Ferill 813. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1565  —  813. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hvenær stendur til að starfshópur um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála ljúki vinnu sinni?
     2.      Hvenær kom starfshópurinn fyrst saman og hversu oft hefur hann fundað síðan? Hverjir eru í starfshópnum? Þiggja þau laun fyrir vinnu sína í starfshópnum?
     3.      Hvaða önnur vinna hefur farið fram í ráðuneytinu frá því í maí 2013 sem ætlað er að bæta fæðingarorlofskerfið og koma þannig til móts við barnafjölskyldur?


Skriflegt svar óskast.