Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 418 — 69. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um eftirlitsstjórnvöld/eftirlitsaðila.
Eftirfarandi ríkisstofnanir á málefnasviði ráðherra gegna hlutverki eftirlitsstjórnvalda/ eftirlitsaðila:
a. Barnaverndarstofa hefur eftirlit með störfum barnaverndarnefnda á grundvelli barnaverndarlaga, nr. 80/2002, með síðari breytingum, að undanskildu eftirliti með sérhæfðum meðferðarheimilum sem Barnaverndarstofa rekur. Velferðarráðuneytið fer með eftirlit með sérhæfðum meðferðarheimilum.
b. Vinnueftirlit ríkisins hefur eftirlit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustöðum á grundvelli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/ 1980, með síðari breytingum.
c. Vinnumálastofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga um starfsmannaleigur, nr. 139/ 2005, með síðari breytingum, en berist stofnuninni rökstudd kvörtun um að starfsmannaleiga hafi brotið gegn ákvæðum laganna ber stofnuninni að kanna málið frekar.
2. Telur ráðherra þörf á því að yfirfara athugunar- og rannsóknarheimildir með það fyrir augum að samræma og bæta efni þeirra? Ef svo er, hvaða atriði eða þætti þyrfti að samræma eða bæta?
Ráðherra skipaði 25. september sl. nefnd sem falið hefur verið að endurskoða stjórnsýslu á sviði félagsþjónustu og barnaverndar með það að markmiði að styrkja undirstöður heildstæðrar velferðarþjónustu ríkis og sveitarfélaga. Mikilvægur þáttur í endurskoðuninni er stofnun stjórnsýslustofnunar sem m.a. mun hafa með höndum upplýsingaöflun um þjónustu og skilgreiningu gæðaviðmiða á grundvelli gagnreyndrar þekkingar og upplýsinga, öflun og viðhald bestu þekkingar hverju sinni á sviði félagsþjónustu og barnaverndar og ýmis stjórnsýsluverkefni, m.a. þau sem nú eru í umsjón Barnaverndarstofu, Fjölmenningarseturs og réttindagæslumanna fatlaðs fólks. Einnig verði athugað með hvaða hætti eftirliti með gæðum og öryggi þjónustunnar verði best háttað í hinni nýju stofnun, með sérstakri áherslu á sjálfstæði þeirrar einingar.
3. Telur ráðherra þörf á að samræma og bæta framkvæmd eftirlits af hálfu eftirlitsstjórnvalda/eftirlitsaðila betur en nú er? Ef svo er, hvaða atriði eða þætti þyrfti helst að samræma eða bæta?
Mikilvægt er að fylgjast vel með framkvæmd eftirlits sem fellur undir málefnasvið ráðherra með það að markmiði að skoða hvort unnt sé að gera eftirlitið einfaldara en um leið skilvirkara. Í því skyni liggur meðal annars fyrir tillaga um ákveðna breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum sem lögð verður fram á yfirstandandi þingi. Að öðru leyti vísast til 2. tölul.
4. Hafa einhver mistök átt sér stað við framkvæmd eftirlitsstjórnvalda/eftirlitsaðila síðustu ár? Ef svo er, hvers konar mistök var þá um að ræða?
Ríkisendurskoðun og umboðsmaður Alþingis koma á framfæri ábendingum og leiðbeiningum um hvað mætti betur fara í starfsemi stjórnvalda, þ.m.t. eftirlitsaðila. Ráðuneytið reynir ætíð að bregðast við því og kemur það fram í skýrslu og álitum þessara aðila en þekkir ekki til þess að mistök hafi verið gerð við eftirlit af hálfu undirstofnana þess.