er eftir upplýsingum um tilefni, lengd og kostnað hverrar ferðar ásamt fjölda í fylgdarliði.
Ráðherra hefur á yfirstandandi kjörtímabili, frá maí 2013 til maíloka 2015, farið í eftirtaldar ferðir til útlanda í embættiserindum:
Utanlandsferðir ráðherra frá maí 2013 til maíloka 2015.
| Tilefni | Dagafjöldi | Heildarkostnaður | Fjöldi ásamt ráðherra |
| Ferðamál: Fyrsta flug WOW til Washington | 3 | 12.977 | 1 |
| Kvikmyndamál/ferðamál: Heimsókn á kvikmyndahátíðina í Cannes 14.–18. maí og þátttaka í Politicians Forum á IMEX sýningunni í Frankfurt 18.–20. maí | 7 | 763.491 | 2 |
| Orkumál: World Geothermal Congress ráðstefna í Melbourne, Ástralíu | 7 | 2.934.531 | 3 |
| Orkumál: Orkuráðstefna í París á vegum fransk-íslenska verslunarráðsins | 2 | 407.935 | 2 |
| Kvikmyndamál: Fundir með fulltrúum frá Atlantic Studios, Pegasus, Sagafilm, TrueNorth, Republik og framleiðendum í Los Angeles. Ráðstefna AFLC | 5 | 1.284.312 | 2 |
| Tónlistariðnaður: Þátttaka í Eurosonic ráðstefnu í Hollandi | 2 | 411.638 | 2 |
| Orkumál: Ráðherra fór fyrir sendinefnd á vegum Íslandsstofu til Nicaragua | 6 | 1.064.545 | 2 |
| Jafnréttismál: Þátttaka í Women´s Forum í Deauville | 4 | 400.524 | 2 |
| Orkumál: Óformlegur ráðherrafundur orkumálaráðherra í Mílanó | 2 | 451.471 | 2 |
| Ferðamál: Ráðherra opnar Food & Fun og matarkaupstefnu í Turku | 3 | 561.311 | 2 |
| Orkumál: Jarðhitaráðstefna í Brussel | 2 | 767.620 | 3 |
| Olíumál: ONS ráðstefna í Stavanger, olíuleit | 3 | 770.445 | 3 |
| Nýsköpun og ferðamál: FRIS ráðstefna í París. Ferð með fransk-íslenska verslunarráðinu um nýsköpun og ferðamál | 4 | 928.678 | 3 |
| Hönnunarmál: Pre-Summit high level umræðufundur og þátttaka í Fashion Summit ráðstefnu í Kaupmannahöfn | 3 | 954.367 | 3 |
| Orkumál: Setning orkuáætlunar EFTA-sjóðsins á Azoreyjum | 3 | 1.167.609 | 3 |
| Iðnaður og nýsköpun: Boston Seafood, Gloucester Innovation House of Portland | 5 | 1.137.587 | 4 |
| Orkumál: Fundur með Michael Fallon, orkumálaráðherra Breta | 2 | 791.767 | 4 |
| Ferðamál: Ferðaráðstefnan MATKA 2014 í Finnlandi | 3 | 648.937 | 2 |
| Orku- og jafnréttismál: Tvíhliða fundur og ráðstefna á vegum Orkustofnunar o.fl. í Búkarest 26.11.2013 og Women in Parliaments Global Forum í Brussel 27.–29. nóvember 2013 | 5 | 1.352.443 | 3 |
| Viðskipti/ferðamál/orkumál/nýsköpun: Ráðherra fór fyrir sendinefnd á vegum Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins til Seattle | 4 | 330.844 | 1 |
| Orkumál/nýsköpun: Þátttaka ráðherra í Norðurlandaráðsþingi | 3 | 588.924 | 2 |
| Atvinnumál: Fundur með ESA í Brussel | 3 | 1.166.770 | 4 |
| Atvinnumál/samkeppnishæfni: Óformlegur ráðherrafundur (industry, Internal Market and Enterprise) í Vilníus | 3 | 426.140 | 2 |