Ferill 754. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1468  —  754. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannígræðslu.


     1.      Hversu margir gengust undir tannígræðsluaðgerð með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga á árunum 2005–2014? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hver voru útgjöld sjúkratrygginga vegna tannígræðsluaðgerða á árunum 2005–2014? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Í eftirfarandi töflu kemur fram fjöldi þeirra sem gengust undir tannplantaaðgerðir með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga og útgjöld sjúkratrygginga vegna greiðsluþátttökunnar árin 2005–2014.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Sjúkratryggingar Íslands tóku við umsjón sjúkratrygginga af Tryggingastofnun ríkisins 1. október 2008.

     3.      Hvaða reglur gilda um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannígræðsluaðgerða og hversu mikil er hún í einstökum tilvikum?
    Lífeyrisþegar eiga rétt á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) í kostnaði við ígræðslu tveggja tannplanta í ótenntan neðri góm og allt að fjögurra tannplanta í ótenntan efri góm skv. 2. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 451/2013, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, sbr. og breytingareglugerðir nr. 331/2014 og nr. 281/2015. Greiðsluþátttakan er nánar skilgreind í gjaldskrá SÍ (nr. 305/2014 fyrir tannlækningar sem ekki hefur verið samið um við sjúkratryggingar). Það hlutfall af gjaldskrá SÍ sem sjúkratryggingar greiða kemur fram í 6. gr. reglugerðar nr. 451/2013. Fyrir lífeyrisþega án tekjutryggingar er greiðsluþátttaka SÍ 50% af verði aðgerðar samkvæmt gjaldskrá SÍ, fyrir lífeyrisþega með 75% tekjutryggingu er greiðsluþátttakan 75% af gjaldskránni og 100% vegna langsjúkra.
     a.      SÍ veita einnig styrk að hámarki 80.000 kr. upp í kostnað við tannplantaaðgerðir til tenntra lífeyrisþega á hverju almanaksári og eru greiðslur almennt á bilinu 40.000 til 80.000 kr. á hvern einstakling (3. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 451/2013).
     b.      SÍ greiða 80% af verði samkvæmt gjaldskrá sinni vegna tannplantaaðgerða sem ráðist er í vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa (III. kafli reglugerðar nr. 451/2013).
     c.      SÍ greiða 95% af verði tannlæknis þegar um er að ræða meðfædda vöntun fjögurra eða fleiri fullorðinstanna, tap a.m.k. fjögurra fullorðinstanna vegna slysa, klofins góms eða sambærilegra alvarlegra tilvika (IV. kafli reglugerðar nr. 451/2013).
    Þegar á heildina er litið nam greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í tannplantaaðgerðum að meðaltali um þriðjungi af verði tannlækna þau ár sem fyrirspurnin nær til.

     4.      Stendur til að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannígræðsluaðgerðum?
    Ekki stendur til að auka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í tannplantaaðgerðum.